Fréttablaðið - 04.05.2012, Qupperneq 6
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR6
FRAKKLAND Francois Hollande,
forsetaefni franska Sósíalista-
flokksins, er spáð 53 til 54 pró-
senta atkvæða í seinni umferð for-
setakosninganna um næstu helgi.
Nicolas Sarkozy, núverandi for-
seti, fær varla nema 46 til 47 pró-
sent, verði úrslitin nálægt því sem
skoðana kannanir spá.
Sarkozy virðist engan veginn
hafa tekist að saxa á forskot Hol-
landes í sjónvarpskappræðum á
miðvikudagskvöld, sem urðu lík-
lega þær heiftarlegustu í sögu
slíkra kappræðna í frönsku sjón-
varpi.
Sarkozy greip hvert tækifæri til
að ráðast að Hollande, sakaði hann
um lygar og sagði að stefna hans
myndi leiða Frakkland í glötun.
Hollande hélt hins vegar ró sinni
og varð aldrei svara vant, sem
virðist hafa komið á horfendum á
óvart því Hollande hefur oft komið
þeim fyrir sjónir sem heldur lit-
laus og atkvæðalítill stjórnmála-
maður.
Hollande kom líka nokkrum
skotum á Sarkozy, til dæmis þegar
hann sagði: „Þú ert stöðugt með
orðið „lygar“ á vörunum. Er það
persónulegt vandamál hjá þér?“
Hollande hefur boðað kú-
vendingu í sumum helstu stefnu-
málum Sarkozys. Meðal annars
hefur hann lofað því að kalla
franska herinn heim frá Afgan-
istan hið fyrsta, og svo þverneitar
hann að taka þátt í hinu nýja fjár-
málabandalagi evruríkjanna, sem
Bretar hafa heldur ekki viljað taka
þátt í.
Þegar Hollande var spurður að
því hvers konar forseti hann ætl-
aði sér að vera, þá svaraði hann
með nokkuð langri ræðu í fimmtán
liðum, sem hver hófst á orðunum:
„Ég, sem forseti lýðveldisins, …“
Þar lofaði hann því meðal ann-
ars að láta dómsvaldið afskipta-
laust, að ætla sér ekki að taka þátt
í fjársöfnun fyrir flokk sinn og að
ráðherrum verði settar siða reglur,
sem tryggi að þeir lendi ekki í
hagsmunaárekstrum.
Þá lofar hann því að framkoma
sín muni ávallt verða til fyrir-
myndar. Hann ætli sér ekki að
verða forseti „sem ræður öllu en
ber í raun ekki ábyrgð á neinu“.
Fari svo að Hollande komist til
valda verður væntanlega grannt
fylgst með hvort hann efnir þessi
hátíðlegu loforð.
Staða Sarkozys skánaði svo
vart í gær þegar Bagdadi Ali Al-
Mahmoudi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Líbíu, staðfesti að stjórn
Múammars Gaddafí hefði stutt
kosningabaráttu Sarkozys fyrir
forsetakosningarnar árið 2007 með
50 milljónum evra. Sarkozy var þá
nýbúinn að vísa fréttum um slíkt
algerlega á bug.
gudsteinn@frettabladid.is
Sigurlíkur Sarkozys
virðast hverfandi
Sarkozy tókst engan veginn að tryggja sér sigur með frammistöðu sinni í sjón-
varpskappræðum á miðvikudagskvöld. Hollande varðist harðskeyttum árásum
Sarkozys af fimi og virðist hafa komið á óvart. Kosið verður á sunnudag.
SJÓNVARPSKAPPRÆÐUR Francois Hollande og Nicolas Sarkozy mættust í síðustu sjónvarpskappræðum sínum á miðvikudags-
kvöld. NORDICPHOTOS/AFP
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Ferskur Túnfiskur
Alla föstudaga og laugardaga
Humar 2.350 kr.kg
Óbrotinn fyrsta flokks humar
Fiskibollur
að dönskum hætti
(lax, þorskur, dill, rjómi, krydd)
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Humarsoð
frá
Hornarfirði
Frá kr. 39.950
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til
Malaga 12. maí í 10 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins
fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni
stendur. Þetta er 11 daga ferð, en aðeins 6 vinnudagar.
Verð kr. 39.950
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 12. maí í 10 nætur. Netverð á mann.
Verð áður kr.79.900.
Verðdæmi fyrir gistingu:
Kr. 27.600 m.v. 2 fullorðna í studio íbúð á Agumarina í 10 nætur.
Kr. 47.800 með „öllu inniföldu“
Tvíbýli á hótel Roc Flamingo eða Griego Mar í 10 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 66.100
Ótrúle
gt tilb
oð
Allra s
íðustu
sætin
2 fyrir 1 til
Costa del Sol
12. maí
HEILBRIGÐISMÁL Tæpur þriðjungur
starfsfólks geðsviðs Land-
spítalans hefur orðið fyrir líkam-
legu ofbeldi síðasta hálfa árið.
