Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 1
STJÓRNSÝSLA Nýjar reglur Evrópu-
sambandsins (ESB) sem Íslandi
ber að taka upp vegna samn ingsins
um Evrópska efnahags svæðið
(EES) stangast á við íslensku
stjórnarskrána, samkvæmt mati
sérfræðinga í stjórnskipunarrétti.
Með reglunum setti ESB á fót
stofnanir sem hafa eftirlit með
fjármálamörkuðum Evrópuríkja.
Stofnanirnar hafa meðal annars
vald til að svipta banka starfsleyfi
og taka fram fyrir hendur fjár-
málaeftirlita Evrópuríkja. Ekkert
í stjórnarskránni heimilar svo víð-
tækt framsal á valdi ríkisins sam-
kvæmt niður stöðu lagaprófess-
oranna Bjargar Thorarensen og
Stefáns Más Stefánssonar.
Álitsgerðin sýnir að Ísland hefur
tvo kosti í stöðunni, segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra. „Annars vegar að ráðast í að
breyta stjórnarskránni með þeim
hætti að heimilt sé að framselja
vald til yfirþjóðlegra stofnana.
Hins vegar að enda að lokum í
því að EES-samningurinn verði
óvirkur og við jafnvel kunnum að
hrökklast út úr honum.“
Össur segir seinni kostinn ekki
koma til greina. „Ég tel að svar
okkar eigi að vera að reyna að ná
samstöðu um að ná fram breyting-
um á stjórnarskránni.“
Össur segir að þær breytingar
sem gerðar hafa verið á EES-
samningnum frá því hann var sam-
þykktur árið 1992 geti þegar hafa
leitt til þess að samningurinn eins
og hann er framkvæmdur sé ekki í
samræmi við stjórnarskrána.
„Ég er þeirrar skoðunar að EES-
samningurinn sé kominn út fyrir
það sem stjórnarskráin heimilar,“
segir Össur. „Með þessu máli sem
nú er komið upp er ljóst að við
getum ekki lengur innleitt reglur
sem okkur ber samkvæmt EES-
samningnum án þess að brjóta
stjórnarskrána. Þess vegna þarf að
breyta henni, nema menn séu til-
búnir að fórna EES-samningnum,
sem ég teldi mikið óheillaspor sem
enginn vill stíga.“ - bj / sjá síðu 10
Ég er þeirrar skoðunar
að EES-samningurinn
sé kominn út fyrir það sem
stjórnarskráin heimilar.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Lífið
veðrið í dag
4. maí 2012
104. tölublað 12. árgangur
I nnan nokkurra vikna mun norðlenski matreiðslumaðurinn Friðrik V. opna nýjan veitingastað við Laugaveg 60 í Reykjavík. Friðrik rak um árabil, ásamt eiginkonu sinni Arnrúnu Magnús dóttur, veitingastaðinn Friðrik V. á Akureyri við mjög góðar undirtektir. Friðrik segir nýja staðinn byggja á grunni þess eldri. „Við erum bara að halda áfram því sem við gerðum í tíu ár fyrir norðan. Þar var útgangs punkturinn virðing fyrir hrá efninu en við einbeitum okkur sem fyrr að íslensku hráefni.“ Friðrik V. á Akur eyri var þekktur fyrir áherslu sína á ferskt hráefni af Eyjafjarðar-svæðinu. Árið 2006 var staðurinn valinn á lista Slow Food yfir 100 áhugverðustu sv ði
framleiðendum betur. „Ég var orðinn
sérfræðingur í framleiðslu Norðurlands
en var eiginlega yfir mig hrifinn af því
sem ég sá í ferð minni um landið. Það
er fjöldi frábærra smáframleiðanda um
allt land.“
DRAUMUR HINS SKAPANDI MATREIÐSLUMANNSNýi staðurinn er lítill og nettur að sögn
Friðriks og tekur einungis 32 manns í sæti. Hann segir þau hjónin verða mikið á staðnum og hann eigi eftir að
verða persónulegur fjölskyldustaður þar sem hráefnið er í fyrirrúmi. Gestum
verður boðið upp á þ
NÝR STAÐUR Hjónin Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir opna nýjan veitingastað eftir nokkrar vikur.
MYND/PJETUR SIGURÐSSON
NÝR HEIMAVÖLLUR EN SAMA NAFNSNÝR AFTUR Nýr veitingastaður undir stjórn Arnrúnar Magnúsdóttur og Frið-
riks V. Karlssonar, sem er betur þekktur sem Friðrik V., opnar í Reykjavík.
ÞJÓÐLEGT„Í hádeginu verður boðið upp á tvo rétti, svipað og var gert á Akureyri. Annar rétturinne ll
HUMARSALAT & H ÍNVÍTV 502.2 kr.
ngó, um, ma
lduðum smátómöt
Humarsalat með hæge
tumhew-hne
k og ristuðum cas
sultuðum rauðlau
ínsglasi.
ásamt hvítv
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt hvítvínsglasi.
FERSKT &
FREISTANDISPENNANDI
SJÁVARRÉTTATILBOÐ
LJÚFFENG BERMargir rækta eigin jarðarber hér á landi með góðum
árangri. Heimaræktuðu berin eru auðvitað best. Jarðar-
ber eru stútfull af næringarefnum. Þau eru kaloríufrí en
innihalda járn, kalk, C- og A-vítamín auk andoxunarefna
sem eru vörn gegn ýmsum sjúkdómum.
4. MAÍ 2012
RÁÐ KVENNA TIL
AÐ YFIRSTÍGA ÁLAG
NÝÚTSKRIFAÐIR
HÖNNUÐIR ÚR LHÍ
SUMARSALAT
BRYNJU NORDQUIST
Friðrik V. snýr aftur
Friðrik V. er kominn til höfuðstaðarins
og opnar veitingahús á Laugavegi á
næstunni. Íslenskt hráefni verður í
aðalhlutverki.
Minnast einvígisins
Komið til móts við
venjulegt skákáhugafólk á
Firmamótinu í Ráðhúsinu.
tímamót 20
NÝR
ÍSLENSKUR
KRIMMI
Semja tónlist í sumar
Hljómsveitin Hjaltalín
semur tónlist fyrir þöglu
myndina Days of Gray.
popp 38
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, segir það sérkenni legan
málflutning að útgerðin sé ekki aflögufær um
frekari greiðslur til samfélagsins. Hún hafi búið við
góð ár í greininni og staða hennar batnað til muna.
„Nú höfum við á borðinu gögn um afkomu greinar-
innar síðastliðin þrjú, fjögur ár og hún hefur verið
mjög góð. Við sjáum að skuldir hafa lækkað og ef við
miðum við 2008 og áætlaða stöðu í árslok 2012 hafa
þær lækkað um 150 til 170 milljarða. Eigið fé grein-
arinnar hefur aukist um yfir 200 milljarða og fram-
legðin hefur farið langleiðina að því að tvö faldast frá
því sem hún var fyrir 2008, eða um 70%.“
Tveir sérfræðingar sem unnu skýrslu um kvóta-
frumvörp stjórnvalda fyrir atvinnumálanefnd
Alþingis setja þar fram margvíslega gagnrýni á
þau. Þeir telja áformuð veiðigjöld of há, og að þau
muni leggjast misþungt á fyrirtæki. Þá byggi gjöld-
in á tveggja ára gömlum útreikningum, enda ekki
hægt að nota nýrri tölur með góðu móti. Þeir telja að
verði áformað veiðigjald lækkað um helming myndu
flest sjávarútvegsfyrirtæki ráða við það.
Spurður hvort það gæti orðið lending í málinu
segir Steingrímur: „Ég ætla ekki að tjá mig um ein-
stakar tölur í þessum efnum, heldur útfæra aðferð-
ina.“ - kóp / sjá síðu 12
Steingrímur J. Sigfússon segir útgerðarmenn stunda hræðsluáróður:
Sjávarútvegurinn í betri stöðu
BJARTVIÐRI Í dag verður yfirleitt
hæg norðlæg eða breytileg átt.
Léttskýjað víðast hvar og þurrt. Hiti
2-12 stig, mildast SV-til.
VEÐUR 4
6
67
7
8
Telja nýjar EES-reglur ekki
standast stjórnarskrána
Íslensk stjórnvöld geta ekki innleitt reglur ESB um nýjar eftirlitsstofnanir með fjármálamörkuðum þar sem
það myndi færa of mikið vald til erlendra stofnana. Þarf að breyta stjórnarskránni segir utanríkisráðherra.
Einu skrefi frá titlinum
HK er komið í 2-0 í
baráttunni við FH um
Íslandsmeistaratitilinn í
handbolta.
sport 34
DANMÖRK Talsverð andstaða er
við hugmyndir danskra stjórn-
valda og atvinnurekanda um að
færa kóngsbænadag, sérstakan
danskan frídag sem ber upp á
fjórða föstudag eftir páska, þar
á meðal í dag, yfir á sunnudaga.
Yfirlýst markmið með því að
færa daginn af virkum degi er
að auka framleiðni í atvinnu-
lífinu um 60 milljarða íslenskra
króna, en skoðanakannanir sýna
að 56 prósent Dana eru mót-
fallin hugmyndinni.
Kóngsbænadagur hefur
verið við lýði í Danmörku frá
sautjándu öld og var sömuleiðis
fullgildur helgidagur hér á landi
allt fram til ársins 1893.
Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur segir í Sögu daganna
að kóngsbænadagur hafi átt
að vera allsherjar iðrunar- og
bænadagur.
Þá skyldu allir fasta og hætta
vinnu klukkan sex og ganga til
guðshúss. - þj
Danir deila um frídag:
Flestir vilja hafa
kóngsbænadag
BLESSUÐ SÓLIN ELSKAR ALLT Segja má að fyrsti sólbaðsdagur sumarsins hafi verið í gær
og létu sóldýrkendur sig ekki vanta í laugarnar í Laugardal. Íslendingar verða sólarmegin í lífinu fram yfir helgi ef
veðurspár rætast, en þó er ekki gert ráð fyrir að heitt verði í veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN