Fréttablaðið - 19.05.2012, Blaðsíða 38
19. maí 2012 LAUGARDAGUR38
■ ÞAULREYNDUR DÓMARI
E
inn stærsti einstaki
íþróttaviðburður hvers
árs er úrslitaleikur
Meistaradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu og
fer hann fram í kvöld í München í
Þýskalandi. Talið er að allt að 200
milljón manns fylgist með úrslita-
leiknum í beinni sjónvarpsútsend-
ingu og það eru Chelsea frá Eng-
landi og FC Bayern München frá
Þýskalandi sem leika til úrslita
að þessu sinni. Leikurinn er sýnd-
ur á Stöð 2 sport og hefst klukk-
an 18.45. Hörður Magnússon mun
lýsa leiknum beint frá München.
FC Bayern er með gríðarlega
sterkt lið og möguleikar liðs-
ins aukast gríðarlega þar sem
úrslitaleikurinn fer fram á heima-
velli liðsins. Og það er hrein til-
viljun að þýska liðið er í þeirri
stöðu að leika til úrslita í stærstu
keppni heims hjá félagsliðum á
eigin heimavelli, Allianz Arena, í
München.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
1984 þar sem annað liðið í úrslitum
Meistaradeildarinnar er á heima-
velli. Þá léku Roma frá Ítalíu og
enska liðið Liverpool á Ólympíu-
leikvanginum í Róm. Leikurinn
endaði 1-1 eftir framlengingu og
Liverpool hafði betur í vítaspyrnu-
keppni, 4-2.
UEFA, knattspyrnusamband
Evrópu, ákveður með löngum
fyrir vara hvar úrslitaleikir
Meistaradeildarinnar fara fram.
Á næsta ári, þann 25. maí árið
2013, fer úrslitaleikurinn fram
á Wembley í London á Englandi,
en úrslitaleikurinn fór fram á
Wembley í fyrra. Árið 2014 verð-
ur úrslitaleikur á Estadio da Luz í
Lissabon í Portúgal.
Í sögulegu samhengi er FC
Bayern München með mun betri
árangur í Meistaradeild Evrópu
en Chelsea. Þjóðverjarnir hafa
átta sinnum leikið til úrslita og
árangurinn er 50% vinningshlut-
fall. FC Bayern fagnaði sigri 1974,
1975, 1976 og 2001, en liðið tapaði
úrslitaleikjunum 1982, 1987, 1999
og 2010. Chelsea hefur einu sinni
leikið til úrslita, árið 2008, þar sem
Manchester United hafði betur í
vítaspyrnukeppni í Moskvu.
Roman Abramovich, eigandi
Chelsea, hefur enn ekki upplifað
þann draum sinn að félagið fagni
sigri í Meistaradeild Evrópu.
Hann hefur lagt gríðarlega fjár-
muni í liðið frá því hann eignaðist
Chelsea árið 2003.
Það má færa rök fyrir því að
Frakkinn Marcel Desailly og Dan-
inn Jesper Grönkjær hafi átt stór-
an þátt í því að Chelsea er í eigu
Abramovich. Rússneski milljarða-
mæringurinn hafði lengi gælt við
þá hugmynd að eignast lið í ensku
úrvalsdeildinni og sagan segir að
hann hafi ákveðið að taka slaginn
eftir að Chelsea tryggði sér sæti í
Meistaradeild Evrópu vorið 2003.
Desailly og Grönkjær tryggðu
Chelsea 2-1 sigur gegn Liver-
pool í lokaumferðinni og Chelsea
komst þar með í Meistaradeildina
í annað sinn í sögu félagsins.
Átta knattspyrnustjórar á níu árum
Abramovich hefur ekki slegið
slöku við í þeirri vinnu að koma
Chelsea í fremstu röð. Margt
hefur áunnist en „sá stóri“ er eftir.
Chelsea hefur fjórum sinnum
tapað í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar frá því að Abramo-
vich eignaðist liðið og liðið tapaði
úrslitaleiknum í Moskvu árið 2008
eftir vítaspyrnukeppni.
Það er ekkert grín að vera í
vinnu hjá Roman Abramovich
enda hafa átta knattspyrnustjór-
ar komið við sögu hjá félaginu á
sl. níu árum. Peningar eru ekk-
ert vandamál hjá Abramovich en
enskir fjölmiðlar hafa greint frá
því að hann hafi greitt á bilinu
65-75 milljónir punda eða sem
nemur 13-15 milljörðum króna
í starfslokasamninga og bætur
vegna knattspyrnustjóranna átta.
Enskir fjölmiðlar hafa reikn-
að það út að Abramovich hafi frá
árinu 2003 keypt leikmenn fyrir
rétt rúmlega 640 milljónir punda
eða sem nemur 130 milljörðum
króna.
Bæði Chelsea og FC Bayern
hafa átt betri keppnistímabil en
það sem er að ljúka núna. Chelsea
endaði í sjötta sæti ensku úrvals-
deildarinnar og André Villas-
Boas, knattspyrnustjóri liðs-
ins, var rekinn í byrjun mars á
sínu fyrsta starfsári. Liðið lék
langt undir væntingum undir
hans stjórn en eftirmaður hans,
Roberto Di Matteo hefur náð frá-
bærum árangri – bikarmeistara-
titli á Wembley og hann kom liðinu
í gegnum gríðarlega erfið verk-
efni í Meistaradeildinni gegn Nap-
ólí frá Ítalíu og sjálfum Evrópu-
meisturunum frá Barcelona á
Spáni í undanúrslitum.
Forseti FC Bayern verður reiður
þegar hann tekur bensín
Uli Hoeness forseti FC Bayern
München hefur gagnrýnt harð-
lega vinnubrögð þeirra félaga sem
eru í eigu ríkra einstaklinga – og
þar er Abramovich efstur á lista.
Hoeness sagði í gær við fjölmiðla
að hann væri ekki sáttur við að
gróði olíufyrirtækja væri notað-
ur til þess að fjármagna rekstur
fótboltaliða og vísaði þar á Chel-
sea. „Ég verð reiður í hverri ein-
ustu viku þegar ég kaupi bensín.
Mafían sem á olíufyrirtækin tekur
peningana úr mínum vasa til þess
að fjárfesta í leikmönnum. Að
mínu mati er „skítalykt“ af þessu
öllu saman og við erum í sam-
keppni við þessi lið,“ sagði Hoe-
ness meðal annars. Ef FC Bayern
fagnar sigri í úrslitaleiknum fær
félagið um fjóra milljarða króna í
sinn hlut og slíkir peningar eiga að
mati Hoeness að skipta öllu máli í
rekstri fótboltaliða. „Ef Abramo-
vich hættir að dæla fé í Chelsea
þá verður hægt að kaupa félagið
fyrir sama verð og krossgátu-
blað í hvaða sjoppu sem er,“ bætti
Hoeness við.
Landar Abramovich þeim stóra?
Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld þar sem Chelsea og FC Bayern München eigast við. Roman Abramovich,
eigandi Chelsea, hefur ekki enn náð „stóra titlinum“. Sigurður Elvar Þórólfsson stiklar á stóru í aðdraganda stærsta leiks ársins.
Pedro Proenca frá Portúgal er dómarinn sem UEFA treystir best til þess að standast álagið sem fylgir því að dæma úrslitaleikinn í Meistaradeild
Evrópu. Proenca er 41 árs að aldri og hann hefur verið alþjóðlegur dómari frá
árinu 2003. Frá þeim tíma hefur hann dæmt 65 leiki á vegum UEFA og tvívegis
bikarúrslitaleikinn í Portúgal. Á þessu ári hefur hann dæmt fimm leiki í Meistara-
deildinni og þar á meðal leik Inter frá Ítalíu og franska liðsins Marseille í 16 liða
úrslitum keppninnar. Aðstoðardómararnir eru einnig frá Portúgal en þeir heita Bertino
Miranda og Ricardo Santos. Spánverjinn Velazco Carballo er fjórði dómari leiksins og
er hann til taks ef til þess kæmi að Proenca gæti ekki lokið við störf sín. Stuðningsmenn
Chelsea geta glaðst yfir þeirri staðreynd að síðast þegar dómari frá Portúgal dæmdi
úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu þá fagnaði enska liðið Notthingham Forest sigri
árið 1980.
Pedro Proenca mun stýra sýningunni
PEDRO PROENCA
Chelsea hefur keypt leikmenn
fyrir um 130 milljarða kr. á und-
anförnum níu árum.
ÁHYGGJUFULLUR
Roman Abramovich,
var ekki ánægður
þegar Chelsea
tapaði úrslitaleiknum
í Moskvu gegn
Manchester United
árið 2008.
Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður Stöðv-
ar 2 sport ætlar að njóta þess
að horfa á úrslitaleik Meistara-
deildarinnar sem áhugamaður
um knattspyrnu. „Þetta verður
án efa mikil skemmtun og mjög
sérstakt fyrir FC Bayern að vera
á sínum eigin heimavelli í þess-
ari stöðu. Chelsea mun leggja
upp með að verjast og „pirra“
Þjóðverjana og ef það tekst gæti
varnarmúr þeirra opnast. FC
Bayern getur spilað frábæra
vörn en það eru veikleikar í
þeirra liði sem Chelsea gæti nýtt
sér. Þar má nefna að það gæti
opnast mikið fyrir Juan Mata
á miðsvæðinu þar sem í lið FC
Bayern vantar miðjumanninn
Luiz Gustavo sem er í leikbanni.
Jerome Boateng, varnarmaður
FC Bayern, er ekki maður stóru
leikjanna og hann gæti verið í
aðalhlutverki í þessum leik,“
segir Guðmundur. Fjarvera fjög-
urra fastamanna í liði Chelsea
mun að sjálfsögðu hafa mikil
áhrif á liðið að mati Guðmundar.
„Varnarlína Chelsea er brothætt,
Gary Cahill og David Luiz, hafa
ekki verið með að undanförnu
vegna meiðsla og þeir þurfa að
standa vaktina í fjarveru Johns
Terry og Branislavs Ivanovic.
Og það er ekki einu sinni víst að
þeir séu klárir í slaginn,“ segir
Guðmundur Benediktsson.
Veikleikar í varn-
arleiknum hjá
báðum liðum
■ GUMMI BEN
NORDICPHOTOS/GETTY