Fréttablaðið - 04.05.2012, Blaðsíða 40
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR24
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Ertu ekki
farinn að
hlakka til EM,
Haraldur?
EM? Í
hverju?
Fótbolta,
Haraldur!
Ahh auðvitað! Það
verður örugg-
lega allt brjálað á
Laugardalsvelli!
Eða í Póllandi
og Úkraínu!
Eru einhverjir
í uppáhaldi?
Já, verðum
við ekki að
halda með
Íslandi?
Ísland er
ekki með,
Haraldur!
Af hverju
ekki?
Við komumst
ekki í gegnum
undankeppnina!
Er
það
ekki?
Gleymdu að
ég spurði
Haraldur!
Eru Manchester
United með?
Þeir eru nú
frekar góðir!
Haraldur…
never-
mind!
Wayne
Clooney! Hann
er sprækur!
Jæja,
hækkum
blinda.
Fjórði sonur
minn. Eitt nýra. Framtíðar-kærasta.
Menn
virðast vera
byrjaðir að
taka leikinn
alvarlega.
Í VERSLUNARFERÐ
MEÐ LANDSLAGS-
MÁLARANUM
FRÆGA NANOOK
NAPAWIAK
Já, ég ætla að
fá 50 túpur
af hvítum,
eggja hvítum,
snjó hvítum,
beinhvítum,
rjómahvítum…
Ég klaga
þig!
Þá klaga ég
þig fyrir að
klaga mig!
Og ég klaga
þig fyrir að
klaga mig
fyrir að
klaga mig!
Og? Þá klaga
ég þig bara fyrir
að klaga mig
fyrir að klaga
mig fyrir að
klaga mig!
Hversu lengi
geta þau haldið
áfram?
Hverjum er ekki sama á meðan
þau hafa eitthvað að gera?
LÁRÉTT
2. ríki í Mið-Ameríku, 6. frá, 8. þvottur,
9. útsæði, 11. tveir eins, 12. hljóðfæri,
14. skammt, 16. kúgun, 17. bar, 18.
fát, 20. persónufornafn, 21. traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. stagl, 3. stefna, 4. trjátegund, 5.
eyrir, 7. heilbrigður, 10. frændbálkur,
13. umfram, 15. rótartauga, 16.
tíðum, 19. eldsneyti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kúba, 6. af, 8. tau, 9. fræ,
11. rr, 12. sítar, 14. stutt, 16. ok, 17.
krá, 18. fum, 20. ég, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. út, 4. barrtré, 5.
aur, 7. frískur, 10. ætt, 13. auk, 15.
tága, 16. oft, 19. mó.
Skotgrafahernaðurinn í umræðunni er vinsælt umkvörtunarefni. Af hverju
getur fólk ekki bara sameinast um skyn-
samlegar lausnir, spyrja menn, af hverju
þarf sífellt að rífast um allt og ekkert? Þessi
gagnrýni einskorðast ekki við ákveðna
hópa heldur virðist koma úr öllum áttum.
Meira að segja sjálfir stjórn mála mennirnir
kvarta stundum undan þessu. Það þarf
ekki að lesa mikið um stjórnmálaumræðu
í nágrannalöndunum til þess að komast
að því að þetta er ekki séríslenskt. Þá má
veita því athygli að málflutningar stjórnar
og stjórnarandstöðu á þingi hverju sinni
er sumpart alltaf hinn sami. Jafnvel þótt
sömu einstaklingarnir hafi skipt reglulega
á milli þessara hlutverka og hneykslist
því í raun á eigin fyrri hegðun. Í þessu
samhengi má nefna þá umræðu sem
fer fram í lok hvers þings um annars
vegar tilraun framkvæmdavaldsins til að
„keyra mál í gegnum þingið án umræðu“
og hins vegar „óþolandi málþóf
stjórnar andstöðunnar.“
MÁLIÐ er einfaldlega að flestum
er alls ekkert sama hvaðan gott
kemur jafnvel þótt flestir myndu
telja sig samþykka þeirri þekktu
fullyrðingu. Það hafa rannsóknir í
atferlissálfræði ítrekað leitt í ljós.
Nefna má hin svokölluðu geislabaugs-
áhrif sem virka þannig að við lítum
síður á aðra sem samsetta persónu-
leika, blöndu af jákvæðum og neikvæðum
eiginleikum, og fremur á þá sem í grófum
dráttum góða eða slæma. Af þeim sökum
eigum við erfiðara með að samþykkja hug-
mynd sem góða, jafnvel þó okkur þætti það
ella, ef hún er kynnt af einstaklingi sem
við erum yfirleitt ósammála. Annað skylt
fyrirbrigði er svokölluð staðfestingarvilla
sem má lýsa sem eins konar innri já-manni.
Við leitum heldur eftir upplýsingum sem
staðfesta skoðanir okkar eða tilgátur en
öðrum sem kynnu að draga þær í efa. Þá
túlkum við tvíræðar upplýsingar fyrir fram
mynduðum skoðunum í vil. Sé það því mat
okkar að stjórnmálaflokkur, -maður eða
einfaldlega annar einstaklingur sé almennt
á villigötum, munum við túlka flest hans
verk, bæði góð og slæm, á versta veg.
AÐ þessu sögðu er það ekki óeðlilegt að fólk
með ólík viðhorf greini á um hvernig leysa
beri vandamál og um hvert skuli stefna. Þá
eru stjórnmálamenn og aðrir sem taka þátt
í umræðunni að taka þátt í leik sem snýst,
þegar öllu er á botninn hvolft, um að hafa
áhrif. Stundum er það að ýfa upp átök bara
góð leið til þess og við það þurfum við að
lifa. Það getur þó verið ágætt að staldra
við, líta kalt á eigin orð og loks spyrja sig
hvort tilfinningarnar hafi reynst skyn-
seminni yfirsterkari. Kannski breytir það
engu en það er þó í það minnsta stundum
hægt að komast hjá því að vera í þversögn
við sjálfan sig.
Sama hvaðan gott kemur
Lykillinn að gera atriðin eins
raunveruleg og hægt er
Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, útfærir hasar- og
slagsmálasenur í íslenskum bíómyndum.
Hvar væru þau nú?
Helstu hetjum Íslendingasagnanna
kippt inn í nútímann með aðstoð
Óttars Guðmundssonar geðlæknis
og Halldórs Baldurssonar teiknara.
Meðal annars efnis: