Fréttablaðið - 04.05.2012, Side 54
4. maí 2012 FÖSTUDAGUR38
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég veit ekki alveg hversu mörg lög við
þurfum að semja en þetta verður ansi stórt
verk fyrir okkur,“ segir fagottleikarinn
Rebekka Björnsdóttir, meðlimur í sveitinni
Hjaltalín sem hefur verið ráðin til að semja
tónlistina fyrir myndina Days of Grey.
Myndin verður tekin upp á Íslandi seint
í sumar en um alþjólega framleiðslu er að
ræða. Hrafn Jónsson skrifar handrit myndar-
innar en leikstjórinn, Ani Simmon- Kennedy,
var meðal annars í tökuliðinu á mynd Woody
Allen, Midnight in Paris. „Það er ekki búið
að velja leikara enn þá en leikstjórinn er
væntanlegur til landsins í næstu viku til
að hitta leikara,“ segir Rebekka sem ásamt
því að semja tónlistina er meðframleiðandi
myndarinnar og sér um leikaraval.
Simmon-Kennedy og tökumaðurinn,
Cailin Yatsko, sáu sveitina spila á tón leikum
í Prag og heilluðust af tónlistinni en það
voru íslenskir skólafélagar þeirra í kvik-
myndaskólanum þar í borg sem bentu þeim á
Hjaltalín. „Þær komu á tónleikana með engar
væntingar en hrifust svo af okkur og tón-
listinni að þær fylltust innblæstri og úr varð
hugmyndin að þessari mynd.“
Days of Gray verður þögul mynd svo tón-
listin frá Hjaltalín skipar stóran sess. Myndin
fjallar um lítinn strák sem lifir í litlausum
heimi og hvernig líf hans breytist er hann
kynnist stúlku frá öðrum heimi. „Við reiknum
með því að eyða sumrinu í að semja fyrir
myndina ásamt því að vera að vinna að lögum
á nýja plötu.“ - áp
Hjaltalín semur fyrir þögla mynd
Rebekka Bryndís Björnsdóttir Hjaltalín helgarviðtal
fagottleikari
„Þótt það séu mörg stór nöfn
komin þá eiga mörg þekkt nöfn
eftir að bætast við,“ segir Ólafur
Geir Jónsson, skemmtanahaldari,
eða Óli Geir.
Hann skipuleggur tónlistarhá-
tíðina Keflavík Music Festi-
val ásamt vini sínum Pálma
Þór Erlingssyni. Hún fer fram
í miðbæ Reykjanesbæjar dag-
ana 7. til 10. júní. Fram koma eitt
hundrað flytjendur og spila þeir á
helstu skemmtistöðum bæjarins.
Þegar hafa verið bókaðir fimm-
tán flytjendur, þar á meðal Dikta,
Valdimar, Raggi Bjarna, Bjartmar
Guðlaugsson, Retro Stefson, Sykur,
Jón Jónsson, Sólstafir og Retrobot.
Verslanir, veitingahús og bæjar-
félagið verða með í stemningunni
þar sem fjölbreytileikinn ræður
ríkjum. Þetta er í fyrsta skiptið
sem blásið er til hátíðarinnar og
vonir standa til hún verði árlegur
viðburður í Bítlabænum.
„Það er gaman að sjá hversu
hversu vel allir taka í þetta,“
segir Óli Geir. Hann og Pálmi
Þór höfðu gengið með þá hug-
mynd í maganum í eitt til tvö ár
að halda svona hátíð. „Maður sér
Aldrei fór ég suður, Airwaves og
svo allar þessar sumarhátíðir.
