Fréttablaðið - 19.05.2012, Page 30
19. maí 2012 LAUGARDAGUR30
Þ
egar vinkonurnar Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, Berg-
rós Hjálmarsdóttir, Ólafía Kristjánsdóttir og Hildur
Sif Kristborgardóttir fá sér gönguferð niður Lauga-
veginn taka allir eftir þeim. Ekki eingöngu vegna
þess að þær eru glæsilegur hópur, heldur vegna
þess að allar eru þær alskreyttar húðflúri. Þær eru
löngu búnar að venjast því að horft sé á þær. Þær segja flesta
horfa af forvitni, margir hrósi þeim, en stöku manneskja líti þær
hornauga.
Hildur: Áður fyrr voru tattúin tengd við dópneyslu og glæpa-
menn og maður verður stundum var við þessa tengingu enn
þá. Sumir fylgjast ekki með og vita ekki hvað þetta er orðið
algengt.
Linda: Þetta hefur gjörbreyst. Dagmamman þín og tannlækn-
irinn eru örugglega með tattú. Við erum bara venjulegar konur
sem viljum fegra líkama okkar. Ég, til dæmis, hvorki reyki né
drekk og er góð fyrirmynd fyrir börnin mín í alla staði, þó að
ég sé með flúr.
Hildur: Við erum flestar mömmur. Allar ósköp eðlilegar og
ekkert úti á djamminu um allar helgar. Við hugsum vel um
börnin okkar, komum heim til okkar eftir vinnudaginn, eldum
kvöldmat og skutlum á æfingar eins og annað fólk.
Linda: Mér finnst einfaldlega ofsalega fallegt að vera svona
skreytt. Ég fer í sund og horfi á ykkur hin sem eruð ekki með
flúr og mér finnst þið vera allsber.
Má ekki bjóða þér að taka mynd af mér?
Allar hafa þær fengið spurninguna hvort þær sjái ekki eftir
þessu og enn fleiri spyrja hvað þær ætli eiginlega að gera,
þegar þær verði gamlar og húðin farin að gefa eftir.
Linda: Ég held ég fái mér bara fleiri flúr þegar ég verð orðin
gömul! Mér finnst flúrin mín æðisleg í dag og mér á eftir að
finnast það þá líka. Það er bara þannig. En þetta hvetur mann
til að hugsa vel um sig og líta vel út. Það er alltaf verið að horfa
á þig.
Bergrós: Ég verð helst vör við að eldri konur í sundi horfi
á mig. Ég hef spurt þær hvort þær vilji ekki bara taka mynd
af mér, þær horfa svo mikið. Þetta finnst mér dónaskapur. En
reyndar fæ ég líka rosalega mikið af hrósi. Meira af því heldur
en eitthvað neikvætt.
Ólafía: Margar stelpur á mínum aldri spyrja hvort ég sjái
ekki eftir þessu. Mér finnst það skrítin spurning. Ég sé ekki
eftir neinu.
Einu sinni smakkað, þú getur ekki hætt
Stelpurnar tengjast í gegnum tattústofuna Reykjavík Ink á
Frakkastíg 7, en Linda rekur hana ásamt manni sínum, Össuri
Hafþórssyni. Tilvonandi eiginmaður Bergrósar er meðeigandi
að Reykjavík Ink, Ólafía er þar starfsmaður og Hildur er trygg-
ur kúnni og vinur eigendanna. Þær segja allar að tattúin þeirra
séu lífsstíll, enda voru þær ungar þegar þær þróuðu fyrst með
sér smekk fyrir þeim.
Bergrós: Ég byrjaði að hafa áhuga á þessu þegar ég var átta
ára. Bróðir pabba míns kom í heimsókn og var nýbúinn að fá
sér tattú og mér fannst það svo kúl. Ég spurði mömmu strax þá
hvort ég mætti fá. Þegar ég var þrettán ára stalst ég svo til að
fá mér jurtatattú á mjóbakið, sem átti að fara af eftir nokkur
ár. En það fór náttúrulega aldrei af og ég lét tattúvera yfir það
seinna. En strax þá vildi ég bara meira og meira.
