Fréttablaðið - 04.05.2012, Side 44
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR28 28
menning@frettabladid.is
Pörupiltarnir Hannes,
Smári, Dóri Maack og
Nonni Blö leika í Beðið eftir
Godot sem frumsýnt verð-
ur á Litla sviði Borgarleik-
hússins annað kvöld.
Pörupiltarnir ráðast ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur
en þeir frumsýna á morgun leik-
verkið Beðið eftir Godot eftir
Samuel Beckett, sem er talið
með merkari verkum leiklistar-
sögunnar. Höfundur þess, Samuel
Beckett, er eitt af höfuðskáldum
20. aldarinnar og eftir hann liggur
fjöldi leikrita, ljóða og smásagna.
Beðið eftir Godot var fyrst frum-
sýnt 5. janúar 1953 í Theatre de
Babylone í París.
Það eru leikkonurnar Halldóra
Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn
Jónsdóttir sem túlka þá Smára
og Hannes, sem fara með aðal-
hlutverkin í sýningunni. Í öðrum
hlutverkum eru Dóri Maack,
Nonni Blö og tveir ungir drengir,
en það eru leikkonurnar Sólveig
Guðmundsdóttir, Alexía Björg
Jóhannesdóttir og stúlkurnar
Ísabella Rós Þorsteinsdóttir og
Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir sem
ljá þeim líf. Leikstjóri verksins
er Kristín Jóhannesdóttir, Helga
I. Stefánsdóttir hannar leikmynd
og búninga og Kjartan Þórisson
hannar lýsingu.
Beðið eftir Godot lýsir biðinni
eftir frelsun, björgun og leiðsögn
og er áleitin lýsing á hlutskipti og
getuleysi mannanna. Vladimir og
Estragon bíða eftir Godot. Þeir
hafa orð á því að hengja sig en eru
ekki með reipi við höndina. Þeir
ákveða að skilja en einmana leikinn
er þeim um megn. Þeir bíða. Þeir
rífast, gráta og syngja. Og bíða.
„Þeir sitja þarna tveir og bíða og
halda alltaf að Godot sé að koma.
Þetta er stórmerkilegt leikrit, því
það gerist ekkert, en samt gerist
svo margt,“ segir Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, eða öllu heldur Hannes,
sem fer með hlutverk Estragons.
Halldóra Geirharðsdóttir túlkar
Vladimir í gegnum Smára. „Þó að
þeir séu í raun ekki að tala um neitt,
eru þeir að fjalla um hluti sem
skipta máli. Hvað er lífið, hvernig
eyðum við því og hjá hverjum ligg-
ur ábyrgðin, í lífi hvers og eins?
Erum við hérna fyrir hvort annað,
eða á maður bara að hugsa um
sjálfan sig?“ heldur Ólafía Hrönn
áfram og segist viss um að áhorf-
endur sýningarinnar fari heim að
henni lokinni með fullan hugann af
áleitnum spurningum um tilgang
lífsins.
Beðið eftir Godot verður frum-
sýnt á Litla sviði Borgarleik-
hússins á morgun, laugardaginn
5. maí. holmfridur@frettabladid.is
Stórt spurt á Litla sviðinu
TILFINNINGAÞRUNGIN BIÐ Þeir Vladimir og Estragon rífast, gráta og syngja á meðan þeir bíða eftir Godot. Þá túlka þeir Smári og
Hannes. MYND/BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikhús ★★★★ ★
Afmælisveislan
Höfundur: Harold Pinter. Þýðing:
Bragi Ólafsson. Leikarar: Erlingur
Gíslason, Kristbjörg Kjeld, Ingvar
E. Sigurðsson, Eggert Þorleifs-
son, Björn Thors og Þórunn Arna
Kristjánsdóttir. Leikstjóri: Guðjón
Pedersen.
Þjóðleikhúsið, Kassinn
Í Kassa Þjóðleikhússins er nú
verið að sýna eitt frægasta verk
Nóbelsverðlaunahafans Harolds
Pinter. Inni í vegg fóðruðum
kassa bjuggu hjónin Meg og
Petey, í Bretlandi nálægt bað-
strönd þar sem hann var sól-
stólavörður. Eiginkonan rak gisti-
heimili en gesturinn var aðeins
einn og orðinn svolítið sérkenni-
legur, kannski af einveru og
kannski af því að frúin var farin
að dúllast með hann eins og smá-
krakka.
Kristbjörg Kjeld og Erlingur
Gíslason leika þessi fullorðnu
hjón, sem gera og segja sömu
hluti á hverjum degi. Í læstu öng-
stræti orðaflaumsins fáum við að
kynnast þeim. Gestinn Stanley
leikur Ingvar E. Sigurðsson og
var hann í fyrstu bara venjulega
önugur en þegar tveir utanað-
komandi menn koma á fund hans
verður hann smám saman að
mjög veikum manni.
Túlkun Ingvars er mjög sterk.
