Fréttablaðið - 02.05.2012, Qupperneq 10
2. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Forseti ASÍ átelur stjórnvöld harð-
lega fyrir linku í atvinnumálum og
útþynnta Rammaáætlun. For maður
BSRB gagnrýnir niðurskurð hjá
hinu opinbera á landsbyggðinni.
Atvinnuleysi og skuldastaða heimilanna
var forystumönnum launþega ofarlega
í huga á baráttudegi verkalýðsins í gær.
Kallað var eftir aðgerðum frá stjórn völdum
í þágu atvinnuuppbyggingar og fólk var
misgagnrýnið.
Gamaldags viðhorf stjórnvalda
Í 1. maí-ávarpi Gylfa Arnbjörnssonar, for-
seta Alþýðusambands Íslands, er fast skotið
á ríkisstjórnina. Gylfi segir að ASÍ hafi frá
bankahruni lagt til ýmsar leiðir til að halda
uppi atvinnustigi í landinu.
„Ein var að fá lífeyrissjóði til að fjár-
magna samfélagslega mikilvægar og hag-
kvæmar framkvæmdir þar sem litið yrði
til óhefðbundinna fjármögnunarleiða sem
ekki myndu íþyngja ríkissjóði. Það voru
mikil vonbrigði að stjórnarflokkarnir
skyldu nálgast hugmyndir um einkafram-
kvæmdir með gamaldags viðhorfum,“ segir
Gylfi. Þess vegna hafi mun minna orðið úr
framkvæmdum, til dæmis í vega- og jarð-
gangagerð, en vonir hafi staðið til.
Þá segir hann tillögu stjórnarflokkanna
að Rammaáætlun sama marki brennda.
Hún sé forsenda fyrir því að hægt sé að
gera áætlanir um uppbyggingu orku-
frekrar en umhverfisvænnar atvinnu-
starfsemi. „Eftir að mikil og góð vinna
hafði verið lögð í verkið var dapurlegt
að sjá málið þynnast út í bakherbergjum
stjórnar flokkanna með niðurstöðu sem er
ekki í samræmi við þá faglegu vinnu sem
áður hafði verið unnin.“
Gylfi gagnrýnir enn fremur hvað
bankarnir hafa verið lengi að endurskipu-
leggja skuldir heimila og fyrirtækja.
Vegna þessa glími Íslendingar enn við
sama vandann í atvinnumálum og frá því
skömmu eftir hrun. Til marks um það hafi
engin fjölgun orðið á störfum frá fyrsta árs-
fjórðungi 2009 til fyrsta ársfjórðungs 2012.
Heimilin urðu útundan
Þuríður Einarsdóttir, formaður Póstmanna-
félags Íslands, flutti ræðu á Ingólfstorgi í
gær og sagði að ekki væri hægt að vega
meira að velferðarkerfi landsins en þegar
hefði verið gert. „Afleiðingar þess myndu
valda óbætanlegum skaða á lífs kjörum
landsmanna.“ Þá sagði hún öllum ljóst að
við endurskipulagningu sam félagsins í
kjölfar hrunsins hefðu heimilin orðið út
undan.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB,
tók í sama streng og Þuríður á hátíðar-
höldunum á Húsavík. Öflugt velferðarkerfi
væri undirstaða samfélagsins en forsenda
þess væri að atvinnulífinu væru búin nægi-
lega góð skilyrði.
Elín Björg gagnrýndi niðurskurð hjá
opinberum stofnunum á landsbyggðinni.
„Með því að leggja heilbrigðisstofnanir í
minni byggðarlögum af er ekki aðeins verið
að fækka störfum á þeim stöðum heldur
einnig skerða lífsgæði þeirra sem þar búa,“
sagði hún. „Fjölbreytt atvinnulíf verður að
eiga sér stað á landinu öllu til þess að líf-
vænlegt sé í öllum byggðum landsins og á
landinu yfir höfuð.“ Elín Björg sagði það
þó engu að síður trú sína að bjartari tímar
væru framundan á Íslandi.
stigur@frettabladid.is
Stjórnvöld gagnrýnd fyrir atvinnustefnu
Fimmtudagur » GS SkórMánudagur Þriðjudagur » 66° Norður
Næstum 30 þúsund manns nota Aukakrónur til að kaupa allt frá matvælum til trygginga
hjá tæplega 300 fyrirtækjum um land allt. Byrjaðu að safna Aukakrónum strax í dag.
„Að nota Aukakrónur
er eiginlega eins einfalt
og það getur verið“
MISMIKIL ÓÁNÆGJA Stjórnvöld voru gagnrýnd nokkuð harðlega fyrir stefnu sína í atvinnumálum og skort á
úrlausnum á skuldastöðu heimilanna. Sumir töldu þó ástæðu til bjartsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL