Fréttablaðið - 02.05.2012, Page 8
2. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR8
Láttu hjartað ráða
„Ítalska ólífuolían mín er heilnæm og gerir líkamanum
einstaklega gott, jafnt útvortis sem innvortis.“
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is
1. Hvað hefur Of Monsters and
Men selt mörg eintök af plötu sinni?
2. Hver skoraði sigurmark Man.
City gegn Man. Utd.?
3. Hver er forstöðumaður íþrótta-
valla í Kópavogsbæ?
SVÖR
1. Um 100 þúsund eintök. 2. Vincent
Kompany. 3. Ómar Stefánsson
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Marel gekk
nýlega frá sölu fyrirtækisins í
fiskiðnaði með samningum við
fiskframleiðanda í norðaustur-
hluta Kína. Um er að ræða nýja
flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður
sérstaklega sniðin að þörfum kín-
verskra fiskframleiðenda.
Fjárhæð samningsins og nafn
kínverska fyrirtækisins hefur
ekki verið gefið upp en samn-
ingurinn samsvarar 1-2% af
ársveltu Marel. Ef velta fyrir-
tækisins árið 2011 er höfð til hlið-
sjónar, um 700 milljónir evra, er
samningurinn 1,1 til 2,2 milljarða
króna virði. Flæðilínan er meðal
þess hátæknibúnaðar sem Marel
sýndi á sjávarútvegssýningunni í
Brussel í síðustu viku.
Stella Björg Kristinsdóttir,
markaðsstjóri Marel fyrir fisk-
iðnað, segir að aðeins sex mán-
uðir séu liðnir frá því að svipað
kerfi var selt til kínversks fram-
leiðanda og það sé til marks um að
Marel hafi tekist að þróa vöru sem
hentar kínverskum fyrirtækjum,
en markaður tengdur fiskiðnaði í
landinu er risavaxinn. Fyrr, eða
árið 2006, seldi Marel kínverska
matvælaframleiðslufyrirtækinu
Pacific Andes upplýsingakerfi
fyrir risaverksmiðju í Qingdao-
héraði þar sem 13 þúsund manns
starfa. Í héraðinu hefur Marel jafn-
framt byggt upp fiskiðnaðarsetur
sem á heiðurinn að samningnum
nú. Setrið mun gegna lykilhlut-
verki við uppbyggingu á starfsemi
Marel í Kína þar sem miklu skiptir
að viðskipta vinir hafi aðgang að
þjónustu nálægt sínu starfssvæði.
„Í Kína byggjast viðskipti ekki
síst á orðstír og það er erfitt að
fá aðgang að þessum viðskipta-
vinum. Við höfum á undan förnum
árum unnið að því að byggja upp
nafn fyrirtækisins sem er að
skila árangri,“ segir Stella Björg
en aðalskrifstofa fyrirtækisins
er í Peking. Hún segir jafnframt
að aðstæður á vinnumarkaði og
hækkandi framleiðslukostnaður í
Kína hafi skapað aukna þörf fyrir
sjálfvirkni í verksmiðjum þar í
landi.
Auk Marels komu íslensku fyrir-
tækin 3X Technology og Skaginn
að því að gera verkefnið að veru-
leika og landa stærsta einstaka
samningnum sem fyrirtækið hefur
gert í fiskiðnaði. „Við fengum í lið
með okkur tvö íslensk fyrirtæki
sem koma inn með sína sérþekk-
ingu. Þetta er því stórt samvinnu-
verkefni og afar ánægjulegt að
fleiri fyrirtæki komist að í svona
viðskiptum.“ svavar@frettabladid.is
Risastór samningur
við fyrirtæki í Kína
Hátæknifyrirtækið Marel hefur náð samningum við kínverskan fiskframleið-
anda um kaup á flæðilínu fyrir hvítfisk. Viðskiptin eru byggð á samstarfi við
tvö önnur íslensk fyrirtæki. Virði samningsins er á bilinu 1,1 til 2,2 milljarðar.
TÆKNI FRÁ MAREL Samningurinn nú er sá þriðji sem fyrirtækið hefur náð á undan-
förnum árum en möguleikarnir eru gríðarlegir í þessu fjölmenna landi. MYND/MAREL
Körlum, sem vinna við uppeldi og
menntun leikskólabarna, hefur
fjölgað um rúm 28 prósent frá því
í desember 2009. Þá voru þeir
197 en í desember 2011 voru þeir
orðnir 253 talsins. Konum í sömu
störfum fækkaði hins vegar um
rúm þrjú prósent á sama tíma,
eða um 154.
Körlum fjölgar
MENNTUN Rúmlega nítján þúsund
börn voru í leikskóla hér á landi
í desember og hafa þau aldrei
verið fleiri. Þetta kemur fram
í tölum Hagstofu Íslands. Leik-
skólabörnum fjölgaði um 198
milli ára, eða eitt prósent.
Starfsfólki í leikskólum
fjölgaði um hálft
prósent á þessu
tímabili og í
desember í fyrra
störfuðu 5.515
manns við þá. Sé
litið til lengra
tímabils hefur
leikskólabörnum
landsins fjölgað
um 443 frá því í
desember 2009 en
á sama tímabili
fækkaði starfsfólki um 124.
Leikskólum fækkaði um tólf
milli áranna 2010 og 2011 og
voru í desember 265 starfandi
leikskólar á landinu.
Fækkunina má rekja til sam-
eininga á leikskólum í Reykja-
vík. Um 82 prósent barna á
aldrinum eins til fimm ára
sækja leikskóla, sem er sama
hlutfall og áður. - þeb
Aldrei fleiri leikskólabörn:
Færra starfsfólk
en fleiri börn
FERÐAÞJÓNUSTA Vestmannaeyja-
bær hyggst í sumar leggja í
miklar framkvæmdir við Eld-
heima, sem er gosminjasafn þar
sem verið er að grafa ofan af
húsum sem grófust undir vikur í
eldgosinu í Eyjum árið 1973.
Fyrirhugað er að grafa upp og
byggja yfir rústir íbúðar hússins
við Gerðisbraut 10 sem síðan
verður þungamiðja safnsins.
Byggingunni er ætlað að gefa
sýningargestum kost á því að
upplifa gosið og sögu þess. Bygg-
ingin verður á tveimur hæðum og
gólfflöturinn um 1.200 fermetrar
á tveimur hæðum.
Eldheimar eru ein af megin-
stoðum menningarmála í Eyjum
en Sagnheimar húsa sögusýningu
eyjanna og Sæheimar verður
umgjörð um nýtt og glæsilegt
fiskasafn. - shá
Uppbygging í Eyjum:
Kraftur settur í
að klára safnið
VEISTU SVARIÐ?
er fækkun
leikskóla á
milli áranna
2010 og
2011.
12