Fréttablaðið - 02.05.2012, Side 30

Fréttablaðið - 02.05.2012, Side 30
2. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR26 popp@frettabladid.is James Cameron hefur gefið í skyn að framhald ævintýra- myndarinnar Avatar verði tekið upp í Kína. Leikstjórinn hefur unnið við handrit myndarinnar síðan Avatar sló í gegn 2009. „Ef þetta gengur upp yrði það mjög hagkvæmt fyrir kín verskan kvikmyndaiðnað. Ef við tökum þar upp mynd eins og Avatar, sem er alfarið tekin upp í kvikmynda- veri, þá myndum við ekki vera í landinu vegna landslagsins,“ segir Cameron. „Við myndum mæta þangað með sýndarfram- leiðslu og nota þrívíddartækni sem væri góð tilbreyting fyrir kvikmyndaiðnaðinn þarna.“ Kína kemur til greina AVATAR Framhald ævintýramyndarinnar verður hugsanlega tekið upp í Kína. Sylvester Stallone ætlar að setja rauða hárbandið á kollinn á sér á nýjan leik því hann er með fimmtu hasarmyndina um Rambo á teikniborðinu. Fjögur ár eru liðin síðan Stallone lék síðast Rambo og hlaut sú mynd ágætar viðtökur. Hinn 65 ára Stallone segist vera að semja uppkast að nýju hand- riti og þar verði Rambo kvaddur fyrir fullt og allt. Þar áttar hann sig á því hver örlög hans eru. „Þau eru ekki að vera bóndi eða í felum heldur að kveðja sem hetja í fullum herklæðum,“ sagði Stallone við MTV. Rambo í fimmta sinn STALLONE Sylvester Stallone er að undirbúa fimmtu Rambo-myndina. LEIKKONAN ANNE HATHAWAY fer með hlutverk í Les Miserables sem verið er að taka upp í London um þessar mundir. Leikkonan þarf að þenja radd- böndin daglega, enda er Les Miserables söngleikur, og til þess að halda röddinni mjúkri og heilbrigðri skolar hún munninn með eggjahvítum á hverjum morgni. GUY FIERI HEIMSÆKIR EINSTAKA VEITINGASTAÐI Í DINERS, DRIVE-INS & DIVES Á FOOD NETWORK | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.