Fréttablaðið - 04.05.2012, Síða 4
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR4
Save the Children á Íslandi
GENGIÐ 03.05.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
225,3684
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,62 125,22
201,69 202,67
163,65 164,57
21,999 22,127
21,676 21,804
18,447 18,555
1,5499 1,5589
192,55 193,69
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
ALÞINGI Alþingi mun starfa fram í
júní eða júlí gerist þess þörf. Þetta
sagði Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra í þinginu í gær.
Hún sagði þó að vel ætti að vera
hægt að ljúka þingstörfum fyrir
31. maí eins og starfsáætlun gerir
ráð fyrir, ef vilji væri fyrir hendi.
Stjórnarliðar og stjórnar-
andstöðuþingmenn tókust á í
umræðum um störf þingsins og
lengd þess í gær. Fjöldi mála bíður
afgreiðslu þingsins og var sam-
þykkt í gær að funda fram á kvöld.
„Það er öllum ljóst að þetta þing
er í miklum hægagangi og hér
er mikið málþóf í gangi,“ sagði
Jóhanna.
Forsætisráðherra sagði Fram-
sóknarflokkinn og Sjálfstæðis-
flokkinn aðeins hafa það mark-
mið að koma í veg fyrir að mál,
sem þjóðin hefði beðið eftir lengi,
næðu fram að ganga.
Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði
stjórnar þingmenn eiga að líta sér
nær, það væri á ábyrgð ríkis-
stjórnarinnar en ekki stjórnar-
andstöðunnar að þingið stæði
í þessum vanda. Hann sagði
umræðuna jafnframt hlægilega.
„Við erum tilbúin til að vera hér
alveg sleitulaust fram að næstu
kosningum,“ sagði Vigdís Hauks-
dóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, um þingflokk sinn. Hún
sagði forsætisráðherra vera með
hótanir og sagði núverandi stöðu
þingsins tilkomna vegna þrjósku
hans.
„Það er alveg ljóst hvað er hér
í gangi. Það standa hörð átök um
völdin á Íslandi og Sjálfstæðis-
flokkurinn er brjálaður yfir því
að vera ekki við völd,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna við Fréttablaðið
í gær.
Steingrímur segir Sjálfstæðis-
flokkinn vilja gera ríkisstjórninni
allt til bölvunar og skeyti ekkert
um þjóðarhag í þeim efnum.
- þeb, kóp
Stjórnarliðar og stjórnarandstöðuþingmenn tókust á í gær um vinnubrögð og áframhaldandi störf þingsins:
Hægfara þing haldi áfram fram á sumar
RANNSÓKNIR Jarðvísindastofnun Háskóla
Íslands mun í samvinnu við Veðurstofu
Íslands leiða samevrópskt verkefni 26 rann-
sóknastofnana og fyrirtækja sem góðar
líkur eru á að verði fjármagnað með styrk
frá Evrópu sambandinu. Verkefnið nefnist
Evrópsk ofurstöð í eldfjallafræði á Íslandi
(FutureVolc).
Um er að ræða mjög stórt Evrópuverkefni
með íslenskri verkefnastjórn ef af verður
og nemur styrkupphæðin um sex milljónum
evra eða tæpum milljarði íslenskra króna.
Þriðjungur styrkupphæðarinnar nýtist
íslenskum stofnunum og fyrirtækjum beint.
Rann sóknirnar, hvar sem þær verða unnar,
tengjast allar Íslandi, íslenskum eldstöðvum
og tækjabúnaði sem hér er þegar.
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræð-
ingur á Jarðvísindastofnun HÍ, segir styrkinn
ekki í hendi en umsókninni hafi verið afar vel
tekið enda fékk hún hæstu mögulegu einkunn
í matsferlinu. Verkefnið nær til tíu Evrópu-
landa og er hugsað til þriggja og hálfs árs.
Meginmarkmið verkefnisins er að hanna
samhæft vöktunarkerfi fyrir eldfjöll og sam-
starfsnet fyrir eldfjallarannsóknir. Þetta
verður gert með því að samþætta niðurstöður
frá mismunandi mæliaðferðum og tækjum;
jarðskjálftamælum, mælingum á jarðskorpu-
hreyfingum og gasstreymi. „Þegar eldgos
verða á að samþætta gögn til að meta betur
magn gosefna sem kemur frá eldstöðinni og
hvað gosmökkurinn er efnismikill,“ segir
Freysteinn.
Annað markmið er að þróa aðferðir til að
bæta flæði upplýsinga til almannavarna og
yfirvalda í Evrópu. Verkefnið stuðlar þannig
að betri upplýsingagjöf til þeirra sem gefa út
viðvaranir til flugfélaga vegna öskuburðar.
Verkefnið snýst um Ísland og íslensk eld-
fjöll en þróaðar verða aðferðir og kerfi sem
nýtast annars staðar í heiminum. Virkustu
eldfjöll Íslands eru áherslusvæði verk-
efnisins; Katla, Hekla, Grímsvötn og aðrar
eldstöðvar í Vatnajökli. Ef vel tekst til fæst
forskrift að því hvernig á að standa að rann-
sóknum annars staðar.
