Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 70
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR58
SUMARSLAGARINN
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Við höfum tekið eftir aukinni
eftir spurn eftir þjónustu á borð við
þessa frá útlendingum niðri í bæ,“
segir Darri MacMahon, annar eig-
andi hins nýstofnaða fyrirtækis
Reykjavík by Night.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að
lóðsa ferðamenn um hið margróm-
aða næturlíf Reykjavíkur borgar.
Darri og félagi hans, Hlynur Frið-
finnsson, stofnuðu fyrirtækið
fyrir stuttu og þekkja, að eigin
sögn, næturlífið eins og handar-
bakið á sér. „Við höfðum verið að
spá í þessu í langan tíma og nú
þegar ferðamannaiðnaðurinn er
í mikilli sókn fannst okkur ekki
annað hægt en að kýla á þetta,“
segir Darri sem er að útskrifast
sem íþróttafræðingur en Hlynur
vinnur hjá Ölgerðinni.
Reykjavík by Night er þriðja
fyrirtækið sem hefur verið stofnað
í kringum næturlífið í Reykja-
vík að undanförnu enda hefur
skemmtanamenning landans
ákveðið aðdráttarafl á ferðamenn
sem sækja landið heim. „Það er í
raun ótrúlegt að það séu ekki fleiri
svona fyrirtæki á Íslandi enda er
næturlífið frægt um allan heim.
Við höfum báðir verið að vinna og
stundað skemmtistaðina í nokkur
ár og tekið eftir útlendingum á ráfi
um bæinn án þess að vita hvert er
best að fara,“ segir Darri. Hin
fyrir tækin sem veita sömu þjón-
ustu eru Reykjavík Rocks og
Night life Friend.
Auk Darra og Hlyns eru sex leið-
sögumenn starfandi hjá Reykja-
vik by Night sem einnig taka að
sér útbúa dagsferðir. „Ég fékk
pabba minn, Neil McMahon, til
að vera með okkur en hann er Íri
sem hefur búið hér í þrjá áratugi
og ætlar að sjá um þá hópa sem
vilja til dæmis fara út að borða og
fræðast um íslenska menningu án
þess að fara á djammið. Við ættum
að geta komið til móts við fjöl-
breyttan hóp viðskiptavina.“ Hægt
er að fræðast um fyrirtækið á vef-
síðunni Rvkbynight.is. - áp
Vilja sýna ferðamönnum næturlífið
ÞEKKJA NÆTURLÍFIÐ VEL Darri
MacMahon og Hlynur Friðfinnsson hafa
stofnað fyrirtækið Reykjavík by Night
sem sérhæfir sig í að lóðsa ferðamenn
um næturlíf miðborgarinnar.
„Íslendingar hafa alltaf hugsað
vel um heimili sín og þeim þykir
mörgum gaman að elda,“ segir
innanhúshönnuðurinn Halla Bára
Gestsdóttir en hún og eiginmaður
hennar, Gunnar Sverrisson ljós-
myndari, vinna nú að stofnun nýs
veftímarits um heimili og mat.
Tímaritið ber nafnið Home &
Delicious en efnistök blaðsins
eru heimili, matur og allt sem
því fylgir. Tímaritið verður
gefið út bæði á íslensku og ensku.
Íslenskur bragur verður þó á
blaðinu þar sem verður allt frá
innlitum inn á íslensk heimili og
uppskriftum með íslensku hrá-
efni. „Netið er lifandi miðill sem
býður upp á óteljandi möguleika
og við finnum að það er áhugi
fyrir blaði á borð við þetta. Við
vinnum mestallt efnið sjálf og
verðum með fjölbreytta flóru.“
Halla Bára og Gunnar eru alls
ekki ókunnug fjölmiðlum en þau
stofnuðu og ritstýrðu blöðunum
Lifun og Veggfóðri. „Svo fluttum
við til Ítalíu þar sem ég lærði
innan húshönnun en var allt-
af með það á bak við eyrað að
beina sjónum mínum að skrifum
á þessum vettvangi. Það var svo
fyrst í vor sem við settumst niður
og ákváðum að taka upp þráðinn
að nýju eftir að hafa velt þessu
fyrir okkur í vetur,“ segir Halla
Bára en fyrsta tölublað Home and
Delicious kemur út í júní.
Þangað til verður hægt
að fylgjast með Höllu Báru
og Gunnari á bloggsíðunni
Homeanddelicious.com þar sem
þau deila ýmsum hugmyndum
varðandi heimili og mat en á
þeirri síðu verður einnig hægt
að nálgast blaðið. -áp
Nýtt tímarit um heimili og mat
UPPFULL AF FRÓÐLEIK Hjónin Halla
Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson,
hér ásamt dætrum sínum Kaju og Leu,
undirbúa útgáfu veftímaritsins Home &
Delicious sem fjallar um heimili og mat.
