Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGÍsbúðir LAUGARDAGUR 14. APRÍL 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: ívar Örn Hansen. ivarorn@365.is. s. 512- 56473 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Dairy Queen ísbúðirnar voru til skamms tíma helsti sam-komustaður fólks á góðviðr- isdögum í Reykjavík. Biðraðirnar náðu langt út á götu. Dairy Queen var á fjórum stöðum, Hjarðarhaga, Aðalstræti, Bankastræti og í Álf- heimum. Fyrsta búðin leit dagsins ljós 3. júní 1954 á Hjarðarhaga. Það var Þorvarður Árnason sem kom með hugmyndina að Dairy Queen frá Ameríku þar sem hann kynntist þessum ísbúðum. Amma gerði íspinna Valgeir er frændi Þorvarðar og var fastagestur í ísbúðinni á Hjarðar- haga. „Ég kynntist Dairy Queen í frumbernsku þar sem móður- bróðir minn rak ísbúðina. Þetta voru óhemju vinsælar búðir og mikil samsteypa á þess tíma mæli- kvarða. Ísinn var í öllum barnaaf- mælum. Ég á minningar um ömmu mína sem hjálpaði til við að gera íspinna. Ég lærði hins vegar að setja ís í brauðform eftir kúnstarinn- ar reglum. Skammt frá ísbúðinni á Hjarðarhaga var stærsti braggi á Íslandi, svokallaður Melabraggi,“ segir Valgeir. „Einn stórfrændi minn, Vil- hjálmur Einarsson íþróttamaður, gerði garðinn frægan þarna. Hann starfaði um tíma fyrir Dairy Queen og kynntist eiginkonu sinni þar. Ég minnist þessarar ísbúða með mik- illi ánægju, enda allt voða spenn- andi í kringum þær. Mikil áhersla var lögð á hreinlæti og að gera allt rétt í sambandi við þetta vandmeð- farna hráefni.“ Ók sendibílnum Knúti Þegar ég var nítján ára var mér boðið að aka sendibifreiðinni Knúti, sem svo var kallaður en þetta var lítill Morris. Hann var notaður til að aka ísformum og öðru dóti á milli búðanna. Þetta var árið 1971 en þá fékk ég pláss á síldarbát sem veiddi í Norðursjó. Báturinn var ekkert sérstaklega fengsæll en ég fékk reynslu sem ég bý að alla ævi. Líklegast hefur sjómennskan verið hollari skóli en vinnan við ísbúð- ir. Þegar þetta koma upp mælti ég hins vegar með vini mínum, Jakobi Frímanni Magnússyni, í aksturinn. Hann fékk starfið og ók Knúti í eitt sumar,“ segir Valgeir. Dairy Queen ísbúðirnar lifðu lengi hér á landi en þær hættu starf- semi fyrir nokkrum árum. Minnist Dairy Queen með mikilli ánægju Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður starfaði við ísbúð frænda síns uns örlögin leiddu hann í sjómennsku. Valgeir Guðjónsson var fastagestur í Dairy Queen ísbúðinni á Hjarðarhaga en móðurbróður hans rak hana. MYND/GVA FRÍSKANDI FROSTPINNI ÚR BERJUM 1 bolli bláber 1 bolli hindber 1 bolli brómber 5 lauf fersk mynta Safi úr ½ límónu Örlítill sykur ef vill Maukið hindberin og brómber- in í skál, bætið bláberjunum út í og merjið þau en ekki öll, það er fal- legt að hafa stöku heilt bláber í pinnanum. Kreystið safa úr hálfri límónu út í og smávegis af saxaðri myntu. Ef berjamaukið er of þykkt má þynna það aðeins með vatni eða ávaxta- safa. Smakkið, ef maukið er of súrt má bæta örlitlu af sykri út í. Hellið í íspinna- mót og frystið. Við bjóðum mikið úrval af ís og fullt borð af ávöxtum og sælgæti,“ segir Jón Magnús- son, eigandi ísbúðarinnar Skalla, en hann og fjölskylda hans hafa selt Íslendingum ís í yfir fjörutíu ár. „Við erum öllu vön og kunnum á þessu tökin,“ segir Jón glettinn en hann opnaði Skalla fyrst í Lækjar- götu árið 1971. „Þar vorum við til ársins 1986, svo í Hraunbæ, þar á eftir í Hafnarfirði og vorum svo á Vesturlandsvegi í 20 ár. Hér í Ög- urhvarfi höfum við verið í eitt ár og hér er gott að vera. Við höfum feng- ið mjög góðar viðtökur,“ segir Jón. Auk hefðbundins rjómaíss fæst einnig í Skalla jógúrtís og svokall- aður „gamli ís“, sem er þó alls ekki gamall en öðruvísi á bragðið en hinn hefðbundni. „Gamli ísinn er kaldari og í honum er minni fita og ekki eins mikið rjómabragð af honum eins og af hefðbundnum rjómaís. Fólk skiptist yfirleitt í tvo hópa, sumir vilja bara rjómaís- inn meðan aðrir vilja bara þenn- an gamla,“ segir Jón. „Jógúrtísinn er síðan sagður hollari en í honum er bara eitt prósent fita. En annars er það mín reynsla að þegar fólk fær sér ís er það ekki mikið að spá í öðru en að fá sér góðan ís. Við erum staðsett í íbúðahverfi og fólk kaup- ir mikið í lítratali, fyrir sjónvarps- kvöldin. Góður ís er alltaf góður ís, svo þarf bara almennilegt fólk til að afgreiða hann og við höfum þetta allt saman hér í Skalla,“ segir Jón og er ekkert farin að þreytast á starfinu eftir fjóra áratugi. „Nei, ég verð í ísnum áfram meðan ég endist. Mér finnst allur ís góður, allt of góður.“ Skalli svalastur í bænum Jón Magnússon, eigandi ísbúðarinnar Skalla, hefur selt Íslendingum ís í meira en fjörutíu ár. Hann segir góðan ís alltaf standa fyrir sínu. Aníta og Aþena afgreiða ís með bros á vör í Skalla. MYND/STEFÁN Save the Children á Íslandi Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.