Fréttablaðið - 10.05.2012, Side 52
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 3. maí - 9. maí 2012
LAGALISTINN
Vikuna 3. maí - 9. maí 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Magni ..................................................................... Hugarró
2 KK ................................................................................ Frelsið
3 Bubbi / Mugison ....................................................Þorpið
4 Fun / Janelle Monae .............................. We Are Young
5 The Black Keys ............................. Gold On The Ceiling
6 Ojba Rasta .......................................................Baldursbrá
7 Train ........................................................................Drive By
8 Tilbury ................................................................Tenderloin
9 Keane ...........................................Silenced By The Night
10 Carly Rae Jepsen ...................................Call Me Maybe
Sæti Flytjandi Plata
1 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
2 Bubbi Morthens......................................................Þorpið
3 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorla. ....... Ásamt Sinfó
4 Adele .................................................................................. 21
5 Mugison ....................................................................Haglél
6 Saints Of Boogie Street ..... Leonard Cohen Covered
7 Ýmsir ...................... Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012
8 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
9 Rökkurró ..................................................... Í annan heim
10 Legend ..................................................................Fearless
Einn af gestum Listahátíðar í Reykjavík er Yann Tiersen, sem spilar
í Norðurljósasal Hörpu 31. maí. Hann er fæddur og uppalinn á Bret-
aníuskaganum í Frakklandi, en er af flæmskum og norskum ættum.
Tiersen, sem er rúmlega fertugur, er klassískt menntaður og lærði
bæði á píanó og fiðlu frá unga aldri. Hann varð hins vegar fyrir mikl-
um áhrifum frá pönki og
nýbylgjutónlist á unglings-
árunum. Þegar Tiersen hóf
að búa til tónlist sjálfur þá
var hún bæði lituð af tón-
listarnáminu og pönkinu.
Hann keypti sér mixer og
tók allt upp sjálfur, fiðlur,
harmóníku, rafmagnsgítar
og hljóðgervla. Hann gerði
fyrst tónlist fyrir leikhús,
en fór svo út í popptónlist,
ásamt því að gera áfram
tónlist fyrir leikhús og
kvikmyndir.
Fyrsta plata Yanns Tier-
sen, La Valse des mon-
stres, kom út 1995. Hann
var búinn að senda frá sér
fjórar plötur og orðinn vel
þekktur í Frakklandi þegar
kvikmyndin Amélie kom út
árið 2001. Í henni var eitt-
hvað nýtt efni eftir Tier-
sen, en líka mörg af hans
eldri lögum. Myndin sló í
gegn og það gerði líka tón-
listin og Yann Tiersen varð
þekkt nafn út um allan
heim.
Nýjasta platan Tiersens,
Skyline, kom út í fyrra og
á tónleikunum á Listahátíð verða aðallega flutt lög af henni. Skyline er
mjög áhrifaríkt og flott verk þó hún sé ólík flestum fyrri verka Tier-
sens. Það hefur alltaf verið erfitt að staðsetja Yann Tiersen tónlistar-
lega. Hann fetar sína eigin slóð einhvers staðar á mörkum rokks, þjóð-
laga og kvikmyndatónlistar.
Að lokum skal þess getið að auk eigin hljómsveitar spila Edda, Hildur
og María úr Amiinu með Tiersen í Hörpu.
Fetar sína eigin slóð
Á LISTAHÁTÍÐ Yann Tiersen spilar ásamt hljóm-
sveitinni sinni og þremur Amiinu-stelpum á
Listahátíð.
> PLATA VIKUNNAR
Legend - Fearless
★★★★★
„Nýjasta hljómsveitin hans
Krumma með frábæra plötu.“
- TJ
> Í SPILARANUM
Actress - R.I.P.
Gossip - A Joyful Noise
Rufus Wainwright - Out of the Game
Beach House - Bloom
Tom Gabel, forsprakki bandarísku rokk-
sveitarinnar Against Me!, ætlar að
leiðrétt kyn sitt og hefja nýtt líf sem
kona. Gabel ætlar að breyta nafni
sínu í Laura Jane Grace og gangast
undir hormóna meðferð og frekari
aðgerðir.
