Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 10. maí 2012 25 Ég rakst á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni „ Spilaði tölvuleik í heilt ár“. Ég var ekki viss um við hverju ég átti að búast, en við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða stutta frétt þar sem stiklað var á stóru í lífi norska fjöldamorð- ingjans á tímabilinu 1995 til 2006, en samkvæmt fréttinni spilaði hann meðal annars tölvu- leikinn World of Warcraft dag- lega í heilt ár. Svo virðist sem tölvuleikjaspilun fjöldamorð- ingjans hafi stungið meira í augu fréttamannsins en stjórn- málaþátttaka hans, kynni við öfgahópa á borð við alþjóðlegu riddararegluna eða aðrir þættir. Aðrir fjölmiðlar birtu sambæri- lega grein með svipaðri fyrir- sögn, til dæmis notaði Huffing- ton Post í Bretlandi fyrirsögnina „Anders Breivik Played World Of Warcraft ‘Full-Time‘ For A Year“ og fjölmiðlar virðast ekki draga það í efa að Breivik hafi æft skotmiðið með aðstoð fyrstu- persónu skotleiksins Call of Duty: Modern Warfare, líkt og hann segir sjálfur. Þetta er ekki í fyrsta (og ekki síðasta) sinn sem tölvuleikir hafa verið tengdir með beinum eða óbeinum hætti við ofbeldisverk. Of margir fjölmiðlar falla í þá gryfju (viljandi eða óviljandi) að tengja tölvuleikjaspilun beint við ofbeldisfulla hegðun, líkt og ofan- greind fyrirsögn fréttarinnar gerir. Hefði ekki verið réttara að benda á öfga fullar skoðanir fjöldamorð ingjans í fyrir- sögninni í stað þess að minnast á tölvuleikjaspilun hans? Hvað með sjónvarpsefni? Lítil sem engin umfjöllun hefur verið um hvaða sjónvarpsefni hann horfði á, hvaða íþróttum hann var hrifnastur af eða hvernig tónlist hann hlustaði á. Á heildina litið skipta þessir þættir litlu sem engu máli og hjálpa ekki til við að útskýra ofbeldisverkin. En hvers vegna tengja fjöl- miðlar tölvuleikjaspilun oft við ofbeldisfulla hegðun? Má kalla það áróður, fordóma eða ein- faldlega vanþekkingu frétta- manna á tölvuleikjum? Fjöldi tölvuleikjaspilara er gífurlegur, eins og fjöldi þeirra sem horfa á hryllingsmyndir eða lesa glæpa- sögur, en í langflestum tilfellum beina fjölmiðlar spjótum sínum eingöngu að einum miðli; tölvu- leikjum. Samkvæmt tölum frá Enter- tainment Software Association (ESA) frá því í fyrra eru tölvu- leikir spilaðir á 72% bandarískra heimila, Interactive Software Federation of Europe (ISFE) segir að þriðji hver Evrópubúi spili tölvuleiki og samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands eru leikjatölvur til staðar á 40% íslenskra heimila. Ef ofbeldis- fullir tölvuleikir myndu breyta fólki í ofbeldismenn ætti tíðni líkamsárása og morða að hækka í takt við aukna tölvuleikja- spilun, en hver sem er getur heimsótt heimasíðu Hagstofu Íslands og séð að engin tengsl er að finna þar á milli. Ofbeldis- fullir tölvuleikir breyta fólki hreinlega ekki í morðingja. Nánast undantekningarlaust eru það ofbeldisfullir tölvu leikir sem eru tengdir við glæpi. En hvað með aðrar tegundir tölvu- leikja? Hvað með þá sem spila smáleikinn Angry Birds? Eru þeir að safna saman dauðum fuglum í poka og henda þeim í svínin í Húsdýragarðinum og ásaka þau um eggjastuld? Eða breytast þeir sem hafa spilað bónda- og garð- yrkjuleikinn FarmVille á Facebo- ok í sérfræðinga í garðyrkjumál- um og eru nú loksins færir um að sinna búskap? Og geta skákmenn ekki hætt að hugsa um hvað þá langar ógurlega að drepa kónga? Þegar ódæðisverk eru framin stökkva fjölmiðlar á tölvuleikja- spilun líkt og hundur á bein. Tölvuleikjaspilun ódæðis- mannsins skiptir meira máli en sálræn vandamál hans, kvik- mynda- og bókmenntasmekkur, lífsviðhorf, erfið æska eða eitt- hvað annað – og ekki má gleyma að þetta býður upp á krassandi fyrirsögn fyrir fréttina; „Myrti konuna út af tölvuleik”. Með slíkum fyrirsögnum og órök- studdum tengslum tölvuleikja við ofbeldi fá þeir sem spila ekki tölvuleiki ranghugmyndir um tölvuleiki sem hefur neikvæð áhrif á ímynd tölvuleikjaspilara og tölvuleikjaiðnaðarins í heild sinni. Það er ávallt hægt að finna svarta sauði sama á hvaða hóp er litið. Heilbrigt fólk gerir greinar- mun á tölvuleik og raunveru- leika. Eins og þegar skákmaður finnur leiðir til að drepa kóng andstæðingsins eða þegar fót- boltamaður reynir að koma boltanum í markið breytast reglurnar. Það sama á við þegar tölvuleikjaspilarinn spilar tölvu- leik. Spilarar gera sér grein fyrir því hvar mörkin liggja og vita vel að þótt þeir drepi óvini á tölvu- skjánum þá gilda aðrar reglur í leiknum en raunveru leikanum. Vissulega eru til ofbeldis fullir leikir sem ekki eru ætlaðir börnum en slíkir leikir eru merktir í bak og fyrir. Nú þegar 40 ár eru liðin frá því að fyrsta leikjatölvan, Magnavox Oddyssey, leit dagsins ljós getum við hreinlega litið á fullorðna tölvuleikjaspilara, sem eru lif- andi dæmi þess að leikir breyta fólki ekki í ofbeldisfull skrímsli. Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli Samfélagsmál Bjarki Þór Jónsson ritstjóri Nörd Norðursins og stundar MA-nám í tölvuleikjafræði og -hönnun við Brunel University í London ISIO 4 með D-vítamíni góð fyrir æðakerfið ISIO4 er heilsusamleg blanda af olíum — auðug af náttúrulegu E-vítamíni og viðbættu D-vítamíni. Olíurnar fjórar sem sameinast í ISIO4, repju-, oléisol-, sólblóma- og vínberjaolía, eru ríkar af E-vítamíni, andoxunarefni sem verndar frumur l íkamans. Auk þess inniheldur ISIO4 núna meira af D-vítamíni sem hjálpar þér að styrkja ónæmiskerfið. Hugsaðu um heilsuna og veldu ISIO4 með lífsnauðsynlegum Omega-3 fyrir h jarta og æ ðakerfi og Omega-6 til að halda kólesteróli í skefjum. Olían er bragðgóð og hentar vel í alla matargerð, heita rétti sem kalda. ÍS LE N SK A S IA .IS N AT 5 80 50 0 3/ 12 A ÁLFASALAN 2012 Styrkjum börn og fjölskyldur sem fljást vegna áfengis- og vímefnaneyslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.