Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 19.05.2012, Qupperneq 18
18 19. maí 2012 LAUGARDAGUR Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dreg- ur úr atvinnuleysi og hagvaxtar- spár bera allar vitni um að Ísland er á hraðri leið frá björgunar- starfinu eftir hrunið í átt að upp- byggingu og meiri stöðugleika. Möguleikar til uppbyggingar og nýbreytni eru víðtækir enda sköp- uðust afar óvenjuleg þjóðfélagsleg skilyrði í kjölfar bankahrunsins. Tekjur af auðlindum til uppbyggingar Efnahagsleg uppbygging og vax- andi þjóðartekjur er eina leiðin til þess að verja til lengdar þá vel- ferð sem við viljum búa ungum sem öldnum. Það er okkur því fagnaðarefni að geta kynnt nýja fjárfestingaráætlun fyrir Ísland fram til ársins 2015. Í henni felst ný atvinnustefna ríkisstjórnarinn- ar með áherslu á græna hagkerfið, skapandi greinar, ferðaþjónustu, tækniþróun og nýsköpun. Fjöl- breytnin sem áætlunin ber með sér er sannarlega fráhvarf frá einhæfum áherslum framsóknar- og sjálfstæðismanna á stóriðjuna. Áformin byggjast að verulegu leyti á því að takast megi að fjár- magna tugmilljarða króna verk- efni og framkvæmdir á næstu þremur árum með tekjum af veiði- gjaldi og leigu aflahlutdeilda ann- ars vegar og arði af rekstri bank- anna og sölu á hlut ríkisins í þeim hins vegar. Ætla má að auknar tekjur af veiðigjaldi skili eiganda sínum – þjóðinni – 40 til 50 millj- örðum króna næstu þrjú árin. Með hliðstæðum hætti má gera ráð fyrir að 75 milljarðar komi í hlut ríkisins á næstu þremur árum úr bönkunum. Þetta er þó háð því að sátt takist um að sjávarútvegur- inn leggi meira af mörkum til upp- byggingar en hann gerir nú með sérstöku veiðigjaldi. Þetta er einn- ig háð þeim arði sem ríkið hefur af rekstri bankanna og sömuleið- is því að vel takist að selja hlut ríkisins í þeim á næstu misser- um þótt ekki sé ætlunin enn um sinn að selja meirihlutaeignina í Landsbankanum. Ríkisfjármála- áætlun er að sjálfsögðu í forgangi eins og áður og fjárfestingaáætl- unin mun engu breyta um mark- miðið um jöfnuð í ríkisfjármálum árið 2014. Auknar fjárfestingar og kraftmeiri efnahagsbati mun styðja þá vegferð. Framkvæmdum flýtt Á þremur næstu árum er ráðgert að 39 milljarðar króna af þess- um tekjum renni til fjárfestinga í samræmi við áætlun okkar. Hún byggist á þeim rökum að skyn- samlegt sé að verja umtalsverðum hluta auðlindagjaldsins og þeirra fjármuna sem bundnir hafa verið í bönkum í framkvæmdir og inn- viði samfélagsins með skipulögð- um hætti. Gangi allt að óskum og lög um aukin veiðileyfagjöld taki gildi 1. september næstkomandi væri þannig hægt að flýta gerð Norðfjarðar- og Dýrafjarðar- ganga um 3 ár og hefjast jafnvel handa strax á næsta ári. Á þremur næstu árum er gert ráð fyrir að 7,5 milljörðum króna verði aukið við samgönguáætlun, en það ger- breytir þeirri mynd sem við blasir í samgöngubótum á næstu árum. En arðsins af auðlind sjávar á þjóðin einnig að njóta með öðrum hætti. Á þremur næstu árum er gert ráð fyrir að verja allt að 6 milljörðum króna til rannsókna og tækniþróunarverkefna. Jafnframt er ráðgert að verja 3,6 milljörðum króna til sóknaráætlana lands- hlutanna. Með þessu er ráðgert að efla fjölbreytni atvinnulífsins og fjölga störfum í þekkingariðnaði. Undir merkjum sóknaráætlana er að nást sá