Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 20

Fréttablaðið - 14.04.2012, Side 20
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR20 rættist. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi GusGus, en það er hættulegt að hitta átrúnaðargoðin sín. Eftir því sem við kynnumst betur verður grund völlurinn fyrir samstarfinu jafnari, því ef við smellum ekki saman getum við ekki gert plötu saman. Ég veit að Biggi hleypir engu í gegn sem hann er ekki fullkomlega sáttur við. Ég kann gríðarlega vel við hann sem persónu og hvernig hann kemur fram við fólk í dag- legu lífi, til dæmis fjölskylduna sína. Vegna áhrifa hans heyrist líka í mun fleiri hljóð gervlum á nýju plötunni en á Queen of Den- mark. Ég gæti hlustað á hljóð- gervla allan daginn, alla daga. Þeir eru hluti af mér. Svo spila nokkrir íslenskir tónlistar menn á plötunni, meðal annars gítar- leikararnir Pétur Hallgrímsson og Smári Tarfur Jósepsson og bassa- leikarinn Jakob Smári Magnússon. Það eru svo margir hæfileikaríkir íslenskir tónlistarmenn til.“ Áttu von á að nýja platan verði í ætt við Queen of Denmark að öðru leyti? „Hún verður dekkri, reiðari og með fleiri „fuck you“-lögum. Ég er enn að vinna úr sömu reynslu og á fyrstu plötunni minni, til dæmis einu erfiðu ástarsambandi. Ég gerði mörgum öðrum það sama og hann gerði mér. Ég er líka að vinna úr því. Ég veit að platan kemur til með að hefjast á biblíuversi sem fjallar um það hvernig ástin á að vera, góð og vingjarnleg, en er það auðvitað alls ekki. Annað lag á henni fjallar um vin minn sem sem framdi sjálfsmorð fyrir nokkrum vikum síðan. Hann var alkóhólisti sem glímdi við ótal erfiðleika, en ég hafði ekki heyrt í honum í þó nokkurn tíma. Það er ný reynsla fyrir mig að semja svona lag, en ég reyni að endurspegla allt það sem hann var. Mig grunar að ég skilji vel hvernig honum leið, því ég hef gengið í gegnum svona líðan. Að trúa því að maður læri aldrei og geri sömu mistökin aftur og aftur. Þessi tilfinning hræðir mig mest af öllu.“ Barátta á hverjum degi Síðan Grant kom til Íslands hefur það orð farið af honum að hann sé alþýðlegur, hógvær, vingjarn- legur og ekki síst bóngóður. Sem dæmi má nefna að hann hefur tekið vel í að koma fram í Hljóm- skálanum, tónlistarþætti RÚV þar sem hann samdi og flutti lag með hljóm sveitinni SSSól, á tónleikum í Edrúhöllinni á vegum SÁÁ og téðum tónleikum á Seyðisfirði um síðustu helgi. Leggurðu þig fram um að vera gúddígæ? „Ég sé sjálfan mig ekki fyrir mér sem sérstaklega viðkunnan- legan mann og ef fólk sem lýsir mér þannig þyrfti að búa með mér yrði saga þeirra líklega önnur. En mér þykir vænt um að heyra að einhverjum finnist ég viðkunnan- legur. Mér finnst gott að tala við fólk og mér finnst sjálfsagt að vera góður við aðra. Mér þykir fólk áhugavert. Ætli ég sé ekki fyrst og fremst þakklátur. Ég hef verið lengi á leiðinni á þann stað sem ég er á í dag og veit alveg hversu heppinn ég er. Bara það að vera á Íslandi, bara það að blaðamaður skuli hafa áhuga á að tala við mig um það sem ég geri, í stað þess að vera á sjúkrahúsi með hjarta- bilanir vegna of mikillar kókaín- neyslu, er gjörsamlega frábært. Það er heiður.“ Spjallarðu þá við alla sem vilja spjalla? „Nei. Stundum er ég þreyttur og vil helst vera einn. Það gerist aðal- lega á hljómleikaferðalögum, en þá slekk ég bara á símanum mínum. Oftast reyni ég þó að tala við fólk sem hefur áhuga á að tala við mig. Of mikill tími með sjálfum mér er ekki af hinu góða. Hann gerir það að verkum að sam ræðum mínum við sjálfan mig, innra með mér, fjölgar til muna. Þá er ég nánast alltaf með ásakandi fingur á lofti: „Þú lítur ekki nógu vel út í dag. Þú þarft að grennast. Hárið á þér er ömurlegt. Þú vinnur ekki nógu mikið. Þú hjálpar ekki öðrum nógu mikið. Þú eyðir of miklum peningum. Þú hefur enga hæfi- leika. Þú ert veikburða og þung- lyndur. Allt þetta kjaftæði.