Fréttablaðið - 19.05.2012, Side 44
FÓLK|
HEILBRIGÐI
„Golfhópur stækk-
ar flóruna fyrir
utan pöbbinn og
vinnur með sam-
kynhneigðum í
heilbrigðara and-
rúmslofti.”
GOLFARI Í LÍFI OG
STARFI Kristinn Jóns-
son starfar á Urriðavelli
og leikur golf í frístund-
um. Hann segir samkyn-
hneigða jafn smitaða af
golfbakteríunni og aðra,
en að marga vanti golf-
félaga til að drífa sig út á
völl. MYND/DANÍEL
Við viljum fleiri samkynhneigða út úr skápnum með golfsettin sín og höfum því stofnað golf-
hóp samkynhneigðra til að draga
fleiri út á golfvöll,“ upplýsir golfarinn
Kristinn Jónsson um nýstofnaðan golf-
klúbb samkynhneigðra innan vébanda
Íþróttafélagsins Styrmis.
Kristinn segir markmið golfhópsins
að hittast til að leika golf saman og
kenna þeim sem enn hafa ekki kynnst
sportinu.
„Þegar við fórum að grennslast
fyrir um hagi okkar fólks kom í ljós að
margir eiga í fórum sínum golfsett sem
enn er í plastinu. Golf er nefnilega eins
og ræktin; um leið og maður þekkir
einhvern á staðnum er auðveldara að
drífa sig. Hins vegar þarf maður að vera
búinn að læra aðeins tökin á golfi til að
geta spilað það úti á golfvelli og golf-
hópur Styrmis því hárréttur vettvangur
fyrir þá sem eiga sér ekki golffélaga.“
Kristinn hefur sjálfur mundað golf-
kylfur síðan 1997 og starfar hjá Golf-
klúbbnum Oddi á Urriðavelli í Heið-
mörk. Hann segir fyrstu viðtökur við
golfhópnum góðar.
„Við vitum að þarna úti er fólk sem
er forvitið en veit ekki hvað það á
að gera við það. Golfhópur stækkar
flóruna fyrir utan pöbbinn og vinnur
með samkynhneigðum í heilbrigðara
andrúmslofti. Í golfi spila fjórir saman
í hóp og því öruggt að maður kynnist
öðrum. Því verður auðveldara fyrir þá
sem eru feimnir með samkynhneigð
sína þegar allur hópurinn er samkyn-
hneigður.“
Íþróttafélagið Styrmir hefur skoðað
sams konar golfhópa úti í heimi og
Kristinn segir mörg spennandi stórmót
freista meðlima nýja golfhópsins enda
þegar einstaklingar með einn og tvo í
forgjöf þar á meðal.
„Fyrstu skrefin verða að hittast
aðra hverja helgi á minni golfvöllum í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þá er
ætlunin að búa til ferðalög og skemmti-
lega viðburði í kringum golfhópinn eins
og til dæmis helgarferðir með gistingu,“
segir Kristinn.
Samkynhneigðir, tvíkynhneigðir,
transgender fólk og vinir þeirra eru vel-
komnir í golfhóp Styrmis, og eins allir
sem eru vinveittir samkynhneigðum og
styðja þá í réttindabaráttu sinni.
„En þótt að ákveðins klæðaburðar
sé krafist á golfvöllum landsins munum
við ekki skera okkur úr með skraut-
legheitum umfram aðra. Við þurfum
enda ekki að standa upp úr; bara að
aðlagast.“
HEIMSBIKARMÓT Í REYKJAVÍK
Gróskumikið starf er hjá Íþróttafélaginu
Styrmi um þessar mundir. Dagana 28.
maí til 2. júní næstkomandi fer fram í
Reykjavík alþjóðlegt sundmót samkyn-
hneigðra á vegum alþjóðasamtakanna
IGLA. Þar keppa yfir 400 keppendur víðs
vegar að úr veröldinni um heimsbikar
samkynhneigðra í sundi. Keppt verður
í hefðbundnum sundgreinum en einnig
skemmtilegu sundsporti eins og listdans-
sundi og vatnspólói, eftir 41 árs hlé.
Í kringum sundmótið, sem nú er
haldið í fyrsta sinn á Íslandi, skapast
iðulega mikil stemning afburða sund-
fólks sem hefur oftsinnis áður mætt
hvert öðru á mótum, hefur gaman af að
ferðast vítt og breitt og gera sér glaðan
dag.
Mótið fer fram í Sundhöll Reykjavík-
ur og í Laugardalslaug.
■ þlg
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
HELGIN
LISTVIÐBURÐUR Í NORÐURPÓNUM
Markmiðið að afmá landamæri milli listgreina
■ SVIÐSLIST, MYNDLIST, TÓNLIST OG VÍDEÓVERK
Listahóparnir Maddid og Fimbulvetur sýna í kvöld listviðburðinn
Vinnslan í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi í samvinnu við Alheiminn.
Þar geta áhorfendur notið verks sem hefur verið í vinnslu 30 lista-
manna fyrir litlar 500 krónur. Verkið mun vera blanda af myndlist,
gjörningi, sviðslist, vídeóverki, tónlist og innsetningu og er ævintýri
fyrir öll skynfæri.
Stofnendur Vinnslunar eru þau Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Vala
Ómarsdóttir, María Kjartansdóttir og Birgir Hilmarsson. Hópurinn
kynntist í London þar sem þau lærðu og unnu í sinni listgrein hver og
síðan þá hafa þau sett upp hin ýmsu sviðslistaverk og innsetningar,
bæði í London og í Reykjavík. Mikið af þekktum og reyndum lista-
mönnum koma við sögu í verkinu. Markmiðið er að afmá landamæri
á milli listgreina. Húsið verður opnað klukkan 19.30 og verður opið
til klukkan 1.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í
öl lum stærðum
og gerðum
Frelsið er
Skráning fer fram á heimasíðu skólans. www.flugskoli.is/skraning