Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 2
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR2
Sveinn, vantar þá allan
flokksaga?
„Þá vantar í það minnsta allan aga í
fjármálum.“
Sveinn Arason er ríkisendurskoðandi. Í
formála hans að ársskýrslu Ríkisendur-
skoðunar gerir Sveinn athugasemd við
að stjórnmálaflokkarnir skili ekki árs-
reikningum á réttum tíma og hafi slugsað
síðustu ár.
PATREKSFJÖRÐUR „Ef þetta nær
fram að ganga mun þetta verða
eitt versta umhverfisslys Íslands-
sögunnar og þar með af skræming
á okkar fallega þorpi,“ segir
Jónas Þór, íbúi á Patreksfirði, um
fyrirhugaðar framkvæmdir við
snjóflóðagarða ofan sjúkrahúss
og grunnskóla bæjarins.
Ofanflóðasjóður ákvað að láta
reisa garðana eftir að snjóflóða-
hættan þarna var metin fyrir
nokkrum árum. Til stendur að
hefja fram kvæmdir í sumar.
Jónas hefur skrifað Svandísi
Svavarsdóttur umhverfisráð-
herra bréf vegna málsins. Hann
gagnrýnir fyrirhugaðar fram-
kvæmdir harðlega og segir
fáránlegt að Umhverfis stofnun
hafi ekki séð ástæðu til þess að
fara í umhverfis mat áður en þær
voru sam þykktar. Jónas segir
umhverfis-
spjöl l in sem
garðarnir munu
valda gífur-
leg, en meðal
annars þarf
að ryðja burt
þéttum skógi
sem starfsmenn
sjúkrahússins
hafa ræktað í
hlíðinni síðan
árið 1950.
„Það hefur aldrei fallið snjóflóð
í hlíðinni á sögulegum tíma. Hún
er bara þannig að þar festir aldrei
snjó,“ segir hann.
Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri Vesturbyggðar, segir
ákvörð unina algjörlega í höndum
ríkisvaldsins og byggða á hættu-
mati frá ofanflóðavörnum.
Hún segir að vísað sé til verstu
aðstæðna sem orðið geti og málið
ekki í höndum bæjarins. „Hver
vill taka þá ákvörðun um að fara
ekki í ofanflóðavarnir þegar flóð
fellur svo á sjúkrahúsið og grunn-
skólann? Persónulega finnst mér
veik rök að verja einhverjar
hríslur. Þetta er áhætta sem við
getum ekki tekið,“ segir Ásthildur.
Úlfar Thoroddsen, forstjóri
Sjúkrahússins á Patreksfirði,
segir skóginn vera mestu eftir-
sjána, en það verði svo að vera.
Fram kvæmdir vegna snjóflóða-
garða hafi legið fyrir þegar hann
var í sveitarstjórn á árunum 2006
til 2010.
„Umhverfisspjöll fylgja öllum
svona görðum,“ segir hann.
„Húsin standa svo nálægt fjall-
inu að nauðsynlegt er að verja
þau. Við því er ekkert að segja.“
sunna@frettabladid.is
Greniskógi rutt burt
vegna snjóflóðagarða
Ekki eru allir sammála um að reisa eigi snjóflóðagarða í hlíðinni fyrir ofan
grunnskólann og sjúkrahúsið á Patreksfirði. Íbúi segir gríðarleg náttúruspjöll
verða við framkvæmdirnar. Veik rök að vilja verja hríslur, segir bæjarstjóri.
SKÓGI VAXIN HLÍÐ Snjóflóðagarðarnir eiga að rísa í hlíðinni þar sem greniskógurinn sést í fjarlægð hægra megin á myndinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
ÁSTHILDUR
STURLUDÓTTIR
SKÓLAR Fjörtíu skólabókasöfn
vítt og breitt um landið fengu í
gær úthlutun úr Skólasafnasjóði.
Að því er segir í tilkynningu er
styrkveitingin hluti af verkefninu
„Ávísun á lestur“ sem dreift var
til allra heimila á landinu í Viku
bókarinnar. Ávísunin nýtist sem
þúsund króna afsláttur af bóka-
kaupum og renna 100 krónur af
hverri notaðri ávísun í Skólasafna-
sjóð. Stefnt er að því að safna einni
milljón króna með þessum hætti
í sjóðinn. Arion banki lagði eina
milljón í sjóðinn til viðbótar.