ánægjulegi árangur að fulltrúar landshlutanna forgangs- raða sjálfir þeim verkefnum sem til greina kemur að styðja með þessum hætti. Næring fyrir atvinnulífið Nálægt þriðjungi arðsins af bönk- unum og sölu á hlut ríkisins í þeim verður varið næstu þrjú árin til margvíslegrar uppbyggingar í ferðaþjónustu, skapandi greina og grænna og vistvænna verkefna. Alls er um að ræða 22 milljarða króna. Til dæmis er ætlunin að tvöfalda árlegt framlag til Kvik- myndasjóðs. Byggingariðnaður- inn varð fyrir miklum skakka- föllum eftir þensluárin fyrir hrun og atvinnuleysi er mikið innan greinarinnar. Samkvæmt fjárfestingaráætluninni er ráð- gert að flýta viðhaldi fasteigna í eigu ríkisins. Verja á 1,5 millj- örðum króna aukalega til marg- víslegra viðhaldsverkefna víða um land þegar á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýtt fangelsi hefjist von bráð- ar og verður tveimur milljörðum króna varið til þeirra næstu tvö árin. Á næstu tveimur árum verð- ur á þriðja milljarð króna varið til framkvæmda við Landeyjahöfn og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Búast má við því að ársverk- um fjölgi um 4.000 verði fjárfest- ingaáætlunin að veruleika. Það segir þó ekki alla söguna því gera má ráð fyrir margfeldisáhrifum sem gæti fjölgað störfum alls um 10.000 á næstu þremur árum. Þetta hefur jákvæð áhrif á vinnu- markaðinn en búast má við að atvinnuleysi verði rúm 4 prósent árið 2015 samkvæmt áætluninni. Hallalaus ríkissjóður 2014 Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að örva atvinnulífið eftir áföll- in munu skila fleiri störfum og meiri tekjum. Það á einnig við um tekjur ríkissjóðs enda verður ekki kvikað frá því markmiði að skila ríkissjóði hallalausum árið 2014 og greiða jafnt og þétt niður skuldir. Viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs er uppskrift að lán- töku og auknum vaxtakostn- aði. Við höfum einsett okkur að gera ríkisreksturinn sjálfbær- an á nýjan leik og sá er auðvitað kjarninn í efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar. Athuganir benda til þess að af 39 milljarða króna fjárfestingum samkvæmt áætl- uninni muni um 17 milljarðar króna skila sér sem tekjur í rík- issjóð á næstu þremur árum. Stillum saman strengi Ég fagna aukinni samstöðu á Alþingi um mikilvæg hags- munamál þjóðarinnar. Það á ekki aðeins við um undirbún- ing og gerð þeirrar fjárfesting- aráætlunar sem hér er reifuð. Þar hefur Guðmundur Stein- grímsson, þingmaður Bjartr- ar framtíðar, lagt gjörva hönd á plóg. Samstaðan á einnig við um mótun nýs og betra Stjórn- arráðs og stuðning í þinginu við lýðræðisumbætur og mótun nýrrar stjórnarskrár. Slík vinnu- brögð eru merki um heilindi og heilbrigð viðbrögð þingmanna við kröfu þjóðarinnar um ný vinnubrögð og siðbót íslenskra stjórnmála. Aukinn samstarfs- vilji um mál sem varða mikla hagsmuni almennings getur aukið trú manna á að Alþingi sé vanda sínum vaxið og hafi aðeins almannahag en ekki sérhags- muni að leiðarljósi. Fjármál Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Gangi allt að óskum og lög um aukin veiðileyfagjöld taki gildi 1. september næstkomandi væri þannig hægt að flýta gerð Norðfjarðar- og Dýrafjarðarganga um 3 ár og hefjast jafnvel handa strax á næsta ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.