Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGVerslað á netinu LAUGARDAGUR 5. MAÍ 20122 Hólmfríður Guðmundsdóttir, eigandi Curvy.is var búin að ganga með hugmyndina um að opna verslun fyrir stúlkur i stærri stærðum í maganum lengi. Sjálf var hún í vandræðum með að finna á sig föt sem pössuðu hennar vexti og voru um leið klæðileg og samkvæmt nýjustu tísku. Tískublogg kveikti hugmyndina „Mér fannst það sem var í boði á markaðnum fyrir konur í stærri stærð- um frekar miðað að eldri konum og svo var það líka frek- ar dýrt. Hugmyndin að verslun eins og curvy.is, þar sem boðið er upp á það sem er nýtt og ferskt og á sanngjörnu verði, kviknaði út frá tískubloggi sem ég hef skrifað síðan 2010, www.curvychic.blog.is. Þar var ég að skrifa um tísku og tískustrauma fyrir lögulegar konur og var að gefa góð ráð varð- andi klæðaburð og annað. Ég fann strax fyrir miklum áhuga frá lesendum bloggs- ins og fann fyrir þörf fyrir eitthvað nýtt þannig að ég ákvað að opna búðina. Hún var svo opnuð fyrir ári síðan og hefur vaxið hratt,“ segir Hólmfríður. Stækkar í haust „Ég er mjög virk í að setja inn nýjar vörur og fæ sendingar vikulega. Síðan er upp- færð mjög reglulega og vörurnar fara hratt því ég tek ekki mikið inn af hverri vörutegund. Það er frekar leiðinlegt þegar margir eru í sömu flíkinni.“ Hólmfríður segir búðina vera að sprengja húsnæðið utan af sér og stefnir á að opna nýja og stærri verslun í haust. „Búðin er opin þrisvar sinnum í viku og þá getur fólk komið og skoðað og mátað. Sumum finnst erfitt að panta í gegnum netið en ég er mjög sveigan- leg þegar kemur að skilum og skiptum ef varan passar ekki. Fólki er líka velkomið að hringja og panta í gegnum símann ef það veigrar sér við að panta á netinu.“ Ef verslað er á Curvy.is er alltaf frítt að fá vörur sendar heim með bréfapósti eða á nærliggjandi pósthús þegar greitt er með millifærslu eða korti. Slóðin á netverslunina er www.curvy.is. Verslun fyrir lögulegar skvísur Curvy.is er netverslun fyrir konur á öllum aldri, allt frá fermingaraldri til sjötugs. „Þetta er verslun fyrir skvísur og skvísur geta verið á öllum aldri.“ Curvy. is býður upp á mikið úrval af fatnaði fyrir lögulegar konur í stærri stærðum. Fríða var búin að ganga með hugmyndina um að opna verslun fyrir stúlkur i stærri stærðum í maganum lengi. MYND/VALLI TÍSKURÁÐ Í BOÐI CURVY.IS Svartur er klassískur litur. Reynið samt að velja frekar bjarta liti yfir sumartímann, þeir bæði létta lund og gefa frísklegt yfirbragð. Svarti liturinn er ekki endilega það sem grennir, galdurinn liggur í sniðinu. Að klæðast réttri stærð skiptir máli. Í flestum netverslunum er stærðartafla sem hjálpar til við að finna út réttu stærðina. Munið bara að velja ekki alltof stóra stærð því pokaleg og víð föt klæða ekki af okkur. Þá er bara að taka fram málbandið og byrja að mæla! V-hálsmál er frábært að því leyti að það lengir hálsinn og dregur athyglina upp frá magasvæð- inu. Mynstur blekkja augað að mörgu leyti. Formin í mynstrinu sjálfu geta búið til kvenlega línu og látið mann virka grennri. Snið sem eru tekin aðeins inn í mittinu geta búið til mitti og ýkt það og henta því flestu vaxtarlagi. Hvað er í pakkanum? Það er spennandi að versla í gósenlandi netsins og eiga í vændum framandi pakka með dýrindis góssi frá útlöndum. En hvað vilja Íslendingar helst úr hillum netverslana? Samkvæmt upplýsingum frá Tollstjóra standa fimm vörur upp úr á óskalistanum. 1. Bækur Bækur eru í fyrsta sæti yfir inn- fluttan netvarning frá útlönd- um. Íslendingar elska að dóla sér í bókabúðum á netinu, finna fá- gæta doðranta, nýjustu met- sölubækurnar, óvænta gullmola og framandi freistingar, enda dásamleg upplifun að eiga náð- arstund með nýja bók í fanginu og hverfa á vit ævintýranna. 2. DVD-myndir Bíómyndir og hvaðeina mynd- rænt er næstvinsælast í pökk- um Íslendinga sem fara í gegnum Tollinn. 3. Tónlistargeisladiskar Í þriðja sæti er tónlist á geisla- diskum enda úrval í netheim- um óþrjótandi og endalaust hægt að kafa eftir vandfundnu efni og dýrmætum tónum með fortíð- arþrá í bland við allt það heitasta og nýjasta í tónlistarheiminum. 4. Fatnaður Tuskubúðir af öllum sortum eru vinsælar á netinu og skjóta upp kollinum eins og gorkúlur. Því skyldi engan undra að fata- kaup freisti mörlandans á netinu og þekkt að íslenskar konur setji draumabrúðarkjól sinn í netkörfu. 5. Varahlutir og íhlutir í tölvur og síma Fimmti vinsælasti innflutnings- varningurinn af netinu eru vara- hlutir og íhlutir í tölvur og síma, hleðslutæki, rafhlöður og þess háttar. Heimur minnkandi fer og leikur einn að nálgast það sem vantar í tölvubúðum netsins. 2 4 53 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.