Ef af verður koma yfir 100 vísindamenn
að verkefninu. Á Íslandi, auk Jarðvísinda-
stofnunar og Veðurstofunnar, kemur
almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra að
vinnunni auk tveggja einkafyrirtækja; Sam-
sýnar og Miracle sem koma meðal annars að
hönnun gagnagrunns. svavar@frettabladid.is
Vel horfir með Evrópustyrk
til rannsókna á eldfjöllum
Stórt samevrópskt rannsóknaverkefni um vöktunarkerfi eldfjalla og samstarfsnet fyrir eldfjallarannsóknir
er í burðarliðnum. Vísindamenn frá 10 Evrópulöndum koma að verkefninu sem hverfist um íslensk eldfjöll.
■ Um er að ræða eitt af stærri verkefnum sem
hafa komið til álita innan 7. rannsóknaáætlunar
ESB undir íslenskri stjórn.
■ Verkefnið hefur verið undirbúið í eitt ár.
Forumsókn var send í júlí 2011 og keppti við
verkefni á öðrum hættusvæðum í Evrópu með
tilliti til að þróa leiðandi aðferðir til framtíðar.
■ Tólf umsóknir voru sendar inn vegna þessa
rannsóknarhluta. Fullmótuð umsókn var send
inn í febrúar.
■ FutureVolc fékk hæstu mögulegu einkunn við
mat á umsókninni eða 15 stig af 15 mögu-
legum. Uppfylla þurfti kröfur um vísindaleg
gæði, mikilvægi þess fyrir Evrópu, samsetningu
rannsóknarhópsins og stjórnun.
■ FutureVolc fékk hæstu einkunn af þeim
verkefnum sem náðu inn í lokamatið.
■ Forsvarsmönnum verkefnisins hefur verið boðið
að ganga til samninga við ESB.
Samevrópska rannsóknaverkefnið FutureVolc
HEKLA 2000 Evrópu-
verkefnið snýst um
Ísland og íslensk
eldfjöll; Heklu, Kötlu
og eldstöðvarnar í
Vatnajökli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
21°
19°
16°
21°
22°
15°
15°
22°
16°
16°
25°
32°
10°
20°
17°
9°
Á MORGUN
3-8 m/s.
SUNNUDAGUR
Hæg breytileg átt.
3
6
6
8
7
7
7 7
8
8
2
2
2
3
2
2
2
2
2
2
5
4
2
5
10
6
2
8
9
7
52
SÓL OG BLÍÐA
Veðrið verður
virkilega gott alla
helgina í björtu
veðri og mjög
hægum vindi. Við
munum þó ekki
sjá neitt mjög háar
hitatölur en hann
gæti náð 12-14
stigum þar sem
hlýjast verður á
suðvestanverðu
landinu.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
RÚSSLAND, AP „Okkur hefur ekki
tekist að finna lausnir sem gagn-
kvæm sátt væri um,“ sagði Ana-
tólí Serdjúkov,
varnarmála-
ráðherra Rúss-
lands, um við-
ræður við
Bandaríkja-
menn um flug-
skeytavarnir,
sem Banda-
ríkin vilja setja
upp í austan-
verðri Evrópu.
Hann segir viðræðurnar
komnar í þrot.
Rússar taka ekki mark á þeim
fullyrðingum Bandaríkjamanna
að varnirnar eigi eingöngu að
beinast gegn hugsanlegri ógn frá
Íran. Þeir óttast að þegar fram
líða stundir muni flugskeytavarn-
irnar grafa undan fælingarmætti
rússneskra kjarnorkuvopna. - gb
Deilur um eldflaugavarnir:
Viðræður að
komast í þrot
ANATÓLÍ
SERDJÚKOV
SJÁVARÚTVEGUR Fiskistofa hefur
auglýst eftir umsóknum um eitt
leyfi til veiða á Austur-Atlants-
hafsbláuggatúnfiski. Um eitt
leyfi er að ræða og verði hæfir
umsækjendur tveir eða fleiri er
Fiskistofu heimilt að láta hlut-
kesti ráða úthlutun leyfisins.
Umsækjendur skulu ráða yfir
fiskiskipi sem hefur leyfi til
veiða í atvinnuskyni og hefur
búnað sem hentar til veiðanna. Í
umsókn um leyfi skal koma fram
áætlun um veiðarnar, lýsing á
búnaði skips, upplýsingar um
áætlaðar löndunarhafnir og ráð-
stöfun afla.
Umsóknarfrestur er til 18. maí
2012. - shá
Einn fær að veiða túnfisk:
Hlutkesti nýtt í
leyfisveitingu
Það er öllum ljóst
að þetta þing er í
miklum hægagangi og hér er
mikið málþóf í gangi.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA