Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 31
Ég var alltaf að sauma og saumaði til dæmis fermingarkjólinn minn sjálf,“ segir Eva Brá Barkardóttir,
nýútskrifaður fatahönnuður þegar hún
er spurð hvort áhuginn á tísku hafi
alltaf blundað í henni. Útskriftarlína Evu
samanstóð af kjólum, buxum, toppum
og prjónaflíkum og þar mátti meðal
annars sjá tilkomumikinn kimono úr
bleiku leðri.
„Ég rannsakaði japanska efnisvinnslu,
sibori dyeing technique, en sú aðferð
er notuð til að lita viðkvæm efni eins og
silki. Ég prófaði hana á þykk og gróf efni
eins og leður og blandaði þannig saman
japanskri tækni og fornum japönskum
hefðum og pönki og líka smávegis af
glamúr frá tíunda áratugnum,“ útskýrir
hún og segir línuna geta staðið fyrir
hennar eigin fatastíl.
„Ég blanda sjálf oft einhverju saman
sem öðrum dytti kannski
ekki í hug að gera en útkoman
verður þá óvænt og skemmti-
leg. Ég á mér ekki endilega
uppáhaldshönnuð eða -merki,
minn stíll fer bara eftir dögum.“
Í sumar ætlar Eva heim til
Vestmannaeyja að vinna og eftir
það stefnir hugurinn út. Berlín
er draumaborgin. Hún er þó ekki
viss um að hún stofni sitt eigið
hönnunar fyrirtæki strax.
„Mig langar að slappa aðeins
af eftir törnina í skólanum. Hugsa
málið í Berlín.
Ég held að ég þurfi að afla mér
reynslu og þekkingar áður en ég stofna
eigið merki og fara kannski í starfsnám
í einhver ár áður. En ég er reyndar ekki
ákveðin í að halda áfram í fatahönnun,
mig langar að prófa allt.“ ■ rat
BLEIKT OG PÖNKAÐ
FATAHÖNNUN Eva Brá Barkardóttir fatahönnuður blandaði saman
japönskum hefðum, grófu pönki og glamúr í útskriftarlínu sinni frá LHÍ.
VILL PRÓFA
ALLT Evu Brá
Barkardóttur
dreymir um að
fara til Berlínar
eftir sumarið og
íhuga framtíðina.
MYND/VALLI
GLAMÚR
Áhrif tíunda
áratugarins
mátti sjá í út-
skriftarlínu Evu.
MYNDIR/HÖRÐUR
SVEINSSON
SKRAUTLEGT FRÁ TOPPI TIL TÁAR
Blómamunstur verða áberandi í sumar sem og hvers kyns
skrautlegur klæðnaður og eru jafnvel dæmi um að fólk
klæðist skræpóttu frá toppi til táar og velji skó og fylgi-
hluti í stíl. Hér er dæmi um blómakjól frá D&G.
ted SUMMER SKY - vel fylltur í A, B, C, D
skálum á kr. 8.680,-
Glæsilegur!
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Rafknúnir
lyftihæginda
Skoðið brot af úrvalinu á Facebook
SCHMENGER
SCHUHMANUFAKTUR
KENNEL
NÝ SENDING
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
LOKSINS
LAGERÚTSALA
aðeins í 3 daga!
20-50%
afsláttur
Föstudaginn
11. maí 12-18
Laugardaginn
12. maí 12-16
Sunnudaginn
13. maí 12-16