Fréttablaðið - 19.05.2012, Page 18
18 19. maí 2012 LAUGARDAGUR
Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað
áþreifanlegum árangri. Enn dreg-
ur úr atvinnuleysi og hagvaxtar-
spár bera allar vitni um að Ísland
er á hraðri leið frá björgunar-
starfinu eftir hrunið í átt að upp-
byggingu og meiri stöðugleika.
Möguleikar til uppbyggingar og
nýbreytni eru víðtækir enda sköp-
uðust afar óvenjuleg þjóðfélagsleg
skilyrði í kjölfar bankahrunsins.
Tekjur af auðlindum
til uppbyggingar
Efnahagsleg uppbygging og vax-
andi þjóðartekjur er eina leiðin
til þess að verja til lengdar þá vel-
ferð sem við viljum búa ungum
sem öldnum. Það er okkur því
fagnaðarefni að geta kynnt nýja
fjárfestingaráætlun fyrir Ísland
fram til ársins 2015. Í henni felst
ný atvinnustefna ríkisstjórnarinn-
ar með áherslu á græna hagkerfið,
skapandi greinar, ferðaþjónustu,
tækniþróun og nýsköpun. Fjöl-
breytnin sem áætlunin ber með
sér er sannarlega fráhvarf frá
einhæfum áherslum framsóknar-
og sjálfstæðismanna á stóriðjuna.
Áformin byggjast að verulegu
leyti á því að takast megi að fjár-
magna tugmilljarða króna verk-
efni og framkvæmdir á næstu
þremur árum með tekjum af veiði-
gjaldi og leigu aflahlutdeilda ann-
ars vegar og arði af rekstri bank-
anna og sölu á hlut ríkisins í þeim
hins vegar. Ætla má að auknar
tekjur af veiðigjaldi skili eiganda
sínum – þjóðinni – 40 til 50 millj-
örðum króna næstu þrjú árin. Með
hliðstæðum hætti má gera ráð
fyrir að 75 milljarðar komi í hlut
ríkisins á næstu þremur árum úr
bönkunum. Þetta er þó háð því að
sátt takist um að sjávarútvegur-
inn leggi meira af mörkum til upp-
byggingar en hann gerir nú með
sérstöku veiðigjaldi. Þetta er einn-
ig háð þeim arði sem ríkið hefur
af rekstri bankanna og sömuleið-
is því að vel takist að selja hlut
ríkisins í þeim á næstu misser-
um þótt ekki sé ætlunin enn um
sinn að selja meirihlutaeignina í
Landsbankanum. Ríkisfjármála-
áætlun er að sjálfsögðu í forgangi
eins og áður og fjárfestingaáætl-
unin mun engu breyta um mark-
miðið um jöfnuð í ríkisfjármálum
árið 2014. Auknar fjárfestingar
og kraftmeiri efnahagsbati mun
styðja þá vegferð.
Framkvæmdum flýtt
Á þremur næstu árum er ráðgert
að 39 milljarðar króna af þess-
um tekjum renni til fjárfestinga
í samræmi við áætlun okkar. Hún
byggist á þeim rökum að skyn-
samlegt sé að verja umtalsverðum
hluta auðlindagjaldsins og þeirra
fjármuna sem bundnir hafa verið
í bönkum í framkvæmdir og inn-
viði samfélagsins með skipulögð-
um hætti. Gangi allt að óskum og
lög um aukin veiðileyfagjöld taki
gildi 1. september næstkomandi
væri þannig hægt að flýta gerð
Norðfjarðar- og Dýrafjarðar-
ganga um 3 ár og hefjast jafnvel
handa strax á næsta ári. Á þremur
næstu árum er gert ráð fyrir að
7,5 milljörðum króna verði aukið
við samgönguáætlun, en það ger-
breytir þeirri mynd sem við blasir
í samgöngubótum á næstu árum.
En arðsins af auðlind sjávar á
þjóðin einnig að njóta með öðrum
hætti. Á þremur næstu árum er
gert ráð fyrir að verja allt að 6
milljörðum króna til rannsókna og
tækniþróunarverkefna. Jafnframt
er ráðgert að verja 3,6 milljörðum
króna til sóknaráætlana lands-
hlutanna. Með þessu er ráðgert að
efla fjölbreytni atvinnulífsins og
fjölga störfum í þekkingariðnaði.
