Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 16
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR16 16 hagur heimilanna KRÓNUR var meðalverðið á einu kílói af agúrkum í febrúar síðastliðnum samkvæmt Hagstofu Íslands. Verðið hefur hækkað um sjö prósent frá sama tíma árið 2010. Tryggingastofnun hefur látið útbúa sérstaka reiknivél lífeyris á heimasíðu sinni, www.tr.is. Reiknivélinni er ætlað að bæta þjónustu við viðskiptavini með því að reikna út áætlaðar greiðslur frá stofnuninni miðað við innslegnar forsendur. Hægt er að velja um að setja upphæðir inn á árs- eða mánaðargrundvelli. Á vef Tryggingastofnunar segir að hafa beri í huga að reiknivélin gefi ekki bindandi niðurstöður og sé einungis ætluð til leiðbeiningar um hugsanlegar greiðslur. Ekki er tekið tillit til frítekjumarks fjármagnstekna hjá skattinum. ■ Tryggingar Finndu lífeyrinn með einfaldri reiknivél 443 Íslendingar eru meðal kaffiþyrstustu þjóða heims. Við vermum fjórða sæti heimslistans yfir þær þjóðir sem drekka mest kaffi miðað við höfðatölu, enda neytir hver Íslendingur að meðaltali um það bil 8,3 kílóa af kaffibaunum á ári hverju, að því er greint er frá á vef Grapevine. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru um það bil 2150 tonn af kaffi flutt inn til landsins á síðasta ári. Verð á kaffi hefur rokið upp á síðustu árum, en það hefur hækkað um rúm 75 prósent frá árinu 2007. ■ Kaffi Íslendingar með mestu kaffiþjóðum heims The Laundromat Café á Kóngavegi í Kaupmannahöfn hefur verið tilnefnt til verðlaunanna „Best Brunch in Town“ á vefsíðunni Alt om Koben- havn. Síðan er í eigu dagblaðsins Berlingske Tidende. Friðrik Weishappel, eigandi Laundro- mat, segir í samtali við Vísi að viðurkenningin sé mikils metin. „Þetta er töluvert mál því ef þú vinnur þetta þá ertu í góðum málum,“ sagði Frið- rik. Veitingastaðurinn hlaut verðlaunin síðast árið 2007 og jukust viðskiptin á stöðunum þremur í Kaupmannahöfn töluvert eftir það. Eins og kunnugt er hefur Laundromat verið starfrækt í Reykjavík undanfarin misseri og hefur reksturinn gengið vel. ■ Veitingahús Laundromat með besta brunch-inn Fyrsta bláa endurvinnslu- tunnan var afhent í Kópa- vogi í gærmorgun. Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri Kópa- vogs, færði Guðrúnu Benediktsdóttur, íbúa í Brekku smára í Kópa- vogi, fyrstu tunnuna. Fram kemur í tilkynn- ingu Kópavogsbæjar að á næstu dögum og vikum verði tunnum dreift til allra bæjarbúa. „Kópavogsbær er fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að bjóða slíka þjón- ustu. Þar með geta bæjarbúar flokkað sorp beint í endurvinnslutunnu við heimili sitt,“ segir í tilkynningunni, en markmiðið er sagt vera að hvetja til endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fari til urðunar. „Eftir breytingarnar hafa bæjarbúar aðgang að tveimur tunnum við heimili sitt; einni grárri fyrir almennt sorp og annarri blárri þar sem í fara dagblöð, fernur, bylgjupappi og fleira sem síðan er sent til endur- vinnslu.“ Fulltrúar frá Kópavogsbæ og Íslenska gámafélaginu hafa síðustu vikur gengið í fjölbýlishús í bænum og kynnt nýtt fyrirkomu- lag í sorphirðu. Kostnaður við bláu tunnurnar er innifalinn í sorp- hirðugjöldum. - óká Endurvinnslutunnum dreift í Kópavogi: Fyrsta bláa tunnan afhent íbúa í gær FÉKK FYRSTU TUNNUNA Guðrún Benediktsdóttir, íbúi í Brekkusmára, og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. MYND/KÓPAVOGSBÆR GÓÐ HÚSRÁÐ Tyggjó losað úr hári Úrræði sem komið geta í veg fyrir að skærunum sé beitt. Stundum kemur það fyrir að tyggigúmmí klínist í hár. Börn (og fullorðnir) hafa til dæmis lent í því að sofna með tyggjóið í munninum og vaknað svo með það í hárinu. Til þess að forða hárinu frá skærunum og tísku- eða útlitsslysi þar með hefur fólk brugðið á margvísleg ráð í gegnum tíðina. Ein leið er að setja majónes í hárið og láta liggja í um tíu mínútur áður en reynt er að ná öllu saman úr. Sumir nota jafn- vel hnetusmjör og enn aðrir leggja til notkun á WD-40 spreyi, en ákveðinn hópur fólks telur slíkt efni geta fengist við flestan vanda. Margir eru farnir að huga að garðinum, en á vorin verður fólk að hafa varann á og passa að fara til dæmis ekki of fljótt út með ungar plöntur. „Vorin eru alltaf svolítið óstöðugur tími og maður veit aldrei hvernig veðrið er,“ segir Steinunn Reynis- dóttir, garðyrkjufræðingur hjá Garðheimum. Hún segir því best að hafa varann á í garðinum. Ef farið sé út með plöntur sé gott að breiða yfir þær akríldúk eða hafa þær í vermikössum. Hún segir um að gera að stinga upp garða og fá loft í jarðveginn á næstunni, áður en farið er í frekari verk. Einnig sé tímabært að bera á gras. „Nú er líka tíminn til að sá fyrir matjurtum inni, ef fólk er að hugsa um það. Svo er yfirleitt farið með þær út í lok maí eða byrjun júní.“ Hún segir best að huga að því að gróðursetja úti þegar hætt er að frysta á næturnar, en borið hefur á næturfrosti undanfarið. „Þegar það er frost á næturnar er um að gera að passa að vökva plönturnar yfir hádaginn, svo þær nái að draga í sig einhvern vökva og séu betur varðar gegn þessu. Þá þarf bara að passa að skrúfa fyrir aftur í tíma svo þær séu búnar að draga vökv- ann upp í sig áður en frystir á ný.“ Fólk missir þó ekki af lestinni þótt ekki sé allt sett niður í lok maí. Hægt er að setja ýmislegt niður í garðinn seinna. „Þetta er aðallega spurning um að þá getir þú ekki nýtt þér allar tegundir, en til dæmis blaðsalat og jafnvel kartöflur er hægt að setja niður vel fram í júní. Jarðvegshitinn þarf að nást aðeins upp, heppilegt er að hann sé kominn í sex til átta gráður fyrir matjurtir.“ thorunn@frettabladid.is Vorin alltaf óstöðugur tími VORVERKIN Steinunn segir um að gera að stinga upp garða og bera á gras núna. Ef farið er út með plöntur er best að breiða yfir þær akríldúk eða hafa þær í vermi- kössum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.