Stúlkan Lúlú í næsta húsi er sæt og
barnaleg og er það Þórunn Arna
Kristjánsdóttir sem ljær þeirri
skvísu líf á einlægan og barns-
legan máta. Eggert Þorleifsson
kemur í líki herra Goldbergs og
truflar öll þau rólegheit sem ein-
kennt hafa lífið í þessu fábreyti-
lega húsi. Hann er ógnandi og
yfirþyrmandi í framgöngu sinni
og sér til aðstoðar hefur hann
heldur vitgrannan meðreiðarsvein
sem virðist beita lúkunum meira
en vitinu. Björn Thors fer með
það hlutverk og vissulega stóð af
honum ógn og var hann ámátlega
fyndinn á köflum en hins vegar er
hlut verkið nokkuð svipað mörgum
þeim sem Björn hefur áður tekið
að sér þannig að maður vonar bara
að hann verði ekki sjálf skrifaður í
hlutverk af þessum toga.
Erlingur var stóískur í hlut-
verki Petey, spaugilegur, en þó
pirraður segjandi nákvæmlega
sömu hluti á hverjum degi. Krist-
björg Kjeld smýgur vel undir
þunna skel frú Meg. Hún er svo-
lítið utangátta, man lítið, ekki
með heimsins mesta sjálfstraust
og alls ekki dómbær á umhverfi
sitt. Þegar slegið er upp veislu
verður hún kampakát, skrýðist
sínum besta kjól og lætur Gold-
berg rugla sig í rýminu.
Búningar Helgu I. Stefáns-
dóttur undirstrikuðu vel þessar
hjákátlegu persónur. Stanley átti
alls ekkert afmæli en afmælis-
veislu skyldi hann engu að
síður fá. Í þeirri veislu, sem er
drykkjupartý kostað af Gold-
berg, fer allt úr böndunum.
Hvað nákvæmlega gerist er
erfitt að segja til um. Hver mín-
úta er hlaðin orku og meðferð
leikaranna á tungumálinu er eins
og best verður á kosið. Pinter er
orðsnillingur þar sem aðstæður
skapa málið ýmist til þess að
stynja eða styggja.
Íslenskur texti Braga Ólafs-
sonar var mjög áheyrilegur og
eins voru hljóðmyndir skemmti-
lega ógnvekjandi. Stígandi
verksins magnast með yfir-
töku hins geggjaða Goldbergs
sem með klækjum og brögðum
mafíósa nær að hrella alla. Í lokin
þegar gestirnir fara með Stanley
alveg bugaðan biður Petey þá um
að leyfa honum að vera. Kannski
var það kjarni verksins, alla
vega sá sammannlegi tónn sem
áhorfendur vonuðust til að heyra.
Ógnandi öfl mega ekki koma og
taka hinn veikbyggða.
Leikmynd Grétars Reynis-
sonar var í senn brúðuhús og
lágstéttarheimili. Mjög vel unnin
sýning af hálfu leikstjórans sem
enginn ætti að láta framhjá sér
fara! Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Frábær sýning sem
enginn ætti að missa af.
Þrír nemendur við Listaháskóla Íslands, Albert Hauksson, Skúli
Jónsson og Björn Halldór Helgason, halda útskriftartónleika í Iðnó
á laugar dag. Þremenningarnir útskrifast allir með BA-gráðu í tón-
smíðum frá LHÍ í vor.
Á efnisskránni eru þrjú verk. Tónverkið Landslag eftir Albert er
ferðalag um land sem mótast í huga hlustandans. Verk Skúla heitir
Bastilludagurinn í Bordeaux – Draumkennd minning ferðalangs og
er samið fyrir kammerhóp. Verkið er byggt á minningum höfundar
frá sumrinu 2011 og lýsir upplifun ferðalangs á framandi slóðum á
Bastilludeginum. Verk Björns Halldórs heitir Svipbrigði. Svipbrigði
eru okkur eðlislæg áður en við vitum hvað þau þýða. Hið sama gildir
um lögmál tón listarinnar. Tónleikarnir í Iðnó hefjast klukkan þrjú.
Útskriftartónleikar í Iðnó
Skollaleikur á ystu nöf
BARNALEIÐSÖGN Í ÞJÓÐMINJASAFNI ÍSLANDS Sunnudaginn 6. maí klukkan14 verður boðið upp á barnaleiðsögn í
Þjóðminjasafni Íslands. Þetta er síðasta barnaleiðsögn vetrarins og eru allir velkomnir. Helga Einarsdóttir safnkennari mun ganga með
börnin gegnum grunnsýningu Þjóðminjasafnsins „Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár“. Ýmsir spennandi munir á safninu verða
skoðaðir, meðal annars beinagrindur, þúsund ára gamalt skyr og leikföng eins og þau sem börn léku sér með fyrr á öldum.
Dregið verður 15. maí úr keyptum miðum í forsölu.
Í verðlaun er flug fyrir tvo til Evrópu með Iceland Express.
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D
Landsmót
hestamanna
Reykjavík
2012
Taktu þátt í forsöluleiknum
Kynntu þér forsölukjörin.
Athugið að forsölu lýkur 15. maí.
Sæti í stúku, miðar á landsmót
og hjólhýsastæði – allt bókanlegt
á www.landsmot.is
Minnum á afsláttarkjör félaga í LH og BÍ.
N1 korthafar fá 1.000 kr. afslátt.
25.06 – 01.07