Um helmingur hefur orðið fyrir
andlegu ofbeldi og tæplega fjór-
tán prósent fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Gerendur eru í lang-
flestum tilvikum sjúklingar.
Þetta eru niðurstöður rann-
sóknar sem Dr. Jón Friðrik Sig-
urðsson, hjúkrunarfræðingur á
geðsviði Landspítalans, og Hjalti
Einarsson gerðu í apríl síðast-
liðnum.
Tilgangur rannsóknarinnar
var að kanna tíðni ofbeldis gagn-
vart starfsfólki sviðsins. Þar kom
meðal annars fram að þó nokkrir
starfsmenn sögðust hafa orðið
fyrir ofbeldi oftar en einu sinni á
tímabilinu.
„Af þessu má draga þá ályktun
að starfsfólk geðdeilda sé í hópi
þeirra starfsstétta sem eru lík-
legastar til að verða fyrir ofbeldi
í starfi, sérstaklega starfsfólk
sem vinnur hjúkrunarstörf,“
segir Jón Friðrik. „Næstum allir
sem svöruðu könnuninni töldu
einhverjar líkur á að verða fyrir
ofbeldi í starfi sínu og höfðu
áhyggjur af því.“
Jón Friðrik segir niðurstöðurnar
ríma við sambærilegar kannanir
erlendis. Alþjóðlegt málþing
um ofbeldi á geðdeildum verður
haldið í Háskóla Íslands í dag þar
sem niðurstöður rannsóknarinnar
verða kynntar frekar. - sv
Fjórtán prósent starfsfólks geðdeilda hefur mátt þola kynferðislegt ofbeldi:
Ofbeldi gagnvart starfsfólki algengt
GEÐDEILD LSH VIÐ HRINGBRAUT Um
helmingur starfsmanna geðsviðs LSH
segist hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi í
vinnunni síðasta hálfa árið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Telur þú að strandveiðarnar
eigi rétt á sér?
JÁ 77,3%
NEI 22,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú búin(n) að ákveða hvern
þú ætlar að kjósa í forsetakosn-
ingunum í sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
LÖGREGLUMÁL Theodór Kr. Þórðar-
son, yfirlögregluþjónn í Borgar-
firði og Dölum, segir líkgeymslu-
mál í Borgarfirði í ólestri.
Vandamálið sé í senn viðkvæmt
og aðsteðjandi og nauðsynlegt að
bregðast við því hið fyrsta.
Í bréfi Theodórs til byggðaráðs
Borgarfjarðar segir hann vandann
að hluta til felast í því hversu „lík-
húsið“ í heilsugæslustöðinni í
Borgarnesi sé lítið. „Séu þar fyrir
eitt eða tvö lík þegar skyndilegt
dauðsfall verður, til dæmis vegna
umferðarslyss, er orðið mjög erfitt
að athafna sig fyrir lögreglumenn,
starfsfólk útfararstofnana og aðra
sem að þessum málum koma. Að
ekki sé minnst á þegar taka þarf á
móti ættingjum í þessu
herbergi að halda þar
athöfn með presti og
tilheyrandi,“ skrifar
Theodór og þá er allur
vandinn ekki upptalinn.
„Fyrir utan nefnd
þrengsli er í öðru lagi
þarna aðeins lágmarks
kælibúnaður sem hefur
þar fyrir utan verið
nokkuð bilunargjarn,“ lýsir yfir-
lögregluþjónninn sem segist vonast
til að líkgeymslan verði stækkuð
sem fyrst svo hún rúmi fjögur til
sex lík í einu og að þar verði komið
fyrir „viðeigandi og virkum kæli-
búnaði“.
Byggðaráðið fól sveitarstjóran-
um að ræða við Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands um úrbætur. - gar
Lögreglan segir líkgeymslumál í Borgarbyggð í ólestri og vill úrbætur hið fyrsta:
Erfitt að halda athöfn með presti
THEODÓR KR. ÞÓRÐARSON Yfir-
lögregluþjónn segir vandræði
skapast ef geyma þarf fleiri en
eitt lík í einu Borgarbyggð.
STOFNANIR Þrátt fyrir að málum
sem berast Persónuvernd hafi
stöðugt fjölgað hefur starfs-
mönnum þar fækkað. „Það sem
af er þessu ári hafa 612 ný mál
verið skráð hjá stofnuninni. Til
samanburðar voru nýskráð mál
þann 1. maí 2008 alls 361. Er
því um 75 prósenta aukningu að
ræða á fjórum árum,“ segir í frétt
Persónu verndar.
Verði ekkert að gert megi búast
við enn meiri töfum á afgreiðslu
mála. Stofnunin sjái ekki fram á að
geta sinnt lögbundnum verkefnum
með fullnægjandi hætti. - gar
Færri takast á við fleiri mál:
Persónuvernd
varar við töfum
KJÖRKASSINN