Fréttablaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 27
KYNNING − AUGLÝSING Strigaskór17. APRÍL 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3 Sumarlínan frá Hummel var að koma í hús og hún er algjört æði,“ upplýsir Elísabet Ólafs- dóttir verslunarstjóri í skóbúðinni Skór.is í Kringlunni. Þar svigna nú hillur undan fá- dæma flottum sumarskóm og áber- andi hversu glæst úrval er af litrík- um strigaskóm frá Hummel, Nike, Adidas og DC. „Hummel eru heitastir nú vegna þess að þeir eru áberandi f lott- ir, góðir og á frábæru verði,“ segir Elísabet og bendir á töff og sumar- lega strigaskó í öllum regnbogans litum frá Hummel. „Bleikir Hummel-strigaskór eru vinsælastir meðal stelpna, og bláir, eða mjög svo sumarlega grænir, hitta í mark hjá strákunum. Litaúr- valið er ríkulegt og mikið um flott munstur svo útkoman getur orðin ansi skrautleg,“ segir Elísabet um Hummel-strigaskóna sem henta frábærlega til hversdagslegra þarfa og eru afar þægilegir á fæti. „Sumarskórnir Nike og Adidas eru einnig mjög stællegir og þeir traustu og flottu skór eru á góðu verði, eins og reyndar DC, sem unglingar af báðum kynjum eru vitlausir í,“ segir Elísabet, en DC-merkið er þekkt fyrir sterka skó með djörfu útliti. „DC kemur til móts við frjáls- lega hugsandi unglinga sem kjósa fremur skræpótt munst- ur og liti í skóm, í stað svarts og sígilds skófatn- aðar. Fjölskyldan getur því öll fundið sér flotta og góða strigaskó fyrir öll tilefni og við allra hæfi í Skór.is,“ segir Elísabet. Skór.is er í Kringl- unni og í Smára- lind. Sama úrval fæst á báðum stöðum. Sjá nánar á www.skor.is. Hummel heitastir út í sumarið Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudag. Þá víkja vorhret og kuldaskór fyrir léttum strigaskóm í unaðsheitri sumarsól og langri útivist í sveit og borg. Til að mæta sem best marauðum strætum og iðjagrænu grasi sumarsins eiga skóverslanir Skór.is æðislega strigaskó í úrvali og allt sem sumartáslur vilja. Slimmer Stadil Canvas Stærðir 36–47 11.999 kr. Elísabet Ólafsdóttir, verslunarstjóri í Skór.is, segir sumartískuna í strigaskóm einkennast af glaðlegum litum og flottum munstrum. MYND/VALLI Hummel-strigaskór eru hæstmóðins í sumar, enda afar flottir og glaðlegir sem sumarskófatn- aður.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.