Fréttablaðið - 10.05.2012, Page 48
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR36 36
menning@frettabladid.is
Leikhús ★★★ ★★
Beðið eftir Godot
Höfundur: Samuel Beckett. Byggt á þýðingu Árna Ibsens. Kvenfé-
lagið Garpur. Leikarar: Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir, Ísabella
Rós Þorsteinsdóttir og Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir. Leikstjóri: Kristín
Jóhannesdóttir.
Borgarleikhúsið
Frumsýning í Borgarleikhúsinu á laugardag. Kristín
Jóhannesdóttir leikstýrir fjórum konum í hlut-
verkum fjögurra karla. Það að konur leika karla er
vitaskuld algert aukaatriði því hver segir í raun að
þessar verur séu fremur karlar heldur en konur,
þessar verur sem rangla um á jörðinni og bíða og
bíða.
Einhvers staðar úti í auðninni stendur bert tré
og þar eru þeir Gogo og Didi eða Estragon og
Vladimir. Þeir velta fyrir sér hvort ekki væri gott
að hengja sig en skortir til þess reipi, ákveða að
skiljast að en þola ekki einveruna. Af og til gleyma
þeir ástæðunni fyrir veru sinni þarna, nefnilega að þeir séu að bíða eftir Godot.
Beðið eftir Godot er ögrandi, fyndið og um leið nokkuð ruglingslegt leikrit
eftir eitt af merkustu leikskáldum liðinnar aldar, Samuel Beckett. Hér fer Kristín
Jóhannesdóttir þá leið að sannfæra okkur um að það sé samtalið sem slíkt
sem öllu máli skiptir. Þeir Gogo og Didi eru að virðist vinir og hafa eitt sam-
eiginlegt markmið, nefnilega að bíða eftir Godot. Hver þessi Godot er virðast
þeir ekki vita fremur en áhorfendur. En í biðinni felst von, um leið og í henni
felst ákveðin hræðsla.
Þær Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir fara með hlutverkin
tvö. Þeir kappar eru vel afmarkaðir, hvor með sínu sniði og mikil áhersla lögð
á dillandi undirliggjandi húmor. Þar sem þeir skiptast á orðum, eins og þegar
þeir eru að henda á milli sín höttunum, verður leikurinn eins og ljóð eða
tónlist þar sem kviðurnar eru endurteknar en þó með breyttum blæbrigðum.
Godot kemur ekki, en allt í einu birtist hinn voldugi Pozzo sem hefur þræl
einn auman með sér. Sólveig Guðmundsdóttir fer með hlutverk Pozzo og
var leikur hennar góður þó það skorti nokkuð á að karlinn væri eins ógnandi
og mikill kúgari og fulltrúi valdastétta og vera átti. Þrælinn leikur Alexía Björg
Jóhannesdóttir og var hún eins og pískaður illa útleikinn hestur, niðurlægð
í hverju spori, og brestur svo allt í einu út í slíkri ræðu að engu líkara var en
skrúfað hefði verið frá fossi. Leikgervi Alexíu var stórgott og alger andstæða
hinna karlanna bæði hvað litarhaft og búning varðar.
Sviðið er hvítur hringur, hvít snæviþakin slétta. Aðeins eitt vesælt tré og
örlítil þúst sem hægt er að tylla sér á.
Estragon, sem Hannes Guðmundsson Ólafíu Hrannar blés lífi í, heldur
áhorfendum algerlega með sterkri nærveru og einkar blæbrigðaríkum
augngotum. Vladimir minnir nokkuð á hinn mjóa úr Gög og Gokke, um leið og
fjöldinn allur af öðrum persónum birtast í fantagóðum leik Smára Einarssonar
undir handleiðslu Halldóru Geirharðsdóttur. Sýningin var löng og ströng en
skemmtileg og þegar þeir félagar velkjast um og útlimir þeirra fléttast saman
í einu af lokaatriðunum var engu líkara en að nýr hnöttur væri að fæðast úr
skrokkum þeirra.
Niðurstaða: Hver sem biðsalurinn er, þá er vel þess virði að setjast inn í
hann og njóta fágæts samleiks þar sem helstefna og bölsýni kallast á við
ljósglætuna sem birtist í húmornum.
Hús, sýning á nýjum og
eldri verkum eftir Hrein
Friðfinnsson, verður opnuð
í Sverrissal Hafnarborgar
á laugardag. Sýnd verða
þrjú ljósmyndaverk; House
Project, Annað hús og
Þriðja hús.
Elsta verkið, House Project, er frá
1974 en þá byggði Hreinn Frið-
finnsson hús í hrauninu sunnan
Hafnarfjarðar, innblásið af frá-
sögn Þórbergs Þórðarsonar af
Sóloni Guðmundssyni á Ísafirði.
Húsið var byggt á röngunni og
innihélt þannig allan heiminn
utan sjálft sig.
