Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 56
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR44
lifsstill@frettabladid.is
HEILSA Nomophobia kallast það er
fólk hræðist að vera úr símasam-
bandi við aðra og samkvæmt nýrri
rannsókn eru um 66 prósent Breta
haldin þessari fælni.
Um þúsund manns tóku þátt
í rannsókninni sem var stýrt af
Secur Envoy í Bretlandi og voru
niðurstöður hennar þær að 66 pró-
sent Breta óttist það að vera síma-
laus. Um 41 prósent þeirra er tóku
þátt í könnuninni sögðust jafn-
framt eiga fleiri en einn farsíma.
Rannsóknin leiddi í ljós að þetta
fólk þjáðist af nomophobia sem
er mikill ótti við það að vera ekki
í símasambandi við annað fólk.
Fyrir fjórum árum síðan voru 53
prósent Breta haldnir sömu fælni.
Fleiri konur en karlar þjáðust af
þessum ótta, í ljós kom að 70 pró-
sent kvenna óttuðust símaleysi
en 61 prósent karla. Þeir voru þó
líklegri til að eiga tvo farsíma.
44
Rauða dreglinum var rúllað út í New York í vikunni er hið
árlega galakvöld Metropolitan-safnsins fór fram. Þangað
sækir fræga fólkið og keppist við að skarta sínu fegursta
með misjöfnum árangri. Best klæddu konur kvöldsins að
mati Fréttablaðsins voru meðal annars leikkonan unga
Camilla Belle, fyrirsætan Karolina Kurkova og popp-
stjarnan Rihanna. Þær sem þóttu hins vegar skjóta vel
yfir markið í kjólavali voru Kristen Stewart, sem nýlega
hlaut titilinn best klædda kona Bretlands og tískufyrir-
myndin Chloe Sevigny. Stundum er vert að muna tísku-
regluna „minna er meira“ til að koma í veg fyrir tískuslys.
Misjafn glæsi leiki
á Met-ballinu
1 2
3 4
1 2 3
4
KAROLINA KURKOVA Í RACHEL ZOE
1
SARAH JESSICA PARKER Í VALENTINO 2
RIHANNA Í TOM FORD
3
CAMILLA BELLE Í RALPH LAUREN
4
CHLOE SEVIGNY Í MIU MIU
EVA MENDES Í PRADA
FLORENCE WELCH Í MCQUEEN
KRISTEN STEWART Í BALENCIAGA
1
2
3
4
BEST KLÆDDU # VERST KLÆDDU#
TÆKNI Læknar við Memorial
Hermann-sjúkrahúsið í Houston
framkvæmdu heilaskurðaðgerð
í beinni útsendingu á Twitter-
síðunni í gær.
Læknarnir fjarlægðu heila-
æxli úr 21 árs konu og stóð út-
send ingin yfir í um fjórar klukku-
stundir. Fyrst var sýnt frá
undir búningnum fyrir aðgerðina
og eftir það var sýnt þegar höfuð-
kúpan var opnuð og æxlið fjarlægt.
Dr. Dong Kim framkvæmdi
aðgerðina, samkvæmt frétta-
vef Time. Hann er taugaskurð-
læknir og einn af þeim sem önn-
uðust bandarísku þingkonuna
fyrr verandi, Gabrielle Giffords,
eftir að hún var skotin í höfuðið.
„Fólk er mjög spennt að sjá
hvað gerist í svona heilaskurð-
aðgerð,“ sagði Kim fyrir að-
gerðina. Á meðan aðgerðin
stóð yfir svaraði hópur lækna
spurningum Twitter-notenda um
aðgerðina, auk þess sem mynd-
skeið frá henni voru sett á You-
tube-síðuna.
Heilaskurðaðgerð á Twitter
AÐGERÐ Heilaskurðaðgerð var sýnd í
beinni útsendingu á Twitter.
Óttast farsímaleysi
ÓTTAST SÍMALEYSI Ný rannsókn sýnir að
fleiri Bretar óttast símaleysi í dag en fyrir
fjórum árum síðan. NORDICPHOTOS/GETTY
HÁR MISSIR MEÐALMAÐURINN yfir daginn. Megrun og mikið þyngdartap getur aukið hármis-
sinn og komið í veg fyrir að hárið síkki. Járn, prótín, lítið stress og mikill svefn getur hins vegar komið í veg
fyrir aukið hárlos.
100