Skólasafnasjóður var stofnaður
2010 af Félagi íslenskra bókaútgef-
enda „í því skyni að vekja athygli á
veikri stöðu skólabókasafna í kjöl-
far efnahagsþrenginganna,“ segir
í tilkynningunni. - gar
Styðja við skólabókasöfn:
Fjörutíu skólar
fengu úthlutun
HEILBRIGÐISMÁL Krakkarnir í 7. M í grunnskólanum
í Þorlákshöfn hafa skorað á bæjaryfirvöld í Ölfusi
að gæta þess að tóbaksnotkun við byggingar og á
lóðum sveitarfélagsins trufli ekki þá sem ekki nota
tóbak.
„Við tókum ágætlega í það og höfum falið áhalda-
húsinu að skoða málið,“ segir Ólafur Örn Ólafsson
bæjarstjóri sem kveður áskorun skólakrakkanna
eiga sér upphaf í umhverfisdegi sem var 25. apríl.
„Þessi bekkur í grunnskólanum hafði það verk-
efni að fara á alla staði í bænum og skoða hvernig
tóbaksvarnarmálum væri háttað. Þau sendu
áskorun á bæjarstjórnina meðal annars um það að
færa tóbaksstauta lengra frá anddyrinu í íþrótta-
miðstöðinni og fleiri stöðum. Þannig að þau þurfi
að minnsta kosti ekki að verða fyrir mengun frá
tóbaki þar sem þau fara um,“ segir Ólafur sem
kveður hins vegar geta verið tvíeggjað að færa
vindlingastaukana.
„Þá lenda stubbarnir bara í anddyrinu því fólk
eltir því miður ekki dallana. Þannig að það getur
verið erfitt að verða við þessu en það er verið að
skoða það,“ segir bæjarstjórinn.
Bæjarráðið fyrir sitt leyti þakkaði nemendum 7.
M fyrir þarfar ábendingar og minnti á að reykingar
eru bannaðar á skólalóðum og í og við íþróttamann-
virki bæjarins. - gar
Sjöundubekkingar í Þorlákshöfn orðnir þreyttir á tóbaksneyslu samborgaranna:
Bæjaryfirvöld losi þau undan tóbaki
ÞORLÁKSHÖFN Sjöundubekkingar gengu um Þorlákshöfn
á umhverfisdegi og komust að því að reykt er of nærri inn-
göngum ýmissa opinberra bygginga.
Hægt að leigja matjurtagarð
Íbúar Borgarbyggðar geta í sumar
sem fyrr leigt matjurtagarða í landi
Gróðrarstöðvarinnar Gleymméreiar
við Borgarnes. Standa tvær stærðir til
boða; 15 og 30 fermetrar.
BORGARRBYGGÐ
SVEITARSTJÓRNIR Verktakafyrir-
tækið Loftorka fær tæplega 7,7
milljónir króna í verðbætur vegna
gatnaframkvæmda í Garðabæ
fyrir fjórum árum. Bæturnar
eru greiddar þrátt fyrir að engin
ákvæði um slíkt hafi verið í samn-
ingi Loftorku við Garðabæ.
Fyrirtækið vísaði til dóms
Hæstaréttar frá 2010 í sambæri-
legu máli. Í því var fallist á kröfu
um verðbætur þrátt fyrir að
ekki væri ákvæði í samningi um
hækkun verklauna vegna verð-
lagsþróunar. Samkomulag náðist
milli bæjaryfirvalda og Loftorku
um að bærinn borgi fyrirtækinu
7.650.000 krónur. - gar
Gatnagerð í Garðabæ:
Loftorka fær
verðbætur
DÓMSMÁL Ekki liggur fyrir hvað
verður um tvo alsírska drengi,
sem hafa sótt um hæli hér á
landi, að lokinni vist á fóstur-
heimili og Fit-hosteli. Drengirnir
voru dæmdir í 30 daga fangelsi í
apríl en voru fluttir á fósturheim-
ili annars vegar og á Fit-hostelið
hins vegar þegar þeir höfðu setið
inni í þrjá sólarhringa.
