Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 98
5. maí 2012 LAUGARDAGUR62 62
popp@frettabladid.is
Leikkonan Cameron Diaz
brast í grát þegar hún sá nýja
og töluvert styttri klippingu
sína. Þetta sagði hún þátta-
stjórnandanum Jay Leno í
The Tonight Show.
Diaz ákvað að láta vinkonu
sína klippa sig stuttu fyrir
jól og að klippingin hafi orðið
alltof stutt. „Það varð einhver
misskilningur og hún klippti
mig stutt. Ég fór að hágráta
þegar ég sá klippinguna, mér
fannst ég svo berskjölduð.
Það er hræðilegt að vera allt
í einu ekki með neitt hár,“
útskýrði leikkonan.
Diaz og hárgreiðslukonan
ræddu þó málin og eru vin-
konur enn í dag. „Ég skrif-
aði henni nokkur bréf daginn
eftir og fullvissaði hana um
að ég ætlaði ekki að drepa
hana.“
Grét eftir klippingu
STUTT HÁR Cameron Diaz grét eftir að hún
var klippt allt of stutt. NORDICPHOTOS/GETTY
Synir Elizabeth Taylor eru
óánægðir með að Lindsay
Lohan hafi verið fengin til að
leika goðsögnina í sjónvarps-
kvikmynd um ævi Taylor.
Michael og Chris Wilding telja
Lohan ekki hafa hæfileikana
til að leika móður þeirra.
„Þeir telja að það séu
ógrynnin öll af hæfileika-
ríkum leikkonum sem væru
betur til þess fallnar að leika
Elizabeth. Þeim finnst að
móðir þeirra eigi betra skilið
en þetta, hún var ekki aðeins
hæfileikarík leikkona heldur
mikill mannvinur og þeim
finnst það óvirðing við minn-
ingu hennar að óútreiknanleg
partípía á borð við Lohan hafi
verið ráðin í hlutverkið,“ sagði
innanbúðarmaður í viðtali við
The Enquirer.
Taylor lést í mars í fyrra, þá
79 ára að aldri.
Synir Taylor ósáttir
ÓSÆTTI Synir Elizabeth Taylor eru óánægðir
með að Lindsay Lohan hafi verið fengin til
að leika móður þeirra. NORDICPHOTOS/GETTY
ÁÆTLAÐ ER að söngkonan Jessica Simpson geti grætt
allt að 1,7 milljarða króna með fæðingu dóttur sinnar, Maxwell
Drew. Peningana fengi hún með því að selja myndir af
barninu, veita viðtöl og bæta barnalínu við fatamerki sitt.
ÁR FYLLIR breska söngkonan Adele í dag. Ekki er
víst að hún haldi mikið partý í tilefni dagsins því hún
ku vera í heilsuátaki en hún eyðir eflaust deginum
með kærastanum, Simon Konecki.
24
Tónleikahátíðin Reykjavík
Live verður haldin í fyrsta
skipti nú um miðjan maí.
Yfir fimmtíu hljómsveitir
og listamenn koma fram.
„Við ákváðum að hleypa þessu af
stokkunum núna í upphafi sumars
þegar krakkar eru að klára prófin
og sólin komin hátt á loft,“ segir
Franz Gunnarsson um fimm daga
tónleikahátíðina Reykjavík Live
sem haldin verður á Gamla Gaukn-
um, Glaumbar, Prikinu, Frú Berg-
laugu og hamborgaratrukknum
Rokk-Inn og hefst 16. maí.
Yfir 50 hljómsveitir og lista-
menn koma fram á hátíðinni og má
þar meðal annars nefna Valdimar,
Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Reykja-
vík!, Endless Dark, Agent Fresco
og marga fleiri. „Við verðum með
rosalega góða flóru af bæði vinsæl-
um listamönnum og líka nöfnum
sem eru rétt að byrja og jafnvel að
gefa út sína fyrstu plötu um þess-
ar mundir. Við bjóðum upp á marg-
ar tónlistarstefnur, svo það ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Franz. Verði hefur held-
ur betur verið stillt í hóf, en arm-
band sem veitir fólki aðgang á alla
tónleikana kostar litlar 4.990 krón-
ur. „Þetta er hálfgert krepputilboð.
Við viljum bara gera vel við fólk
svo það geti skemmt sér fyrir lítinn
pening,“ segir Franz, en takmarkað
upplag er af armböndum sem eru
þegar komin í sölu á midi.is.
Armbandinu fylgja líka ýmis
fríðindi og ættu þau því ekki að
vera lengi að borga sig upp. Arm-
bandshöfum bjóðast alls konar til-
boð á þeim stöðum þar sem hátíðin
verður haldin, auk þess sem þeim
verður boðið á kvikmyndakvöld að
sjá Svartur á leik á lokadegi hátíð-
arinnar og þeir komast frítt í sund á
meðan á hátíðinni stendur. „Þá ættu
allir að geta skrúbbað af sér skítinn
á milli tónleika,“ segir Franz. - trs
Fimm daga tónleikahátíð
RETRO STEFSON Hljómsveitin Retro Stefson verður á meðal þeirra rúmlega 50 lista-
manna og hljómsveita sem koma fram á tónleikahátíðinni.
Mark Ruffalo fer með
hlutverk Bruce Banner
og heljarmennisins Hulk
í stórmyndinni The Aven-
gers. Leikarinn segist
hafa upplifað Hulk-leg
augnablik á sínum yngri
árum en hafi nú mikið
jafnaðargeð.
„Þegar ég var ungur
leikari varð ég oft mjög
reiður þegar ég fékk ekki
hlutverk. Myndir héngu á skrítnum
stöðum í íbúðinni minni
til að fela göt og holur
sem ég hafði gert í bræð-
iskasti. Ég þekki þessa
hömlulausu reiði vel,“
sagði Ruffalo en bætti
við að reiðin hefði runn-
ið af honum með árunum.
„Eins og steinn sem slípast
til í fjörunni, hef ég einn-
ig slípast til. Ég berst ekki
við sömu skapgerðarbrest-
ina núna og ég gerði þá.“
Ruffalo tók æðisköst
MARK RUFFALO
Eiginmaður Sölmu Hayek mætti
fyrir rétt á fimmtudag vegna kröfu
barnsmóður sinnar, Lindu Evangel-
ista, um meðlag upp á 5,7 milljónir
á mánuði. Í réttinum kom fram að
milljarðamæringurinn Francois-
Henri Pinault hafi ekki viljað eign-
ast barn með fyrirsætunni.
„Hún var svo ánægð með að vera
orðin barnshafandi, en þetta var
ekki áætlun mín og ég ákvað því
að slíta sambandinu á þessum tíma.
Ég spurði hana hvað hún vildi gera
í sambandi við óléttuna, ég vildi
ekki eignast börn enda höfðum við
aðeins verið saman í fjóra mán-
uði og ég þekkti hana lítið,“ sagði
Pinault fyrir réttarsal. Evangelista
ákvað þó að eignast soninn Augie
og ala hann upp sjálf. Hún hélt að
auki faðerni barnsins leyndu þar til
í fyrrasumar þegar hún fór fyrst
fram á meðlag frá Pinault.
Pinault á einnig dótturina Val-
entinu Palomu Pinault með leik-
konunni Sölmu Hayek.
Sleit sambandi
þegar barns var von
VILDI EKKI BÖRN Milljarðamæringurinn
Francois-Henri Pinault upplýsti fyrir rétti
að hann hafi ekki viljað eignast barn
með fyrirsætunni Lindu Evangelista.
NORDICPHOTOS/GETTY
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
Ársfundur 2012
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2012, verður haldinn fimmtudaginn 10. maí nk. kl. 17.00
í Bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð.
Stjórn og framkvæmdastjóri
Í stjórn lífeyrissjóðsins eru Gunnlaugur Júlíusson, stjórnarformaður, Guðríður Arnardóttir, Gunnsteinn Sigurðsson,
Helga Elínborg Jónsdóttir og Ragnar Snorri Magnússon.
Framkvæmdastjóri er Jón G. Kristjánsson.
Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími 570 0400 lss@lss.is - www.lss.is