Fréttablaðið - 02.05.2012, Síða 24

Fréttablaðið - 02.05.2012, Síða 24
2. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR20 timamot@frettabladid.is GARÐAR THÓR CORTES söngvari er 38 ára. LILY ALLEN söngkona er 27 ára. DAVID O‘LEARY knattspyrnu- þjálfari er 54 ára. DONATELLA VERSACE fatahönnuður er 57 ára. Á þessum degi árið 1803 keyptu Bandaríkin Louisiana af Frökkum. Ráðstöfunin reyndist hin mestu kostakaup enda tvöfaldaðist stærð Banda- ríkjanna við viðbótina. Áhugi gamla heimsins á Louisiana náði aftur á sautjándu öldina þar sem franskir landnemar höfðu komið sér fyrir og kannað landið í kringum Mississippi-ána. Mikilvægi svæðisins var óum- deilanlegt og þá sérstaklega ármynni Mississippi upp að Nýju Orleans og áin sjálf sem Banda- ríkjamenn notuðu sér óspart til vöruflutninga. Til þess að þurfa ekki að greiða tolla eða flutnings- gjöld vegna afnota á svæðinu var Bandaríkjunum mjög í hag að eignast svæðið. Ljóst er að Banda- ríkjamenn fengu þetta gríðarstóra landsvæði á góðu verði og hafa margir velt því fyrir sér hvaða hvatir hafi legið að baki ákvörðun Napóleóns Bónaparte um sölu Louisiana. Af samningi Bandaríkjanna og Frakka er ekki hægt að ráða nákvæm mörk landsvæðisins sem kallað var Louisiana. Innan svæðisins falla þó óumdeilanlega nútímaríkin Louisiana, Missouri, Arkansas, Iowa, Norður-og Suður-Dakóta, Nebraska og Oklahoma, og stærstur hluti land- svæðis Kansas, Colorado, Wyoming, Montana og Minnesota. ÞETTA GERÐIST: 2. MAÍ 1803 Bandaríkin kaupa Louisiana KNATTSPYRNUMAÐURINN DAVID BECKHAM á afmæli í dag. „Foreldrar mínir hafa verið til staðar fyrir mig, allt frá því ég var sjö ára.” 37 „Dagurinn leggst vel í mig. Ég hef ekki gert nein plön nema smá veislu fyrir nánustu fjölskyldu á laugar- daginn og ég vona að það fari nú enginn að skipuleggja neitt fyrir mig,“ segir Sigurður Grétarsson, rafvirki, hestamaður og fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, sem fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Sigurður, sem á 46 A-landsliðs- leiki að baki fyrir Íslands hönd (þann síðasta árið 1993), ólst upp sem leik- maður í Breiðabliki áður en hann fór utan í atvinnumennsku með liðum á borð við Luzern og Grasshopper í Sviss og fleirum. Hann sneri svo heim aftur fyrir tímabilið 1996, gerðist spilandi þjálfari með Val og loks Breiðbliki, þar sem hann lokaði hringnum. Síðan knattspyrnuferlinum lauk hefur hann starfað sem rafvirki, en þá iðn hafði hann lært áður en fót- boltinn tók yfir á sínum tíma. „Faðir minn er rafvirkjameistari og við erum þrír saman hjá fyrirtæki sem heitir Rafnýting. Það gengur ágætlega, þótt fremur rólegt hafi verið eftir hrun eins og annars staðar,“ segir Sigurður, sem þessa dagana vinnur hörðum höndum að undirbúningi nýs ævin týris sem tengist ferðamanna bransanum, iðnaði sem Sigurði þykir spennandi. „Ég, Ómar Steinar Rafnsson æskufé- lagi minn og fjölskyldur okkar erum að fara í gang með hestaferðir fyrir túrista. Við erum með land uppi í Landssveit, sem er gríðarlega fal legur staður með mörgum góðum reiðleiðum, og þar erum við líka með stóran bústað þar sem við hyggjumst hýsa ferðalang- ana. Ómar er fæddur og uppalinn á hestum og hefur verið leiðsögu maður í mörgum hestaferðum, en sjálfur hef ég verið á kafi í hestamennsku í tvö ár. Í sjálfu sér er ég byrjandi, en með vanan mann með mér sem veit út í hvað við erum að fara. Við ætlum að byrja á þessu í sumar og reyna svo að auka við eftir því sem á líður. Þetta er spennandi og fer vonandi vel af stað, en auk þess er ekki mikið að gerast í öðrum geirum. Einhvern veginn verður