Fréttablaðið - 14.04.2012, Síða 76
14. apríl 2012 LAUGARDAGUR44
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hæð, 6. frá, 8. mánuður, 9. hafið,
11. kringum, 12. laust bit, 14. enn
lengur, 16. bardagi, 17. þjálfa, 18.
goð, 20. pfn., 21. ögn.
LÓÐRÉTT
1. þungi, 3. hljóm, 4. peningar, 5.
festing, 7. fáskiptinn, 10. gogg, 13.
frjó, 15. máttur, 16. siða, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hóll, 6. af, 8. maí, 9. rán,
11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. at, 17.
æfa, 18. guð, 20. ég, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. farg, 3. óm, 4. lausafé,
5. lím, 7. fálátur, 10. nef, 13. fræ, 15.
magn, 16. aga, 19. ðð.
Jæja, hvaða erindi á
þessi hringlaga líkami
inn á mína skrifstofu?
Herra! Ég kem
með „Hefnd bláu
apanna“!
200 blaðsíður af
epískri frásagnar-
list á par við það
besta sem gerist
úti í heimi!
M
am
m
a!
Segir
hver?
Ah!
Gjörðu svo
vel! Hér
hefuru blóð
mitt og svita!
Hefuru
kynnst
rauða leið-
réttingar-
pennanum?
Ég verð að
viðurkenna
að tárin geta
líka brotist
fram hvað
úr hverju!
Já... ég finn að
það eru margar
tilfinningar að
brjótast fram
núna!
Hvers vegna hlustarðu
ekki á mig
þegar ég tala við þig??
Hvers vegna talarðu við mig þegar
þú veist að ég er ekki að hlusta??
Önnur
gamanmynd!?
Þetta er í síðasta
skipti sem þú
og híenan veljið
mynd!
Hei, eru þetta ekki
gömlu bleiku apanátt-
fötin hennar Sollu?
Jú.
Mamma
gaf mér
þau.
Mér fannst þau ekki töff fyrst, en
svo breytti ég þeim aðeins.
Bleikir vampíru-
sporðdreka-
ninju-apar eru
karlmannlegri í
mínum augum.
Teiknaðiru
hala og horn á
alla apana?
Dagur rennur upp og sólin skín á Álfta-nesið. Eftir endurnærandi svefn
rumska ég og finn kaffiilm í loftinu. Það
er gott að fara á fætur og gott að fá sér
morgunsopann. Ég renni yfir blöðin. Þar
er náttúrulega ekkert að frétta frekar en
venjulega, merkilegt hvaða slúbbertar
skrifa orðið í blöðin. Jú, jú, þarna eru ein,
tvær pillur á mig, eins og við var að búast.
Maður er nú einu sinni forseti.
JÆJA þá er að skella sér í sturtuna og koma
sér í vinnufötin. Ætli brotið í buxunum
sé ekki nógu stíft? Jú, þetta verður að
duga. Hvað er nú á dagskrá í dag? Jú, eldri
borgarar eru væntanlegir og ég þarf að
ræða við þá um sögu Bessastaða. Síðan
fer ég á sýningu nemenda í fatahönnun
við Listaháskóla Íslands. Úff, enn einn
bissí dagurinn á Bessastöðum. Jæja,
þetta var sosum rólegt í gær. Þá komu
Sturla og Arngrímur og ræddu við mig
um baráttu sína gagnvart fjármálafyrir-
tækjum. Ekki það að sá fundur var á við
fjóra! Morgun dagurinn er líka tiltölu-
lega rólegur, setning Búnaðarþings og
ekkert annað.“
HVERN í veröldinni fýsir að eiga
þá morgunstund sem lýst er
hér að ofan? Þar er nokkrum
skyldustörfum forsetans, sem
lesa má um í dagskrá hans á
heimasíðunni, skellt saman í
áhugaverða daga. Tja, eða daga allavega.
Samkvæmt dagskránni eru dagarnir ósköp
svipaðir; forseti hittir þennan og hinn um
þetta og hitt málið, er viðstaddur þennan
og hinn viðburðinn og flytur þetta og hitt
erindið. Einn til þrír viðburðir á dag virðist
vera normið.
SENN líður að forsetakosningum og
fagna því ýmsir að margir sækist eftir
embættinu. Núverandi forseta finnst svo
gaman í vinnunni að hann getur hreinlega
ekki hætt. Og frambærilegasta fólk eyðir
nú tíma sínum og peningum í að komast í
starfið. Komast í þær aðstæður að líta yfir
dagbók dagsins og sjá að vinnudagurinn
ber í skauti sér opnun myndlistarsýningar
og hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslu-
meistara í Súlnasalnum.
GROUCHO Marx sagði eitt sinn að hann
neitaði að vera meðlimur nokkurs þess
félags sem samþykkti hann sem með-
lim. Mér verður oft hugsað til hans þessa
dagana. Margt gott má um það fólk segja
sem sækist eftir því að verða forseti
Íslands. En það hefur allt einn galla; það
sækist eftir því að verða forseti Íslands.
ÞAÐ að vilja verða forseti Íslands er því
í raun næg ástæða fyrir því að kjósa ekki
viðkomandi. Líklega er best að finna þann
sem síst vill verða forseti og skylda hann í
djobbið.
Ég og Groucho Marx
Fliss
he he
hahah
tíhíhí
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS