Fréttablaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 28
6 • LÍFIÐ 4. MAÍ 2012
KOLBRÚN BJÖRNSDÓTTIR
STARF: Annar stjórnenda morgun-
þáttarins Í bítið á Bylgjunni.
BÖRN: Sólveig María (18 ára), Theodóra
(15 ára), Arnór Blær (13 ára) og Helena
(2ja ára).
MAKI: Árni Árnason.
Hver er konan? 38 ára, afskaplega
heimakær mamma. Glaðlynt skipu-
lagsfrík og einfari sem líkar samt af-
skaplega vel að vera innan um fólk.
Annars finnst mér mjög erfitt að lýsa
sjálfri mér. Aðrir eru ábyggilega betur
til þess fallnir en ég upplifi mig þó sem
þroskaðri, jákvæðari og skilnings-
ríkari manneskju en ég var fyrir ekki
svo mörgum árum. Það hafa mörg
áföll dunið á fjölskyldunni undanfarin
misseri og þau hafa kennt mér mikið.
Hvar ertu alin upp og hvernig upp-
eldi fékkstu? Ég bjó fyrstu tvö árin
hjá ömmu Kollu á Siglufirði. Þá flutti
ég austur á firði en frá fjögurra ára
aldri hef ég búið í Reykjavík, lengst
af í Árbænum og er þar nú. Ég veit
ekki hvort hægt sé að segja að ég
hafi fengið strangt uppeldi, frekar
þannig að það var alltaf rætt við mig
og höfðað til skynseminnar. Það var
mikið lagt upp úr að ég stæði mig
vel í skóla og mikið kapp lagt á að
ekkert truflaði það. Í prófatörnum var
ættingjum nánast bannað að koma í
heimsókn til að trufla ekki próf lesturinn
og á próf dögum fór mamma alltaf á
fætur fyrir allar aldir til að búa til ekta
heitt súkkulaði. Og þótt mér væri ekki
spillt þá var jafnframt passað upp á að
mig skorti aldrei neitt. Ég er heppin.
Hver er þín dýrmætasta æsku-
minning? Ég á þær svo margar. Þær
sem ég rifja þó oftast upp eru minn-
ingarnar sem eru tengdar ömmu Kollu
en hún lést á síðasta ári. Ég eyddi
ófáum sumrum hjá henni á Suður-
götunni. Mér þykir alltaf sérstaklega
vænt um eina minningu og þá kannski
helst vegna þess að hún er svo lýs-
andi fyrir ömmu sem vildi alltaf allt
fyrir alla gera. Eitt sinn þegar ég dvaldi
hjá henni veiktist ég mjög og gat vart
gengið hvað þá sofið. En amma, með
sínar heilandi og heitu hendur, hélt um
höfuð mitt heilu næturnar til að lina
höfuðverkinn og hálfbar mig á milli
herbergja þótt ég væri orðin nokkuð
stálpuð. Sólar dagarnir á svölunum
hjá ömmu með bíóís og fjöruga tón-
list eru líka minningar sem kalla allta
fram bros hjá mér.
Vissirðu snemma hvert þú ætlað
þér í lífinu? Nei. Og veit það í rauninn
ekki enn. Ég veit bara að ég vil láta got
af mér leiða. Það má þó vissulega segj
að þetta starf sé ein leið til þess me
því að vekja athygli á góðum mál efnum
Á mínum yngri árum var ég ákveðin
að vinna í matvöruverslun af því a
mér fannst svo flott hvað starfs fólkið
kössunum gat slegið verðið hratt inn
kassana. En það er víst búið, allar búð
með skanna þannig að sjarminn e
farinn af því. En grínlaust, ég gæti alve
hugsað mér að vinna við afgreiðslu
störf. Mér finnst alveg ótrúlega gama
og gefandi að þjónusta fólk. Kannski é
verði búðarkona eftir allt saman?
Hvenær og hvernig kom það til að
þú fórst að starfa við fjölmiða? É
sótti um starf á Skjá einum, næstum
því meira í gríni en alvöru. Ég fék
starfið og sinnti því einn vetur. Dre
mig svo í Háskólann og fékk í kjöl fari
sumarvinnu á Stöð 2. Síðan tók vi
starf á fréttastofu RÚV en þar starfað
ég með náminu þar til ég hóf störf
Bylgjunni. Þannig að það má segja a
eitt hafi leitt af öðru.
ÞAKKLÆTIÐ HEFUR YFIRH
Kollu í Bítinu þarf vart að kynna en eins og flestir vita stjórnar hún morgunþætti Bylgjunnar
með hlátur sem fær aðra til að hlæja. Lífið kynntist þessari hörkuduglegu konu betur og ko
verkefni sem hún tekst á við utan beinnar útsendingar.
20% afmælisafsláttur
af öllum vörum fram á
laugardag.
Barnafataverslunin Róló Glæsibæ.
Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook
Við erum 2
ára
Save the Children á Íslandi