Fyrir þremur árum vann
Hreinn aðra útgáfu af húsinu í
skúlptúrgarði í Frakklandi og
nefndi Annað hús. Það hús er
speglun fyrsta hússins þannig
að hið ytra sneri að veröldinni
en inni var veröldin sjálf. Inni í
húsinu svífur loftsteinn sem eins
konar fulltrúi alheimsins og á
honum er líkan af fyrsta húsinu
byggt úr mjóum vír.
Nýjasta verkið, Þriðja hús, er
stækkuð endurgerð á vír módelinu
innan úr húsinu í Frakklandi og
var komið fyrir í hrauninu sunnan
Hafnafjarðar, á sama stað og
fyrsta húsinu.
„Húsið er sem sagt komið á upp-
runalegan stað og spegil myndin
komin í hring,“ segir Ólöf K.
Sigurðar dóttir, sýningarstjóri
sýningarinnar og forstöðumaður
Hafnarborgar. „Fyrsta verkið var
hús á röngunni sem innihélt allan
heiminn utan um sig; annað húsið
lokaði hann inni en það þriðja
hefur opnað sig fyrir honum.“
Hreinn Friðfinnsson hefur búið
í Hollandi undanfarna fjóra ára-
tugi en Ólöf segir áhrifa hans
gæti víða í íslenskri myndlist.
„Hann er einn af þeim sem ruddu
brautina fyrir hugmyndalist hér
á land og hefur í verkum sínum
oft nýtt íslenska menningu sem
uppsprettu þó viðfangsefnið sé
almennara eins og til dæmis í
House Project. Í verkunum er
ákveðin ljóðræn kyrrð og dulúð,
jafnvel skáldskapur sem segja má
að hafi haft áhrif á íslenska mynd-
list. En áhrif hans og mikilvægi
felast líka í því að hann er stór
einstaklingur sem hefur mikið til
málanna að leggja og komist langt
í list sinni og þannig rutt ákveðna
braut fyrir aðra. Skoði maður til
dæmis bækur um íslenska mynd-
list er House Project sínálægt.“
Í tilefni sýningarinnar gefur
Hafnarborg í samstarfi við
bókaútgáfuna Crymogeu út bók
þar sem finna má myndir af
verkunum og af gerð þeirra auk
texta eftir Ólöfu og franska list-
fræðinginn Frédéric Paul.
HÚSAKYNNI HREINS OG HEIMSINS
Miðasala á alla viðburði hátíðarinnar á www.listahatid.is
Miðasölusími: 561 2444 / Miðasölusími á viðburði í Hörpu: 528 5050
Sjáumst á Listahátíđ
Splunkuný
leikrit
á óvenjulegum
sýningarstöðum
1.500 kr.
Þrjú ný
tónskáld
Harpa, Kaldalón
2.500 kr.
Húslestrar
í stofum rithöfunda
1.000 kr.
Íd og GusGus
Harpa, Norðurljós
18. og 19. maí
3.900 kr.
Kammersveitin
flytur Bach svíturnar undir
stjórn Richard Egarr
Harpa, Eldborg 20. maí / 3.500 kr.
Stórtónleikar Hljómskálans
Ragga Gísla / Lay Low / Egill Sæbjörnsson /
Valdimar / Unnsteinn Stefánsson /
Jónas Sigurðsson / Magnús Þór / Ágústa Eva /
Björn Jörundur / Megas og margir, margir fleiri!
Harpa, Eldborg 2. júní / 3.500 – 5.500 kr.
OG FJÖLDI ANNARRA VIÐBURÐA – TRYGGÐU ÞÉR MIÐA
HOUSE PROJECT OG ANNAÐ HÚS Árið 1974 reisti Hreinn Friðfinnsson hús í hrauninu sunnan Hafnarfjarðar. Húsið var byggt á röngunni og innihélt þannig allan heiminn utan
um sjálft sig. Árið 2008 speglaði Hreinn húsið í skúlptúrgarði í Frakklandi og lokaði heiminn inni í húsinu. Þessi tvö verk verða til sýnis í Hafnarborg, auk þriðja verksins sem
komið var fyrir á sama stað og fyrsta verkinu fyrir hálfum fjórða áratug. ÁRI
ÓLÖF K. SIGURÐARDÓTTIR
Sýningarstjóri og annar höfunda bókar
um húsverk Hreins sem kemur út í til-
efni af sýningunni.
ÞÓRARINN OG KRISTJÁN LESA UPP Þórarinn Eldjárn og Kristján Hreinsson lesa ljóð sín á
síðasta ljóðakvöldi veitingahússins Kryddlegin hjörtu á föstudagskvöld. Gestgjafi verður leikstjórinn og
leikskáldið Árni Kristjánsson. Dagskráin hefst klukkan 19.30 og stendur í um þrjú korter.