Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 46
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR34
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. fúska, 6. hljóm, 8. vefnaðarvara,
9. blessun, 11. númer, 12. nær öll,
14. trjátegundar, 16. tveir eins,
17. pota, 18. ennþá, 20. tvíhljóði,
21. málmhúða.
LÓÐRÉTT
1. grunnflötur, 3. snæddi, 4. tónverki,
5. for, 7. málstaður, 10. neitun,
13. sjáðu, 15. grobb, 16. skref,
19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. káka, 6. óm, 8. tau, 9. lán,
11. nr, 12. flest, 14. eikar, 16. ff,
17. ota, 18. enn, 20. au, 21. tina.
LÓÐRÉTT: 1. gólf, 3. át, 4. kantata,
5. aur, 7. málefni, 10. nei, 13. sko, 1
5. raup, 16. fet, 19. nn.
Frí snýst ekki bara um
bjór, sól og sand á milli
tánna! Nú höfum við
tækifæri til að upplifa
allt það sem hann
barðist fyrir! Up close!
Og mig hefur lengi
dreymt um að sitja í
klefanum hans! Heyra
bergmál fortíðarinnar!
Finna sársaukann sem
Nilsen hlýtur að hafa
upplifað á meðan hann
sat inni.
Hver?
Nilsen
Mandela!
Pondus! Við
erum ekki
að fara á
HM í Suður-
Afríku í
sumar!
Er HM líka
þar í sumar?
Það er bara
bónus! og
hey... ég GET
alveg farið
einn!
Gleymdu
því! Þú
verður hér!
Þetta fékk
Nilsen lika
að heyra!
Ég er upptekinn.
Skildu eftir
skilaboð.
Ég ætla að fá einn ís
með hnetusmjöri, einn
með súkkulaðibitum,
einn með bláberjum...
…Og einn með mauk-
uðum baunum.
Nýverið sóttu mig heim óvelkomnir gestir. Þær eru stundum kenndar við
bros og sagðar vitnisburður visku. En
þar sem þær blöstu við mér í speglinum,
myrkar dældir eins og dalir inn á milli
fjalla, voru öll slík hugrenningatengsl
óra fjarri. Ég var ekki tilbúin fyrir mark
um tímans þunga nið á andlitinu á mér.
Hrukkurnar kringum augun yrði að reka
burt. Ég kom mér upp vopnabúri af krem-
dósum og smyrsltúpum settum loforðum
um framlengda æsku. Ég var nýbúin að
maka mig áburði er ég rakst á auglýsingu á
vefmiðli sem varð til þess að mér rann kalt
vatn milli skinns og hörunds.
ÞEGAR ég var unglingur fór ég nokkrum
sinnum með öldruðum konum í fjölskyld-
unni að sækja lúpínuseyði til manns sem
bruggaði það heima hjá sér og gaf. Seyð-
ið átti að vera allra meina bót. Bragð-
vondan drykkinn píndu þær ofan í sig
með ósk um stundarfróun frá kvillum
sínum. En batinn lét á sér standa.
Seyðið hafði ég talið löngu horfið
af sjónar sviðinu. En þarna var
það, í nýjum umbúðum, auglýst
til sölu með orðunum: „Krabba-
mein, asma, ofnæmi, exem, treg
blóðrás, blöðruhálskirtilsbólga,
Parkinsons veiki, umgangspest-
ir… lúpínuseyðið gæti hjálpað.“
SEM unglingur skildi ég ekki
hvers vegna eldklárar, lífs-
reyndar konur létu glepjast af snákaolíu á
borð við lúpínuseyði. En þar sem ég sat við
tölvuskjáinn svo þéttsmurð andlitskremi
að ætla mátti að markmiðið væri eilíf varð-
veisla á múmíuformi rann upp fyrir mér
ljós. Ástæðan var von. Nokkrar hrukkur
nægðu til að ég gaf gagnrýna hugsun upp
á bátinn. Ég hefði makað mig kúamykju
hefði L‘Oréal sett hana í dós. Það var ekki
að furða að vonin glepti gömlu konunum
sýn þegar sjálf heilsan var annars vegar.
ÓHEFÐBUNDNAR lækningar hafa verið
í umræðunni eftir að sýnd var um þær
heimildarmynd á RÚV í síðustu viku.
Ofbauð mörgum hve ógagnrýnin myndin
var á lækningaaðferðir sem enginn vís-
indalegur fótur er fyrir. Öðrum þótti
málið stormur í vatnsglasi. En þvert á
það sem margir vilja vera láta eru óhefð-
bundnar lækningar ekki aðeins gagns-
lausar. Þær eru oft einnig skaðlegar.
Johnny Rotten, söngvari The Sex Pistols,
sagði í nýlegu viðtali frá láti stjúpdóttur
sinnar úr brjóstakrabbameini í kjölfar
þess að hún kaus óhefðbundnar lækningar
umfram hefðbundnar. „Hún þurfti ekki
að deyja … sum okkar í fjölskyldunni telja
þetta jaðra við sjálfsmorð.“ Óhefðbundnar
lækningar eru iðnaður sem græðir fúlgur
fjár á komplexum, vanlíðan, örvæntingu
og ótta fólks. Þær nýta sér varnarleysi
þess á viðkvæmum stundum og hefur það
að féþúfu. Það er ekki RÚV að gerast mál-
pípa slíkra hagsmuna.
Kúamykja frá L‘Oréal