Í viðtali við tímaritið Rolling
Stone segist Gabel hafa „glímt
í einrúmi við hugsanir tengd-
ar kynleiðréttingu í mörg ár“. Í
laginu The Ocean með Against
Me! syngur Gabel um tilfinning-
ar sínar tengdar þessu: „Ef ég
hefði getað valið hefði ég fæðst
sem kona. Mamma sagði mér
einu sinni að þá hefði hún skírt
mig Laura og ég yrði sterk og falleg
eins og hún þegar ég yrði stór.“
Í viðtalinu við Rolling Stone segir
Gabel: „Ég á eftir að lenda í vand-
ræðalegum augnablikum og það
verður ekki skemmtilegt. En þess
vegna er ég að tala um þetta. Ég
vil að fólk skilji þetta betur og
vona að það verði sæmilega
vingjarnlegt við mig.“
Sjötta hljóðversplata Against
Me! kallast Transgender Dysp-
horia Blues og er væntanleg síðar
á árinu.
Rokkari leiðréttir kyn
LEIÐRÉTTIR KYN Tom Gabel ætlar að hefja
nýtt líf sem kona.
Hljómsveitin Beach House
er mætt með sína fjórðu
plötu, Bloom. Hún telst vera
rökrétt framhald af hinni
vel heppnuðu Teen Dream.
Fjórða plata bandaríska draum-
popps dúettsins Beach House
kemur út eftir helgi. Íslenskir tón-
listarunnendur sem sáu hljóm-
sveitina spila í Listasafni Reykja-
víkur á Airwaves-hátíðinni í fyrra
munu vafalítið gefa plötunni gaum,
enda tókust tónleikarnir einkar
vel. Þar sveif seiðandi rödd söng-
konunnar Victoriu Legrand yfir
vötnum í bland við draumkennda
og afslappandi tóna Alex Scally.
Beach House var stofnuð árið
2005. Scally spilar á gítar og
hljómborð og Legrand syngur og
spilar á orgel. Hann er frá Balti-
more en hún er fædd í Frakklandi.
„Við hittumst í Baltimore. Ég er
þaðan en Victoria flutti þangað,
eiginlega til að spila tónlist. Eitt
leiddi af öðru. Ætli örlögin hafi
ekki verið að verki,“ sagði Scally
í viðtali við Fréttablaðið í fyrra.
Nýi gripurinn nefnist Bloom og
telst hún vera rökrétt framhald
af Teen Dream sem kom út fyrir
tveimur árum við frábærar undir-
tektir gagnrýnenda. Hún lenti
ofarlega á mörgum árslistum og
eru væntingarnar því miklar í
þetta sinn. Fjórar stjörnur í tíma-
ritinu Q gefa til kynna að hljóm-
sveitin er enn í góðum gír.
Bloom, sem kemur út á vegum
Sub Pop, var tekin upp í bænum
Tornillo í Texas seint á síðasta ári
en hljómjöfnuð í New York-borg.
Legrand og Scally önnuðust upp-
tökustjórn ásamt Chris Coady, sem
vann einnig með þeim að Teen
Dream. Hann þykir einkar lunkinn
eins og ferilskrá hans ber vott um
því hann hefur starfað með Yeah
Yeah Yeahs, TV on the Radio og
nú síðast rokkurunum hressilegu
í Smith Westerns.
Lögin á Bloom, þar á meðal
fyrsta smáskífulagið Myth, voru
mestmegnis samin þegar hljóm-
sveitin var á tveggja ára tónleika-
ferð um heiminn en þegar heim
var komið til Baltimore voru þau
fínpússuð fyrir upptökur. „Þessar
lagasmíðar eru bara eðlilegt fram-
hald fyrir okkur. Við förum í tón-
leikaferðir og semjum síðan lög.
Það er bara það sem við gerum,“
sagði Scally, spurður út í væntan-
lega plötu.
Beach House er í tónleikaferð
um Bandaríkin um þessar mundir
en ferðast svo með draum poppið
sitt til Evrópu áður en förinni
verður aftur heitið vestur um haf
í byrjun júlí. freyr@frettabladid.is
Væntingarnar eru miklar
BEACH HOUSE Hljómsveitin Beach House gefur út sína fjórðu plötu eftir helgi.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Wisa innbyggðir
WC kassar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
10 ár á Íslandi
– veldu gæði
XS kassi
22.900
Argos Hnappur
hvítur
2.990
XT kassi
WC front 83cm
25.900
Ýmsar gerðir
fáanlegar af
hnöppum.