Undir merkjum sóknaráætlana er
að nást sá ánægjulegi árangur að
fulltrúar landshlutanna forgangs-
raða sjálfir þeim verkefnum sem
til greina kemur að styðja með
þessum hætti.
Næring fyrir atvinnulífið
Nálægt þriðjungi arðsins af bönk-
unum og sölu á hlut ríkisins í þeim
verður varið næstu þrjú árin til
margvíslegrar uppbyggingar í
ferðaþjónustu, skapandi greina og
grænna og vistvænna verkefna.
Alls er um að ræða 22 milljarða
króna. Til dæmis er ætlunin að
tvöfalda árlegt framlag til Kvik-
myndasjóðs. Byggingariðnaður-
inn varð fyrir miklum skakka-
föllum eftir þensluárin fyrir
hrun og atvinnuleysi er mikið
innan greinarinnar. Samkvæmt
fjárfestingaráætluninni er ráð-
gert að flýta viðhaldi fasteigna
í eigu ríkisins. Verja á 1,5 millj-
örðum króna aukalega til marg-
víslegra viðhaldsverkefna víða
um land þegar á næsta ári. Þá er
gert ráð fyrir að framkvæmdir
við nýtt fangelsi hefjist von bráð-
ar og verður tveimur milljörðum
króna varið til þeirra næstu tvö
árin. Á næstu tveimur árum verð-
ur á þriðja milljarð króna varið til
framkvæmda við Landeyjahöfn og
smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju.
Búast má við því að ársverk-
um fjölgi um 4.000 verði fjárfest-
ingaáætlunin að veruleika. Það
segir þó ekki alla söguna því gera
má ráð fyrir margfeldisáhrifum
sem gæti fjölgað störfum alls um
10.000 á næstu þremur árum.
Þetta hefur jákvæð áhrif á vinnu-
markaðinn en búast má við að
atvinnuleysi verði rúm 4 prósent
árið 2015 samkvæmt áætluninni.
Hallalaus ríkissjóður 2014
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til
að örva atvinnulífið eftir áföll-
in munu skila fleiri störfum og
meiri tekjum. Það á einnig við
um tekjur ríkissjóðs enda verður
ekki kvikað frá því markmiði að
skila ríkissjóði hallalausum árið
2014 og greiða jafnt og þétt niður
skuldir. Viðvarandi hallarekstur
ríkissjóðs er uppskrift að lán-
töku og auknum vaxtakostn-
aði. Við höfum einsett okkur að
gera ríkisreksturinn sjálfbær-
an á nýjan leik og sá er auðvitað
kjarninn í efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar. Athuganir benda
til þess að af 39 milljarða króna
fjárfestingum samkvæmt áætl-
uninni muni um 17 milljarðar
króna skila sér sem tekjur í rík-
issjóð á næstu þremur árum.
Stillum saman strengi
Ég fagna aukinni samstöðu á
Alþingi um mikilvæg hags-
munamál þjóðarinnar. Það á
ekki aðeins við um undirbún-
ing og gerð þeirrar fjárfesting-
aráætlunar sem hér er reifuð.
Þar hefur Guðmundur Stein-
grímsson, þingmaður Bjartr-
ar framtíðar, lagt gjörva hönd
á plóg. Samstaðan á einnig við
um mótun nýs og betra Stjórn-
arráðs og stuðning í þinginu
við lýðræðisumbætur og mótun
nýrrar stjórnarskrár. Slík vinnu-
brögð eru merki um heilindi og
heilbrigð viðbrögð þingmanna
við kröfu þjóðarinnar um ný
vinnubrögð og siðbót íslenskra
stjórnmála. Aukinn samstarfs-
vilji um mál sem varða mikla
hagsmuni almennings getur
aukið trú manna á að Alþingi sé
vanda sínum vaxið og hafi aðeins
almannahag en ekki sérhags-
muni að leiðarljósi.
Fjármál
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Gangi allt að óskum og lög um aukin
veiðileyfagjöld taki gildi 1. september
næstkomandi væri þannig hægt að flýta
gerð Norðfjarðar- og Dýrafjarðarganga um 3 ár og
hefjast jafnvel handa strax á næsta ári.