Það er engin sumarhátíð í Reykja-
nesbæ, bara Ljósanótt sem er á
haustin. Þar sem þetta er einn
stærsti tónlistarbær landsins
fannst okkur vel við hæfi að
blása til alvöru tónlistarhátíðar.“
Keflavík Music Festival verður
næst stærsta tónlistarhátíð
landsins á eftir Airwaves. „Við
viljum stimpla okkur inn með stæl
og einbeita okkur að því að gera
hlutina vel.“
- fb
Vilja stimpla sig inn með stæl
SKIPULEGGUR TÓNLISTARHÁTÍÐ Óli Geir
er í óða önn að skipuleggja tónlistarhá-
tíðina Keflavík Music Festival.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuður,
bar sigur úr býtum í hönnunar-
keppninni Hannað fyrir Ísland
sem sýnd var á Stöð 2. Alls tóku
níu hönnuðir þátt í keppninni og
þótti Birta bera af í þeim hópi.
Tökum á þáttunum lauk í
nóvember og hefur Birta þurft
að þegja yfir sigrinum síðan þá.
„Þetta kom mér auðvitað svolítið
á óvart en það var mjög gaman
að vinna keppnina. Ég þurfti að
bíða ansi lengi með að geta sagt
fólki fréttirnar og margir voru
orðnir mjög forvitnir og spurðu
mikið út í þetta, en ég náði að
halda þessu leyndu þar til á mið-
vikudaginn var,“ segir Birta sem
gat þó blessunarlega rætt úrslitin
við vinkonu sína, Laufeyju Ingi-
björgu Lúðvíksdóttur, sem tók
einnig þátt í keppninni og hreppti
þriðja sætið.
Birta hlaut í verðlaun eina
milljón króna, saumavél og starf
hjá 66° Norður og þurfti hún
einnig að halda þessu leyndu
fyrir sínum nánustu til að koma
ekki upp um úrslit keppninnar.
„Ég byrjaði að vinna í janúar en
mátti auðvitað ekki segja neinum
og þurfti því að ljúga að vinum og
vandamönnum um hvar ég væri
á daginn,“ segir Birta sem taldi
fólki trú um að hún væri að vinna
í hinum og þessum verkefnum.
Vinnan leggst vel í Birtu og
segist hún hafa lært margt og
mikið á þeim stutta tíma sem
hún hefur starfað hjá fyrir-
tækinu. Hún hefur mestan áhuga
á hönnun götufatnaðar en síðasta
verkefni keppninnar var einmitt
að hanna götujakka. Áður hafði
Birta dvalið í New York í ár þar
sem hún starfaði sem au pair.
Þegar Birta er innt eftir því
hvort hún hafi þegar ráðstafað
vinningsfénu svarar hún játandi.
„Ég borgaði upp bílinn minn og
greiddi tryggingar en á enn þá
smá afgang sem ég ætla að nota
í sjálfa mig,“ segir hún að lokum.
sara@frettabladid.is
BIRTA ÍSÓLFSDÓTTIR: LAUG AÐ VINUM UM HVAR ÉG VAR Á DAGINN
Þurfti að bíða í hálft ár
með að segja frá sigrinum
SIGURVEGARI HANNAÐ FYRIR ÍSLAND Birta Ísólfsdóttir stendur uppi sem sigurvegari Hannað fyrir Ísland. Lokaþátturinn var
sýndur á miðvikudaginn var. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR
STÖÐVAR 2
Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
„Ég set voða mikið á alls konar
söngkonur sem ég dýrka. Þegar
ég þarf að koma mér í gírinn,
ekkert bara á föstudögum heldur
bara almennt, þá er það lagið
Today is Your Day með Shania
Twain sem ég set á, það er mitt
pepplag. Ég mæli sérstaklega
með því með morgunkaffinu.
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona.
Framhaldsaðalfundur
samtaka Psoriasis og
exemsjúklinga „Spoex“
Verður haldinn í sal Actavis Dalshrauni 1
Hafnar firði fimmtudaginn 10. maí 2012 og
hefst fundurinn kl.19.00
Dagskrá
Kosning 1. meðstjórnanda og 1. varamanns í stjórnina
Kaffiveitingar í boði
Félagar fjölmennum.
NÝ
KILJA!