maður að reyna að bjarga sér,“ segir Sigurður. Aðspurður segist Sigurður ekki hafa snert fótbolta í heilt ár vegna þess hversu slæmur hann er orðinn í hnénu. „Ég get ekkert sparkað lengur og sakna fótboltans auðvitað, en ég held að það sé kominn tími á að hætta alveg að stunda hann. Ég verð að hugsa um framtíðina, því ég vil nú geta labbað eða skokkað þegar ég verð orðinn sextugur. Ég fylgist þó ágæt- lega með boltanum, bæði liðunum sem ég spilaði með í útlöndum og svo Breiðabliki. Mér líst ágætlega á sumarið hjá Blikunum, þeir hafa misst marga lykilmenn en það kemur maður í manns stað. Liðið er það gott að það ætti að geta endað um miðja deild eða jafnvel ofar.“ kjartan@frettabladid.is SIGURÐUR GRÉTARSSON FYRRUM ATVINNUMAÐUR: ER FIMMTUGUR Í DAG Fylgist ágætlega með boltanum FIMMTUGUR Sumrinu eyðir Sigurður að miklu leyti í Landssveit, þar sem hann hyggst ríða út með ferðamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ný sýning á verkum myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar, Inn í kviku, verður opnuð í Ásmundarsafni við Sigtún laugar- daginn 5. maí klukkan 16. Við sama tilefni verður endurtekinn „gjörningur“ í höggmyndagarðinum, sem Ásmundur taldi að kenndi börnum að meta og þykja vænt um stytturnar. Sýningin Inn í kviku er þríþætt og dregur fram ólíkar hliðar á Ásmundi hvað varðar inntak, form og tímaskeið. Leit- ast er við að nýta húsið í Sigtúni sem rök- réttan hluta af sýningunni og umgjörð um hana, ásamt höggmyndagarðinum í kring- um húsið sem geymir mörg af þekktustu verkum listamannsins. Sýningarstjórar eru Steinunn G. Helga- dóttir myndlistarmaður og Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur. Sunnudaginn 13. maí klukkan 14 munu sýningarstjóranir fara um sýninguna og ræða við gesti. Inn í kviku Ásmundar ÁSMUNDUR SVEINSSON Ný sýning á verkum Ásmundar verður opnuð í Ásmundarsafni á laugardag. AFMÆLISBÖRN Merkisatburðir 1615 Þrettán skip farast og áttatíu menn drukkna í aftakaveðri á Breiðafirði. 1822 Skipbrotsmenn af tveimur erlendum skipum komast til lands; sextán manns á Vopnafirði og sex manns við Glett- inganes. Bæði skipin höfðu farist í hafís. 1968 Maíuppþotin í París hefjast með því að stjórn Parísarhá- skóla í Nanterre ákveður að loka skólanum vegna árekstra við stúdenta. 1970 Búrfellsvirkjun vígð og formlega tekin í notkun. 1992 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra undirritar samn- inginn um Evrópska efnahagssvæðið. Samningurinn er um tuttugu þúsund blaðsíður. 1997 Tony Blair tekur við embætti forsætisráðherra Bretlands eftir átján ára stjórnartíð Breska íhaldsflokksins. Elskuleg systir, mágkona og frænka, ELÍN ANNA EYVINDS Hátúni 12, lést sunnudaginn 29. apríl á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Útförin fer fram fimmtudaginn 3. maí kl. 16.00 frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Helgi Eyvinds Sæmundur Runólfsson og systkinabörn. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Okkar ástkæri mágur og frændi, GUNNAR PÉTURSSON er látinn. Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 3. maí klukkan 13.00 frá Fossvogskapellu. Þórey Ósk Ingvarsdóttir Halldóra Lára Ásgeirsdóttir Pétur Ásgeirsson Gunnar Ásgeirsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR lést á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum að kvöldi laugardagsins 21. apríl sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 4. maí kl. 15.00. Oddur Helgason Anna Oddsdóttir Steinar Friðgeirsson Halldóra Oddsdóttir Jón B. Björgvinsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.