“ Glímirðu við þunglyndi? „Já, ég glími við mjög mikið þunglyndi. Lamandi erfitt þung- lyndi. Á hverjum degi er það barátta að fara fram úr rúminu. Sumir dagar eru skárri en aðrir, en oftast fylgir hver barningurinn á fætur öðrum í kjölfarið: Fara í sturtu, klæða mig, vaska upp, setja í þvottavél og þrífa íbúðina svo hún verði ekki ógeðsleg. Stundum fæ ég alveg nóg af sársaukanum og langar bara til að semja lög um kaffi. Þetta er barátta. Ég er að berjast gegn því að verða svo þunglyndur að ég fremji sjálfs- morð að lokum. Í mörg ár reyndi ég að drepa persónuleikann minn með alls konar drasli því mér fannst hann hreinlega ekki nógu góður, hvort sem það var með kyn- lífi, áfengi, eitur lyfjum, mat eða sjónvarpi. Ég er ekki með sjón- varp í íbúðinni minni hér á Íslandi sem er gott, en að ákveðnu leyti slæmt líka því það gæti hjálpað mér að læra íslenskuna betur að geta horft á íslenska þætti. Þessa dagana reyni ég líka að borða til að fá orku og líða vel í stað þess að leita einhvers konar huggunar og afþreyingar í mat. Ég er í raun að reyna að losa mig við ýmislegt sem ég hélt að ég þyrfti en notaði bara til að flýja. Það breytir öllu að verða edrú. Einu sinni vissi ég allt- af hvað ég ætti að gera því ég gat alltaf farið á barinn. Svo skyndi- lega sit ég einn heima hjá mér, bláedrú, og mér finnst það enn þá yfir þyrmandi. Ég er betur vakandi edrú og stundum er það beinlínis ógnvekjandi hversu meðvitaður ég er.“ Sami skíturinn alls staðar Hvernig rímar íslenskur vetur við mann sem glímir við þennan sjúk- dóm? „Ég verð að viðurkenna að Ísland getur verið erfiður staður fyrir mig. Ég get orðið mjög þung- lyndur hér, ekki vegna þess að staðurinn sé dapurlegur heldur vegna veðursins, myrkursins og fjarlægðanna. Ég átti stundum erfitt í vetur. Á pappírnum lítur íslenskur vetur mjög vel út, og hann var vissulega afar fallegur þótt hann hafi verið þungur, en á köflum átti ég í baráttu við mínar eigin hugsanir.“ Kom þá ekki til greina að flytja til sólríkari staða? „Jú, auðvitað kom það til greina. Það er alltaf hægt að flytja eitt- hvert annað. En það er ekki rétta leiðin. Það virkar ekki. Það verður sami skíturinn hvar sem er annars staðar. Þótt það taki hann kannski lengri tíma að koma upp á yfir- borðið þá brýst hann upp að lokum. Ísland getur verið erfiður staður að búa á, en það sama á við um alla aðra staði. Ég þarf að glíma við daglega lífið, raunverulega lífið. Það getur verið strembið, en þar finnur maður líka bestu bitana í tilverunni.“ Í mörg ár reyndi ég að drepa persónuleikann minn með alls konar drasli því mér fannst hann hreinlega ekki nógu góður. EINLÆGUR Grant tekur það nærri sér þegar hann heyrir sögur af samkynhneigðum unglingum sem eiga í baráttu við umhverfi sitt. Í lögum sínum og á tónleikum segir hann frá reynslu sinni sem samkynhneigður ungur maður úr trúaðri fjölskyldu í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lagið Finish On Top, sem John Grant samdi ásamt Helga Björnssyni og flutti í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum, hefur notið mikilla vinsælda undan- farið og meðal annars komist í efsta sæti á vinsældalista Rásar 2. Samstarfi þeirra er þó hvergi nærri lokið því Grant kemur fram á tónleikum Helga í Hörpu á þjóðhátíðardaginn 17. júní, þar sem Helgi fær ýmsa söngvara til liðs við sig til að syngja klassískar íslenskar dægurperlur. Ekki nóg með það heldur hefur lagið verið ákveðið, Ást eftir Magnús Þór Sigmundsson, og mun Grant syngja lagið á íslensku. Sjálfur heldur Grant svo tónleika í Háskólabíói þann 19. júlí næstkomandi. SYNGUR Á ÍSLENSKU MEÐ HELGA BJÖRNS Í HÖRPU FRAMHALD AF SÍÐU 18 Gildi - lífeyrissjóður Sætúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is Á R S F U N D U R Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudagurinn 25. apríl kl. 17.00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni, Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Reykjavík 10. apríl 2012, lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 2 012 www.gildi.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.