Gagnrýnt hefur verið að
drengirnir, sem segjast fimmtán
og sextán ára, hafi verið dæmdir
í fangelsi, en þeir framvísuðu
fölsuðum skilríkjum við komuna
til landsins. Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum segir hins vegar
grun leika á því að þeir séu eldri
en þeir segjast vera. - þeb
Tveir ungir hælisleitendur:
Eldri en þeir
segjast vera
VEÐUR Útlit er fyrir að kólni í veðri
hérlendis á sunnudag. Samkvæmt
spá Veðurstofu Íslands skellur þá
á með norðaustan hvassviðri með
slyddu og síðar snjókomu á norð-
anverðu landinu en rigningu syðra.
Á mánudag verður síðan ákveðin
norðanátt með vægu frosti, snjó-
komu eða éljum norðan heiða
en þurru veðri syðra. Á þriðju-
dag og miðvikudag er síðan útlit
fyrir norðlæga átt og svalt veður.
Á höfuð borgarsvæðinu er gert
ráð fyrir votviðrasamri helgi og
kólnandi veðri frá og með sunnu-
deginum. - gar
Kólnar í veðri á sunnudag:
Frost og snjór á
Norðurlandi
EKKI FARNIR ENN Þótt nálgist miðjan
maí er enn von á éljaveðri.
VÍSINDI Vindgangur risaeðla af
ætt sauropoda gæti hafa hækkað
hitastig á jörðinni vegna mikils
magns metangass í prumpinu,
samkvæmt tilgátu vísinda-
manna.
Risaeðlurnar áttu það sam-
eiginlegt með kúm, geitum og
öðrum dýrum að gefa frá sér
mikið magn af metangasi.
Talið er að risaeðlurnar hafi
gefið frá sér um 520 milljón tonn
af metangasi á ári. Kýr, geitur
og önnur dýr gefa frá sér 50 til
100 milljón tonn á ári. - bj
Tilgáta um áhrif risaeðla:
Risaeðluprump
hitaði jörðina
HEILBRIGÐISMÁL „Ef að kona fer í
meðferð fyrir 24 ára aldur út af
kannabisfíkn, eru næstum því 50
prósenta líkur á að sonur hennar
geri það líka,“ sagði Gunnar Smári
Egilsson, formaður SÁÁ, í viðtali
við þáttinn Reykjavík síðdegis á
Bylgjunni í gær.
„Þegar svona tölur liggja á
borðinu finnst fagfólkinu inni á SÁÁ
nauðsynlegt að aðlaga þjónustuna að
þessari staðreynd; að það er verið að
vinna miklu meira með fjölskyldun-
um. Það er verið að vinna með börn-
um alkóhólista, beina forvörnunum
að þeim, það er augljóslega sá hópur
sem er í mestri hættu,“ sagði Gunn-
ar Smári og bætti við að líklega séu
70 til 80 prósent af þeim sem komi
inn á Vog börn alkóhólista.
Þá benti Gunnar Smári á að upp
úr 1995 verði ólögleg vímuefni
það aðgengileg að allir krakkar
á framhaldsskólaaldri geti keypt
sér hass eða amfetamín. Hass og
marijúana sé orðið að aðalvand-
anum hjá yngsta hópnum.
„Þeir ungu krakkar
sem eru í dagneyslu á
vímuefnum eru flestir
í hassi. Það er fólkið
sem er að koma inn
á Vog upp úr tvítugu og er búið að
missa af síðunglingsárunum sínum,
tímanum þegar það átti að vera í
framhaldsskóla og átti að verða að
fullorðnu fólki. Og þetta
fólk kemur algjörlega
steikt inn á Vog,“ sagði
formaður SÁÁ.
Formaður SÁÁ segir allt að áttatíu prósent sjúklinga á Vogi vera börn alkóhólista:
Koma algerlega steikt inn á Vog
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Formaður SÁÁ segir börn
alkóhólista í mestri
hættu og að vinna
þurfi mikið meira
með þeim fjöl-
skyldum.
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!