Fréttablaðið - 05.05.2012, Page 39
VERSLAÐ Á NETINU
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2012 Kynningarblað Föt, fylgihlutir, matur, frímerki, tölvur, bækur, geisladiskar og fleira.
Fríhöfnin hefur komið með margar nýjungar á undanförnum mánuðum og vakið mikla athygli. Ein þeirra er í
tengslum við heimasíðuna www.dutyfree.is
en þar er nú hægt að panta vörur og láta taka
þær til, áður en lagt er af stað í ferðalagið.
„Á heimasíðu Fríhafnarinnar velur þú
þær vörur sem þú vilt panta og setur í körfu.
Starfsfólk okkar tekur saman vörur fyrir þig
og þær bíða þín þegar þú mætir í Fríhöfn-
ina,“ segir Ásta Dís Óladóttir, framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar.
Það er þrennt sem ferðalangar þurfa að
hafa í huga þegar þeir panta vörur á heima-
síðunni. Það fyrsta er að panta þarf með
minnst sólarhrings fyrirvara. Svo þarf að
velja hvort sækja eigi vörurnar í brottfarar-
eða komuverslun og að lokum að greitt er
fyrir vörurnar þegar þær eru sóttar.
„Hraðinn er svo mikill hérna hjá okkur og
því er þetta góð viðbót við þá þjónustu sem
Fríhöfnin veitir. Við erum að koma til móts
við þarfir viðskiptavina okkar,“ segir Ásta.
Úrvalið í Fríhöfninni á Íslandi er eitt það
mesta sem gerist í fríhöfnum almennt. „Nú
hafa viðskiptavinir okkar meiri tíma en áður
til að skoða úrvalið hjá okkur heima úr stof-
unni áður en farið er í ferðalagið og því er
auðvelt gera verðsamanburð.“
Ásta segir að það sé upplagt að panta
leikföngin handa börnunum, sælgætið og
jafnvel hinn svokallaða „toll“ áður
en lagt er af stað heim úr ferðalag-
inu og sækja pokann í komuversl-
unina. Það er óneitanlega þægilegt
að þurfa ekki að bera gjafir og poka á
milli landa, auk þess sem þyngd á
töskum og umfang er farið að hafa
áhrif á verð fargjalda.
Skoðið heimasíðu Fríhafnarinnar
www.dutyfree.is og kynnið ykkur þjón-
ustuna.
Byrjaðu ferðalagið heima með
því að panta vörur á netinu
Nú er hægt að panta vörur úr verslunum Fríhafnarinnar á netinu og spara sér þannig sporin. Vörurnar eru svo sóttar í brottfarar- eða komuverslun.
Úrvalið í Fríhöfninni á Íslandi er eitt það mesta sem gerist í fríhöfnum almennt.
Það er upplagt að panta leikföngin handa börnunum, sælgætið og
jafnvel hinn svokallaða „toll“ áður en lagt er af stað heim úr ferðalaginu.
Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segir nýja þjónustu koma til móts við þarfir viðskiptavina.
Sparaðu þér sporin – byrjaðu ferðalagið heima