Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 94
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR62 Bæjarlind 16 - Kópavogur - Sími 553 7100 - www.linan.is opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16 RÝMUM FYRIR NÝJUM SÓFUM STAKIR SÓFAR Á 30% AFSLÆTTI Birmingham kr. 247.800 afsláttarverð kr. 176.460 Mancebo kr. 226.800afsláttarverð kr. 158.760 Hera kr. 218.900 afsláttarverð kr. 153.230 Avignon kr. 211.600 afsláttarver ð kr. 148.000 „Þetta snýst í sjálfu sér ekki um skoðun okkar á Jóhönnu Sigurðar- dóttir, heldur er þetta frekar sjálf sprottið ferilverk sem sam- svarar sér víða í listheiminum,“ segir Haraldur Ingi Haralds- son, verkefnastjóri Sjónlista mið- stöðvarinnar á Akureyri. Sjón- listamiðstöðin tryggði sér í gærmorgun bollamál með vara- lita fari Jóhönnu á uppboði í þættinum Virkir morgnar á Rás 2. Uppboðið var æsispennandi og þurfti Sjónlistamiðstöðin að bjóða þrisvar sinnum til að tryggja sér plastmálið. Þeir greiddu 105.000 krónur fyrir gripinn, en allur ágóði rennur til Umhyggju, félags til styrktar langveikum börnum. Har- aldur segir gaman að geta styrkt svo gott málefni á sama tíma og þeir leggja sitt af mörkum í feril- verkið sem þarna myndaðist. „Það var ungur strákur sem hringdi fyrstur inn og bauð 5000 krónur og gaf þar með ferilverkinu fram- haldslíf. Hugmyndin hefði seint orðið að neinu ef enginn hefði byrj- að uppboðið. Strákurinn hringdi svo aftur inn seinna í ferlinu og sagðist þá samt ætla að gefa 5.000 krónurnar sínar í verkið. Það var mjög fallegt,“ segir Haraldur. Málið verður afhent Sjónlista- miðstöðinni í beinni út sendingu frá Akureyri í þættinum Virkir morgnar á Rás 2 klukkan 11.10 næstkomandi mánudag. „Þau koma sérstaklega hingað norður til að afhenda okkur málið. Við látum þau þá fá stóra ávísun sem þau fara svo með suður og afhenda langveik- um börnum,“ segir Haraldur og bætir við að verkinu verði mjög líklega stillt upp í safninu, enda telur hann það vera ferli sem sé rétt að hefjast og engin leið að vita hvernig muni þróast. - trs „Það er frekar glatað að vera á hliðarlínunni í ár en ég er ánægður að hafa eitthvað hlutverk,“ segir snjóbrettakappinn Halldór Helga- son sem sest í dómarasætið á AK Extreme snjóbrettamótinu sem hófst á Akureyri í gær. Halldór, sem hefur átt mikilli velgengni að fagna í íþrótt- inni, hefur sjálfur ekki getað stigið á bretti síðan í febrúar, en hann slasaðist á ökkla á heims- meistara mótinu í Ósló í febrúar. „Ég tognaði illa á liðbandi og svo- leiðis meiðsl eru oft erfið, því það tekur svo langan tíma að jafna sig. Læknarnir segja að ég þurfi allavega mánuð í viðbót áður en ég get farið aftur á bretti,“ segir Halldór sem kom til Akureyrar á fimmtudaginn, en hann hefur ekki verið heima síðan um jólin. „Það er æðislegt að koma hingað og hitta alla vinina og fjölskyldu. Núna eru allir hérna fyrir norðan sem ég þekki og það er snilld. Það myndast sérstök stemning á Akureyri á þessu móti og þetta er uppáhaldstími minn á árinu. Þetta mót er af gamla skólanum, skítugt og gott,“ segir hann. Halldór hlakkar til að vera dómari, en mótið hófst í gær- kvöldi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann dæmir á snjóbrettamóti, en hann hefur þjónað því hlutverki nokkrum sinnum áður á litlum mótum úti í heimi. „Ég get örugg- lega miðlað reynslu minni. Það er svo mikil gróska í þessu hérna heima og margir mjög efnilegir sem ég hlakka til að sjá.