FRÉTTABLAÐIÐ/
„Lagið The Look með Metro-
nomy er mjög hresst og kemur
mér í sumarskap. Sem og I
Wanna Be Your Lover með La
Bionda, það kemur manni í gott
skap á hvaða árstíma sem er, en
aðallega á sumrin.“
Berglind Jónsdóttir, nemandi í Art
Direction við IED-skólann í Barcelona.
Grænmeti,
ávextir, kryddjurtir
og ber
R ÆKTAÐU
GARÐINN
ÞINN
Handbók um
matjurtarækt við
íslenskar aðstæður,
staðfærð af Birni
Gunnlaugssyni garð-
yrkjusérfræðingi.
Einföld og handhæg
fyrir alla garðræktendur
– byrjendur og lengra
komna.
„Þetta félag er svolítið eins og
Sjálfstæðisflokkurinn, til að
tryggja að félagsmenn séu í góðum
stöðum og að þeim líði vel,“ segir
Mið-Íslandsgrínarinn Dóri DNA
um Íslensku Grínmúrararegluna.
Íslenska Grínmúrarareglan er
aðilinn á bak við dularfullt merki
sem landsmenn hafa eflaust tekið
eftir í lok Mið Íslands-þáttanna og
Steindans okkar, auk þess sem það
sést á óáberandi stað á vefsíðunni
Flick My Life. Þá er það væntan-
legt á fleiri staði að sögn Dóra.
„Það er verið að vígja inn fleiri
meðlimi „as we speak” og það
eru stór nöfn. Við erum búin að
skapa okkur sess í sjónvarpinu og
á netinu en nú ætlum við að færa
okkur yfir í myndrænt, prentað
grín,“ segir hann.
Aðspurður hvort reikna megi
með að sjá menn eins og Hugleik
Dagsson bera merkið segist hann
hvorki geta játað því né neitað,
enda sé þetta leynifélag. „Þeir
vita að ég er að tala við þig um
þetta og eru ekki sáttir. Allir með-
limir reglunnar myndu neita til-
veru hennar staðfastlega, enda er
það í lögum. Ég er því að brjóta
lögin gróflega,“ segir Dóri og
viðurkennir að hann óttist mjög
afleiðingar þess brots síns að
ræða regluna við blaðamann. „Ef
næsta frétt sem þú skrifar er um
dularfullt mannshvarf á stórum
manni úr Vesturbænum þá veistu
hvað hefur gerst og lögreglan veit
þá hvar er rétt að byrja að leita,“
bætir hann við.
Blaðamaður hefur ekki farið
varhluta af ógnum Grínmúrara-
reglunnar og fengið misalvar-
legar hótanir frá hópnum eftir að
hafa rætt við Dóra. „Þeir eru blíðir
þegar það á við en eru óhræddir
við að vera harðir þegar þess
þarf. Yfirlýst markmið reglunnar
er að stjórna gríni á Íslandi, sama
hvað það kostar,“ segir Dóri og
bætir við að reglulega séu haldnir
fundir þar sem hernaðaraðgerðir
séu planaðar. „Einu skilaboðin sem
ég hef handa íslensku þjóðinni eru
bara að passa sig, því við erum að
skipuleggja okkur,“ segir hann.
Síðasti þáttur Mið Íslands
verður sýndur á Stöð 2 í kvöld og
verður spennandi að sjá hverju
grínistarnir taka þar upp á.
Þættirnir hafa hlotið misjafnar
viðtökur en yfir 400.000 manns
hafa skoðað vinsælasta atriðið
þeirra, sem fjallar um Andrés
Önd, á netinu. tinnaros@frettabladid.is
DÓRI DNA: YFIRLÝST MARKMIÐ AÐ STJÓRNA GRÍNI Á ÍSLANDI
Varar íslensku þjóðina
við Grínmúrarareglunni
MERKIÐ Merki Grínmúr-
arareglunnar hefur sést
í lok Mið Íslands-þátt-
anna og Steinda jr. auk
þess sem það er á Flick
My Life síðunni.
GRÍNMÚRARAR
SAMEINAÐIR
Grínararnir í Mið Íslandi
eru meðlimir í leyni-
reglunni, þó þeir myndu
allir neita því ef þeir yrðu
spurðir. Sömu sögu er
að segja um Steinda
jr. og félaga úr þátt-
unum Steindinn
okkar.
Vinsældir fyrirsætunnar Kolfinnu Kristófersdóttur
halda áfram að vaxa og nú síðast sat Kolfinna fyrir
í myndaþætti í þýska Vogue. Ben Hassett myndaði
fyrirsætuna en hann hefur starfað mikið fyrir
Vogue um allan heim sem og tímaritin W, Num-
ero og American Harpers Bazaar. Hassett hefur
einnig myndað fyrir merki á borð við Omega,
Dior, L’Oreal, Wella, Givenchy, Clarins og Rimmel.
Kolfinna steig sín fyrstu skref hjá umboðsskrif-
stofunni Eskimó og lenti í öðru sæti í Next-fyrir-
sætukeppninni í fyrra.
Save the Children á Íslandi