Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 78
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR46
Listvinafélag Hallgrímskirkju 30. starfsár
MESSA Í C-MOLL
& REQUIEM
HALLGRÍMSKIRKJU
LAUGARDAGINN 21. OG SUNNUDAGINN 22. APRÍL KL. 17
Aðgangseyrir 4.500 kr. / 3.500 kr. Miðasala á midi.is
og í Hallgrímskirkju, s. 510 1000, opið kl. 9-17 alla daga.
ÞÓRA EINARSDÓTTIR - HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
AUÐUR GUÐJOHNSEN - ELMAR GILBERTSSON - MAGNÚS BALDVINSSON
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU 30 ÁRA - KAMMERSVEIT HALLGRÍMSKIRKJU
stjórnandi: HÖRÐUR ÁSKELSSON
46
menning@frettabladid.is
Myndlistarmaðurinn Sigga
Björg Sigurðardóttir hefur
skapað sinn eigin heim þar
sem óræðar kynjaverur
hafa verið gegnum gangandi
stef. Í sýningunni 33, sem
verður opnuð í Kling &
Bang í dag, kynnir hún nýja
karaktera til leiks.
Á ferli sínum, sem spannar nú
rúman áratug, hefur Sigga Björg
Sigurðardóttir skapað heim sem
dansar á mörkum hins heillandi
og annarlega og andlitslausar og
óræðar kynjaverur eru gegnum-
gangandi stef.
„Þetta er heimur sem ég hef
verið að vinna með í raun frá því
ég var lítil stelpa,“ segir Sigga
Björg. „Ég á bágt með að útskýra
hvaðan þessar verur koma bein-
línis; þetta er eitthvað sem undir-
meðvitundin sýður saman úr hinu
og þessu fólki sem verður á vegi
manns og ýmsum atburðum og
birtast í þessum verum sem eru
einhvers staðar á mörkum manna
og dýra.“
Á sýningunni 33, sem verður
opnuð í Kling & Bang í dag, kynnir
Sigga Björg 33 nýja karaktera
til leiks – þrjá skúlptúra og 30
myndir. Sú breyting hefur þó orðið
á verunum að þær eru meira unnar
en hingað til; með augu, andlit og
eigin auðkenni. „Ég veit ekki hvað
varð til þess en ég ákvað að fara
skrefi lengra og spyrja: hvað heitir
þessi karakter og hver er hann?“
Ferill Siggu Bjargar spannar
rúman áratug; hún útskrifaðist
með BA-gráðu frá myndlistadeild
Listaháskóla Íslands árið 2001 og
með mastersgráðu í myndlist frá
Glasgow School of Art árið 2004.
Í Skotlandi ílengdist hún í sjö ár.
„Ísland er mitt aðalheimili núna
en ég er alltaf með annan fótinn
í Skotlandi,“ segir hún. Verkin
á sýningunni 33 vann hún hins
vegar að miklu leyti í Austurríki
þar sem hún fékk stöðu gesta-
listamanns í nóvember og fram í
janúar. „Sýningin hefur því alls
verið um sex mánuði í vinnslu,“
segir hún. „Mér finnst mjög gott
að fara út fyrir landsteinana til að
vinna. Maður fær smá fjarlægð á
sjálfan sig og nær betur að vinna
úr því sem hefur verið að gerjast
með manni heima og getur tekið
gagnrýnar ákvarðanir.“
Sýning Siggu Bjargar í Kling
& Bang galleríi á Hverfisgötu 42
stendur til 6. maí. Í tengslum við
sýninguna verður gefin út veg-
leg bók um verk Siggu Bjargar í
33ja eintaka upplagi. Þar birtist
einnig nýr texti „Að horfast í
augun við djöfsa“ eftir Guðmund
Odd Magnússon.
bergsteinn@frettabladid.is
Kynjaverur í Kling & Bang
SIGGA BJÖRG Listamaðurinn hefur unnið með myndheim þar sem óræðar kynjaverur ráða ríkjum. Á sýningunni 33 sýnir Sigga
Björg mótaðri verur en hún hefur gert hingað til. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Söngkonan Jana María segir
frá lífi og starfi Erlu Þorsteins-
dóttur, stúlkunnar með lævirkja-
röddina, og hins þekkta Hauks
Morthens á tónleikum í Salnum
á morgun. Flutt verða þeirra
þekktustu lög í bland við hin
minna þekktu.
„Við verðum í sannkölluðu
vorskapi,“ segir Jana María um
sig og sína gesti, meðal annarra
Valdimar Guðmundsson sem hún
segir hafa komist einna næst því
að hljóma eins og Haukur Mort-
hens. Aðrir gestir eru Thelma
Hrönn Sigurdórsdóttir og Þór
Breiðfjörð sem hefur slegið
í gegn í Vesalingunum í upp-
færslu Þjóðleikhússins. Hljóm-
sveit hússins verður á sínum stað
en hana skipa Hallgrímur Jónas
Ingvason, Stefán Gunnarsson,
Valgarður Óli Ómarsson og Þor-
valdur Örn Davíðsson.
Þetta eru síðustu tónleikar
vetrarins hjá Jönu Maríu undir
yfirskriftinni Söngfuglar þar
sem hún fjallar um ástsæla
íslenska dægurlagasöngvara.
Þeir hefjast kl. 15 á morgun og
miðaverð er 2.500 krónur. Miða-
sala er á salurinn.is.
Söngfuglar
í vorskapi
JANA MARÍA Lofar því að söngfuglarnir
syngi sinn fegursta söng.
Rithöfundarnir Sjón og Gyrð-
ir Elíasson hafa verið tilnefndir
til erlendra verðlauna. Ensk þýð-
ing Rökkurbýsna eftir Sjón var í
vikunni tilnefnd til Independent
Foreign Fiction Prize í London,
en þau eru veitt til bestu skáld-
sögunnar eftir samtímahöfund,
sem hefur verið þýdd á ensku og
gefin út í Bretlandi. Gríðarsterkir
höfundar eru tilnefndir auk Sjóns:
Umberto Eco, Haruki Murakami,
Amos Oz, Peter Nadas og Bern-
ardo Atxaga.
Þá hefur Milli trjánna, smásagna-
safn Gyrðis Elíassonar, verið til-
nefnt til evrópsku bókmenntaverð-
launanna, Prix Jean Monnet de
Littérature Européenne, sem afhent
verða í nóvember í haust. Stofnað
var til verðlaunanna árið 1995 en
þau eru veitt fyrir verk sem eru
samin eða þýdd á frönsku. Meðal
verðlaunahafa fyrri ára má nefna
William Boyd, Herbjørg Wassmo,
Arturo Perez Reverte og Antonio
Tabucchi. Milli trjánna kom út í
franskri þýðingu í byrjun apríl.
Gyrðir Elíasson
og Sjón tilnefndir
SJÓN - Rökkur-
býsnir eru
tilnefndar sem
besta skáldsagan í
enskri þýðingu.
GYRÐIR ELÍASSON
Frönsk þýðjng Milli
trjánna er tilnefnd til
evrópskra bók-
menntaverðlauna.
AUKASÝNING Á LA BOHÈME Vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum hefur annarri
aukasýningu verið bætt við á La Bohème, laugardagskvöldið 21. apríl. þetta verður allra síðasta
sýningin en rúmlega 9.000 miðar hafa þegar selst á óperuna.