Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 20

Fréttablaðið - 04.05.2012, Page 20
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR20 timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÖGNU JÓNSDÓTTUR Hlöðufelli Eyrarbakka, Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Ljósheima Selfossi. Jóhann Jóhannsson Unnur Jóhannsdóttir Guðmundur Stefánsson Ingibjörg Jóhannsdóttir Jón Guðmundsson Sólrún Jóhannsdóttir Jóhannes Þorgeirsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur okkar og bróðir, SÆVAR ÞÓR KRISTÞÓRSSON Krókamýri 54, Garðabæ, lést á Landspítala Fossvogi laugardaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 9. maí kl. 13.00. Erna Þórðardóttir Kristþór Sveinsson Sigríður Guðbjörnsdóttir Guðmann Kristþórsson Okkar ástkæra, ÁSTA HELGA BERGSDÓTTIR lést í faðmi ástvina á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri þann 29. apríl. Útför fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 8. maí klukkan 13.30. Þakkir til umönnunaraðila og þá sérstaklega starfsfólks Kristnesspítala. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Indíana Ásmundsdóttir Bessi Gunnarsson Eva Ásmundsdóttir Þorsteinn Árnason Helgi Ásmundsson Guðrún Berglind Bessadóttir Hlynur Már Erlingsson Katrín Rut Bessadóttir Helgi Seljan Stefán Óli Bessason B. Grétar Þorsteinsson Lilja Bergsdóttir Reynir Svan Sveinbjörnsson Signa Hrönn Stefánsdóttir Laufey Ásta Þorsteinsdóttir Rannveig Þorsteinsdóttir og langömmubörn. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunar- heimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi. Haukur Högnason Hildur Högnadóttir Hildigunnur Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA ÞÓRA PÁLMADÓTTIR Garðabraut 6, Akranesi, lést laugardaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 8. maí kl. 14.00. Jón Helgi Guðmundsson Atik Fauziah Hadad, Guðný Guðmundsdóttir Alfreð Viggó Sigurjónsson, Jórunn Petra Guðmundsdóttir, Jóhann Hafsteinn Hafsteinsson, Helga Guðmundsdóttir og ömmubörn. Frænka okkar, SOFFÍA ÞORSTEINSDÓTTIR áður til heimilis að Háaleitisbraut 105, Reykjavík, er látin. Jarðaförin hefur farið fram. Alúðarþakkir til starfsfólks á deild V4, Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða umönnun og hlýju. Kristín Sveinbjarnardóttir Guðrún Sveinbjarnardóttir Helga Sveinbjarnardóttir Unnur Sveinbjarnardóttir Gunnar Bjarnason Þóra Bjarnadóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURGEIR ANGANTÝSSON frá Sauðárkróki, lést á gjörgæsludeild Landspítalans Hringbraut miðvikudaginn 2. maí 2012. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 12. maí kl. 13.30. Jarðsett verður á Hofsósi. Við fjölskyldan hans Muna viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til starfsfólks Nýrnadeildar og Gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Umhyggju ykkar og baráttu munum við aldrei gleyma. Friðrika Jóhanna Sigurgeirsdóttir Þorvaldur Guðmundsson Vanda Sigurgeirsdóttir Jakob Frímann Þorsteinsson Andri Sigurgeirsson Aníta S. Ásmundsdóttir Ívar, Inga, Brynja, Rakel, Muni, Þórdís og Gunnar Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN ÓLAFSSON Hlaðhamri, lést 24. apríl á sjúkrahúsinu Hvammstanga. Jarðarförin fer fram laugardaginn 5. maí kl. 14.00 frá Prestbakkakirkju, Hrútafirði. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Jóhannes Kjartansson Sveinbjörg Guðmundsdóttir Jón Kjartansson Gyða Eyjólfsdóttir Sigurður Kjartansson Olivia Weaving og barnabörn. 90 ára afmæli Kristinn Daníel Hafliðason vélstjóri, er 90 ára í dag. Kristinn starfaði hjá Eimskip, bæjarútgerð Reykjavíkur og Granda allt til 65 ára þegar hann hætti störfum. Hann hefur verið búsettur í Reykjavík alla sína ævi en er ættaður frá Ketildölum í Arnarfirði og Breiðafirði. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HRAFNHILDAR GRÍMU THORODDSEN. Þökkum starfsfólki Skjóls góða umönnun. Tryggvi Viggósson Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir Guðmundur Viggósson Líney Þórðardóttir Regína Viggósdóttir Gunndóra Viggósdóttir Ásgeir Arnoldsson barnabörn og barnabarnabörn. Þeir sem hingað til hafa gripið í tafl á kaffistofum fyrirtækja sér til skemmt- unar geta nú sameinast í sveit og keppt fyrir hönd síns fyrirtækis á Firma- mótinu í skák þann 9. maí frá 16 til 19 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Mótið er haldið af skákdeild Fjölnis í Grafar- vogi. Formaður hennar er Helgi Árna- son, skólastjóri Rimaskóla, en einnig vinnur Fjölnismaðurinn Héðinn Stein- grímsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák, að framgangi mótsins. „Við höldum þetta mót til að minnast einvígis aldarinnar fyrir 40 árum en vonum að það verði árlegt héðan í frá og okkur takist þannig að endurvekja fyrirtækjamót sem var hald- ið um tuttugu ára skeið,“ segir Helgi. Þátttökugjald er 50 þúsund krónur en óvenjulega veglegir vinningar eru í boði, að verðmæti yfir 750 þúsund krónur. Um er að ræða sveitakeppni þar sem þrír skákmenn verða í hverju liði og tveir varamenn. „Við búumst við mörgum af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar en engu að síður er mótið skipulagt fyrst og fremst með hinn almenna skákáhuga- mann í huga,“ segir Héðinn. „Til að fá sem jafnasta og mest spennandi keppni er styrkleiki hvers liðs takmarkaður við 5.500 ELO stig og stigalausir reiknaðir með aðeins 1.000 stig. Fyrirtæki geta líka fengið hjá okkur lánsmann ef þau eiga í vandræðum með að manna sveit og einnig geta fyrirtæki styrkt mótið og fengið boðssveit til að tefla fyrir sig. Við leysum úr hvers manns vanda og það á að vera fyrirhafnarlaust að senda inn lið. Við viljum koma sem mest til móts við hin venjulegu fyrirtæki en félagasam- tök mega líka vera með. Aðalatriðið er að hafa gaman af.“ Verkís er stærsti styrktaraðili móts- ins. Héðinn segir rökstuðning þessa öfl- uga, 80 ára fyrirtækis fyrir því vera þann að skákin krefjist útsjónarsemi, skipulagningar og framsýni sem allt séu mikilvægir þættir í verkfræði. Hann segir Iceland Express einnig bak- hjarl mótsins. „Við erum með flug báðar leiðir til Evrópu með öllum sköttum og gjöldum í verðlaun fyrir tvær efstu sveitirnar,“ segir hann. Nefnir líka að í einstaklingskeppni sé farsími frá Síman- um í verðlaun, að verðmæti hundrað þús- und krónur. Þá sé gjafakort frá veitinga- húsinu Skrúði, tónlist, ljósmyndabækur, tölvuvörur og fleira eigulegt í boði fyrir góðan árangur. „Ég fullyrði að sjaldan eða aldrei hafi verið haldið mót þar sem venjulegir áhugaskákmenn eiga von á jafn flottum vinningum,“ segir Héðinn. „Þetta mót er hugsað sem framlag til að vekja athygli á skák á nýjan hátt, virkja fólk til þátttöku sem ekki er vant keppni og kveikja skákáhuga innan fyrirtækj- anna.“ Lið eru hvött til að skrá sig með því að senda póst til: firmakeppnin@ gmail.com. gun@frettabladid.is FIRMAKEPPNI Í SKÁK: Í TILEFNI 40 ÁRA AFMÆLIS EINVÍGIS ALDARINNAR Viljum koma til móts við venjulega skákáhugamenn VIÐ SKÁKBORÐIÐ Héðinn Steingrímsson stórmeistari og Helgi Árnason skólastjóri eru virkir í Skákdeild Fjölnis. Hér eru þeir ásamt nokkrum nemendum 4. og 6. bekkjar Rimaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR AUDREY HEPBURN leikkona (1929-1993) fæddist þennan dag. „Að ná frægð og frama er eins og að ná mikilvægum afmælisdegi og finna þá að þú hefur ekkert breyst.”

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.