Fréttablaðið - 30.04.2012, Side 54
30. apríl 2012 MÁNUDAGUR30
GOTT Á GRILLIÐ
„Ég hef grillað pizzu með aðstoð
álpappírs og útkoman var
hreint út sagt stórkostlegt.“
Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarspek-
ingur Íslands.
Tónlistarmaðurinn 7oi, sem heit-
ir réttu nafni Jóhann Friðgeir
Jóhannsson, er á leið í sína fyrstu
tónleikaferð. Hún hefst í Pól-
landi í byrjun maí og spilar hann
þar fimm sinnum á jafnmörgum
dögum.
Aðspurður segist hann aldrei
hafa sóst mikið eftir því að spila
á tónleikum á fimmtán ára ferli
sínum. „Kannski er þetta smá-
vægileg feimni eða eitthvað þann-
ig. Maður er vanur því að sitja einn
fyrir framan tölvuna. Ég geri þetta
mér til ánægju en ef öðrum finnst
þetta skemmtilegt líka er það bara
gaman,“ segir Jóhann, sem spilar
lágstemmda tónlist með rafrænum
áhrifum.
Hann vill því ekki meina að
draumur sé að rætast með ferðinni
til Póllands. „Ég er svo sem ekkert
að sækjast eftir neinni frægð eða
frama. Mér finnst bara gaman að
lenda í ævintýri, það er aðalástæð-
an fyrir því að ég er til í þetta.“
Jóhann hefur gefið út sjö plöt-
ur á eigin vegum síðan 1999 og er
með eina nýja í bígerð. Hann er
menntað tónskáld og hefur samið
efni fyrir Íslenska dansflokkinn í
gegnum árin.
Skúli mennski spilar með honum
í Póllandi og fljúga þeir saman
á vegum verkefnisins Músík
Express. Skúli ætlar jafnframt að
halda stutta tónleika í flugvélinni
á leiðinni út. -fb
Sækist ekki eftir frægð og frama
Á LEIÐ TIL PÓLLANDS 7oi er á leiðinni í
sína fyrstu tónleikaferð á ferlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Guðbjörg Heiða Sigurðardóttir rekur versl-
unina Dalíu í Kaupmannahöfn. Verslunin var
opnuð í byrjun mars og selur meðal annars
íslenska hönnun sem fellur vel í kramið hjá
dönskum frændum okkar.
Guðbjörg Heiða hefur búið í Danmörku í rúm
fimm ár og vann áður á skemmtistað og kaffi-
húsi þar sem hún lærði sitthvað um fyrirtækja-
rekstur. Hún kveðst alltaf hafa haft gaman af
smádóti og hönnun og að það hafi lengi verið
draumur hennar að opna litla verslun.
„Mamma átti blómabúðina Dalíu í Fákafen-
inu og búðin er eiginlega tileinkuð henni. Ég
sel litríkar gjafavörur og annað smálegt inn
á heimilið sem og íslenska hönnun og eigin
hönnun sem nefnist Made by Dalía. Danir
eru mjög hrifnir af öllu sem telst heimagert
og lífrænt þannig að íslenska hönnunin hefur
slegið í gegn,“ útskýrir Guðbjörg Heiða sem
naut aðstoðar vina og vandamanna við að
koma búðinni af stað. „Þetta var alls ekki erf-
itt með hjálp fjölskyldu og vina, en án þeirra
hefði þetta aldrei verið hægt. Þau unnu með
mér myrkranna á milli og það tók okkur ekki
nema tvær vikur að koma búðinni í stand og
opna hana.“
Verslunin stendur við Jægersborggade á
Norðurbrú þar sem má einnig finna kaffihús,
karamelluverksmiðju, litlar fataverslanir og
bakarí. Guðbjörgu líkar lífið í Kaupmanna-
höfn vel og viðurkennir að hún verði æ dansk-
ari í sér með hverju árinu sem líður. „Því
lengur sem maður býr hér því fastari verða
ræturnar og maður verður mjög danskur í
sér. En auðvitað er alltaf gott að komast heim
til Íslands inn á milli.“ -sm
Danir elska íslenska hönnun
LÍKAR LÍFIÐ Í DANMÖRKU Guðbjörg Heiða Sigurðar-
dóttir opnaði verslunina Dalíu í Kaupmannahöfn í
mars. Hún selur meðal annars íslenska hönnun sem
fellur vel í kramið hjá Dönum.
„Við förum inn í fátækustu hverfin
rétt fyrir utan höfuðborg Kenýa,
Nairobi, og störfum með fólkinu
þar,“ segir Steinunn Helga Sig-
urðardóttir hjúkrunarfræðinemi.
Tólf bekkjasystur af þriðja
ári í hjúkrunarfræði í HÍ halda
til Afríku til að vinna sjálfboða-
starf. Stelpurnar halda út þann
12. maí næstkomandi og verða
í tæpan mánuð. Þær fara utan á
eigin vegum en vinna fyrir sam-
tökin The Kenya Project og Adv-
ance Africa.
„Við ákváðum að skipta okkur
í tvo hópa en verðum samt allar
á svipuðu svæði og eigum eflaust
eftir að hittast mikið,“ segir Stein-
unn. Hugmyndina fengu stelpurn-
ar eftir að hópur hjúkrunarfræði-
nema fór út í sams konar verkefni
í fyrra. „Þetta hljómaði svo spenn-
andi hjá þeim og þær sögðust hafa
lært svo mikið af þessu að við
ákváðum að fara líka. Þar sem við
erum að fara á sama stað og þær
fóru á í fyrra vitum við líka nokk-
urn veginn út í hvað við erum að
fara – höldum við,“ bætir hún við
og hlær.
Meðal þess sem stelpurnar
koma til með að gera verður að
vinna á fæðingardeildum, sinna
almennum hjúkrunarstörfum og
heimsækja munaðarleysingjahæli
og miðstöð þar sem HIV-smitaðar
konur geta leitað sér leiðsagnar og
stuðnings.
Stelpurnar sjá algjörlega um að
fjármagna ferðina sjálfar. „Við
leituðum að styrkjum en það gekk
mjög illa svo við erum bara búnar
að vera duglegar að selja klósett-
pappír. Auk þess héldum við bingó
um daginn og það gekk rosalega
vel, svo það munar um það,“ segir
Steinunn og bætir við að ýmis
fyrirtæki hafa veitt þeim stuðn-
ing með gjöfum fyrir þær að taka
með sér út. „Smokkur.is gaf okkur
til dæmis 1.200 smokka, Rekstrar-
vörur og Birgðastöð Landspítalans
gáfu okkur alls kyns hjúkrunar-
vörur og A4 gaf okkur stílabækur
og ritföng,“ segir hún.
Stelpurnar klára síðasta próf-
ið rúmum sólarhring áður en
þær leggja af stað til Kenýa og
þurftu því að ganga frá flestu
áður en þær lögðust í próflestur-
inn. „Allar sprautur, tryggingar
og slíkt er komið á hreint og við
nokkurn veginn tilbúnar að stíga
um borð í flugvélina,“ segir Stein-
unn spennt.
tinnaros@frettabladid.is
STEINUNN HELGA SIGURÐARDÓTTIR: FÖRUM INN Í FÁTÆKUSTU HVERFIN
Tólf hjúkkunemar til Kenýa
FARA TÓLF SAMAN Þær Steinunn, Lilja, Jóna, Sigrún, Elísabet, Auður, Dagrún, Auðna, Melkorka, Guðrún, Björk og Lóa ætla að
dvelja í fátækrahverfunum við Nairobi í mánuð og vinna sjálfboðastarf.
Í
2012