Ólafía: Þetta er svona „einu sinni smakkað, þú getur ekki
hætt“. Mitt fyrsta var í september 2009, ég stóð á ákveðnum
tímamótum þá og ákvað að fá mér tattú. Það er ljóð ofan á rist-
inni, sem ég samdi fyrir litla bróður minn. Mig langaði í tattú
þegar ég var fimmtán ára – eins og allar vinkonur mínar – en
pabbi bannaði mér það. Ég er eiginlega fegin í dag, að hafa hlýtt
honum, því ég ætlaði að fá mér tribal-sól á mjóbakið.
Hildur: Ég fékk mér fyrsta flúrið sextán ára, annað fjórum
árum seinna og svo dreka á bakið árið 2002. Þegar ég fékk mér
drekann, sem er svolítið stór, héldu margir að ég væri orðin
klikkuð. Svona stór tattú voru ekki algeng á konum þá. Svo tók
ég mér smá pásu og fór aftur af stað fyrir um fjórum árum. Ég
hætti ekkert úr þessu.
Linda: Þetta virkar þannig að þú byrjar að hugsa um næsta
flúr á meðan verið er að flúra þig.
Eins og krakkar í nammilandi á tattúfestivalinu
Engin þeirra er hætt að safna og þær er allar við það að missa
nætursvefn af eftirvæntingu, en þann 7. til 9. júní eru væntan-
legir til Íslands nokkrir heimsklassa húðflúrarar sem munu
taka þátt í tattúfestivali í Reykjavík. Það eru Linda og eigin-
maður hennar, Össur, sem skipuleggja það, en þau eru eigendur
Reykjavík Ink. Þær ætla allar að láta bæta við flúri þá.
Linda: Þetta er í sjöunda sinn sem við höldum þessa hátíð. Við
erum að fá hingað flotta tattúlistamenn sem koma alls staðar
að úr heiminum. Í portinu hjá Bar 11 verðum við með risastórt
veislutjald, sem verður í raun eins og risastór tattústofa. Þang-
að kemur alls konar fólk á öllum aldri, forvitið fólk sem vill
bara skoða og aðrir sem ætla að fá sér flúr. Þú bara kemur inn
og hefur úr aragrúa af artistum að velja. Artistinn teiknar svo
fyrir þig á staðnum og þú ferð beint í flúr.
Hildur: Þetta er ótrúlega skemmtileg helgi. Fyrir okkur sem
erum í tattúunum er þetta eins og fyrir krakka í nammilandi.
Mann langar að fá sér tattú hjá þeim öllum.
Enga karlmenn án húðflúrs, takk
Bergrós: Mér finnst bara það flottasta í heimi að sjá stráka með
„sleeve“ [þegar allur handleggurinn er tattúveraður].
Hildur: Ég á reyndar óflúraðan kærasta, en hann verður það
ekki mikið lengur. Hann langar reyndar í tattú og ég gaf honum
það í afmælisgjöf, svo nú er hann bara að ákveða hvað hann
ætlar að fá sér.
Ólafía: Ég held bara að ég myndi ekki vilja eiga óflúraðan
kærasta.
FRAMHALD Á SÍÐU 32
Sumar konur stara í sturtunni
Sífellt algengara verður að konur skreyti líkama sinn með stórum og áberandi listaverkum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og
Valgarður Gíslason ljósmyndari hittu vinkonurnar Hildi, Lindu, Bergrósu og Ólafíu sem allar eru forfallnir húðflúrsafnarar.
SVARTHVÍT Ólafía sker sig úr hópnum að því
leyti að hennar tattú eru öll svarthvít.
RÓSIR OG FIÐRILDI Flest tattú Bergrósar eru
á upphandleggnum og niður eftir bakinu.
MERKT BÖRNUNUM Linda Mjöll er með nöfn
barna sinna fjögurra á hægri kálfanum.
ÓSKÖP VENJULEGAR STELPUR Þær Hildur Sif Kristborgardóttir, Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, Bergrós Hjálmarsdóttir og Ólafía Kristjánsdóttir
segjast vera ósköp venjulegar stelpur sem finnst fallegt að skreyta líkama sinn. Þær ætla allar að bæta við sig mörgum húðflúrum enn.