Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 8
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR8
Billund og Gautaborg, verð frá
Við ætlum að vera mikið á ferðinni um Skandinavíu í sumar
og verðum meðal annars í Billund og Gautaborg þar
sem öll fjölskyldan getur haft það huggulegt. Settu upp
sparibrosið og bókaðu flug á www.icelandexpress.is
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum
Skemmtu þér
í Skandinavíu!
16.700 kr.
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is
Finndu okkur
á Facebook!
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Í boði eru 800.000
bílar í 125 löndum
ICELAND EXPRESS
BÍLINN HJÁ
BÓKAÐU
VEISTU SVARIÐ?
1. Hversu mörgum milljörðum
verður varið í húsnæðisbótakerfið?
2. Hvert mætti Barack Obama
óvænt í heimsókn í vikunni?
3. Hversu stóran hlut Grímsstaða
ætlar Huang Nubo að leigja?
SVÖR
1. 24,8 milljörðum 2. Til Afganistans
3. 70%
EVRÓPUMÁL Samningsafstaða Íslands varðandi
flutningastarfsemi annars vegar og frjálsa
vöruflutninga hins vegar í samningavið-
ræðum Íslands og Evrópusambandsins hefur
verið kynnt framkvæmdastjórn ESB og
aðildar ríkjunum. Meðal þess sem þar kemur
fram er að Ísland vill sleppa við að taka upp
sumartíma, komi til aðildar.
Búist er við því að viðræður hefjist í við-
komandi málaflokkum síðar á þessu ári, en
kaflarnir heyra báðir undir EES-samninginn.
Í samningsafstöðu um kaflann um frjálsa
vöruflutninga leggur Ísland meðal annars
áherslu á að viðhalda reglum varðandi
hámarksgildi kadmíums í áburði og leitast
eftir því að opna fyrir samstarf við önnur ríki
um markaðsleyfi fyrir lyf.
Í samningsafstöðu Íslands um kafla 14 um
flutningastarfsemi koma meðal annars fram
óskir Íslands um að fá að halda heimildum
til að styrkja innanlandsflug, að Ísland þurfi
ekki að framkvæma tilskipun um sumar-
tíma, og einnig er farið fram á afmarkaðar
sérlausnir vegna aksturs- og hvíldartíma
ökumanna.
Í framhaldinu munu framkvæmdastjórnin
og aðildarríkin taka afstöðu Íslands til
skoðunar og leggja fram sína eigin samnings-
afstöðu sem verður lögð til grundvallar þegar
samningaviðræður hefjast. - þj
Samningsafstaða Íslands í tveimur samningsköflum kynnt fyrir Evrópusambandinu:
Ísland vill fá að sleppa við sumartímann
VIÐ SAMNINGABORÐIÐ Búist er við að samningskaflar
um flutningastarfsemi og frjálsa vöruflutninga verði
opnaðir seinna á árinu. Samningsafstaða Íslands liggur
fyrir. MYND/FRAMKVÆMDASTJÓRN ESB
FJÁRMÁL Haraldur Benediktsson,
formaður Bændasamtaka Íslands,
segir Þórólf Matthíasson hag fræði-
prófessor hafa valdið samtökunum
miklum skaða með grein sem hann
skrifaði í Fréttablaðið í gær. Hann
telur Þórólf þurfa að segja sig frá
störfum í nefnd um skulda aðlögun,
en Þórólfur vísaði því á bug. Allt
sem fram komi í greininni séu
opinberar upplýsingar.
Í greininni, sem ber yfir-
skriftina „Áhætturekstur Bænda-
samtaka Íslands“, tíundar Þór ólfur
slæma stöðu félaganna Hótels
Sögu ehf. og Hótels Íslands
ehf. sem eru í eigu sam-
takanna. Þórólfur upplýsir
meðal annars að samtökin
hafi þurft að færa niður allt
hlutafé í félögunum tveimur
og afskrifa 950 milljóna
króna skuld Hótels Sögu við
samtökin.
Þá segir Þórólfur Búnaðar-
þing hafa hafnað 4,3 millj-
arða króna kauptilboði í hótelin
árið 2006.
Hann varpaði fram fjöl-
mörgum spurningum
varðandi starf-
semi Bændasamtakanna, meðal
annars hvort rétt sé að samtökin
„sem sýsla með almannafé fyrir
ríkissjóð, standi í áhættusömum
rekstri á borð við rekstur veit-
ingahúsa og hótela“.
Haraldur sagði í samtali við
Vísi.is í gær að Þórólfur hefði
valdið samtökunum miklum skaða
þar sem þau séu í samskiptum við
banka um skuldaendurskoðun
hótelanna. Greinin hafi neikvæð
áhrif á það ferli.
„Það sem er alvarlegt við þetta
er að Þórólfur situr í eftirlits-
nefnd um sértæka skuldaaðlögun
og ég myndi halda að hann þyrfti
að segja af sér með þessari fram-
göngu,“ segir Haraldur við Vísi.
Þórólfur svaraði því til, einnig
í samtali við Vísi, að þær upp-
lýsingar sem hann tíndi til í
greininni væru opinberar. Þar
væri ársreikningur Bændasam-
takanna, sem hann hafi fengið á
grundvelli upplýsingalaga, árs-
reikningur Hótels Sögu og
grein í Morgunblaðinu um
kauptilboðið.
Þórólfur sagðist
alls ekki sjá tilefni
til að segja sig frá
nefndarstörfum
um skuldaaðlögun
og vísar kröfu um
slíkt á bug.
„Það er með
ólíkindum að Har-
aldur skuli reyna að
drepa málinu á dreif
með þessum hætti, í staðinn
fyrir að svara spurningum
mínum,“ sagði hann við
Vísi. thorgils@frettabladid.is
Þórólfur segir öll sín
gögn vera opinber
Formaður Bændasamtakanna deilir á Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor
vegna greinar um hótelrekstur samtakanna. Þórólfur vísar gagnrýni á bug.
HARALDUR BENEDIKTSSON ÞÓRÓLFUR MATTHÍASSON