“ Halldór er búsettur í Mónakó og hefur meðal annars legið á ströndinni á meðan hann nær bata. „Ég er bara búinn að vera að vinna í sólbrúnkunni. Það er búið að vera mjög gott veður í Mónakó og ströndin þar er frábær,“ segir Halldór hlæjandi og líkar lífið vel í Mónakó. „Það er mjög þægilegt að búa þar. Ég er að ferðast mjög mikið svo þegar ég kem þangað líður mér eins og ég sé í sumar- fríi. Það er ekki beint ódýrt að lifa þar en ég hef það fínt.“ Halldór rekur fjögur fyrirtæki ásamt bróður sínum, Eiríki, og saman framleiða þeir ýmsar vörur tengdar íþróttinni. Til dæmis snjó- bretti undir nafninu Lobster, húfur undir merkinu Hoppipolla og belta- fyrirtæki sem nefnist 7-9-13. „Það er nóg að gera og núna hef ég haft tíma til að sinna fyrir tækjunum,“ segir Halldór, sem ætlar að dvelja út næstu viku fyrir norðan og hlakkaði til að geta slappað af í góðra vini hópi um helgina. „Vinir mínir eru ekki nógu duglegir að heimsækja mig út svo það er mjög gaman að hanga með þeim núna.“ alfrun@frettabladid.is PERSÓNAN Ég tognaði á liðbandi og svoleiðis meiðsl eru oft erfið, því það tekur langan tíma að jafna sig. HALLDÓR HELGASON SNJÓBRETTAKAPPI Plastmál Jóhönnu seldist á 105.000 krónur SJÁLFSPROTTIÐ FERILVERK Haraldur Ingi segir kaupin á bolla- málinu ekkert hafa með skoðun þeirra á Jóhönnu að gera, heldur sé það sjálfsprottið ferilverk. HALLDÓR HELGASON: ÉG ER BÚINN AÐ VERA AÐ VINNA Í SÓLBRÚNKUNNI Sest meiddur í dómara- sætið á heimaslóðunum NÆR BATA Á STRÖNDINNI Í MÓNAKÓ Snjóbrettakappinn Halldór Helgason er meiddur á ökkla og hefur því ekki getað stigið á snjóbretti síðan í febrúar. Halldór er samt sem áður kominn til Akureyrar þar sem hann sest í dómarasætið á AK Extreme mótinu sem fer fram um helgina. MYND/EINAR MÁR EINARSSON Sólveig Jónsdóttir Starf: Blaðamaður og rithöfundur. Aldur: 29 ára. Búseta: Vesturbær. Foreldrar: Jón Þór Guð- mundsson og Ástríður Jónas- dóttir. Þau eru bæði bændur. Fjölskylda: Ég á kærasta sem heitir Atli Ragnar Ólafsson. Stjörnumerki: Ljón. Sólveig gefur út sína fyrstu skáldsögu, Korter, í næstu viku. „Það er slatti af myndasögum komnar inn nú þegar en skilafrestur rennur út þegar við vöknum á mánudagsmorguninn næstkomandi. Nánari tímasetning fer eftir hvað við ákveðum að sofa lengi,“ segir skopmyndateiknarinn Hugleikur Dagsson hjá bókaútgáfunni Ókeibæ, sem stendur fyrir myndasögukeppni. Allir geta sent inn myndasögur, sem mega vera að hámarki fjórar blaðsíður, og þær bestu birtast í hinu ókeypis Ókeipiss blaði. Blaðið er gefið út af Ókeibæ í samvinnu við Nexus í tengslum við alþjóðlega ókeypis myndasögudaginn þann 5. maí næstkomandi. „Nexus heldur alltaf upp á daginn með því að gefa bunka af myndasögum og það verður hægt að nálgast það þar. Það myndast alltaf rosa löng röð fyrir utan Nexus á þessum degi og það er alltaf gott veður. Ég er samt viss um að nördarnir myndu bíða í röð þrátt fyrir rigningu, þeir eru svo þrautseigir. Það er ekkert sorglegra en 100 blautir nördar í rigningu að bíða eftir myndasögum,“ segir Hugleikur og hlær. Enn er tími fyrir þá sem finna hjá sér köllun til að senda inn efni. „Oft kemur besta efnið á síðustu mínútunum,“ segir Hugleikur. - trs Skilafrestur fer eftir svefni MYNDASÖGUKEPPNI Hugleikur Dagsson segir besta efnið oft koma inn á síðustu mínútunum og hann bíði því spenntur eftir að sjá hvað gerist á síðustu dögum keppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.