Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 54
19. maí 2012 LAUGARDAGUR8
Laust er til umsóknar starf tæknimanns hjá Strætó bs.
Í boði er fjölbreytt framtíðarstarf við góðar starfsaðstæður.
Strætó bs. er byggðasamlag í eigu
sjö sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu og er hlutverk þess að
sinna almenningssamgöngum á
höfuðborgarsvæðinu. Hjá
fyrirtækinu starfa um 200 manns
auk undirverktaka. Meðalstarfs-
aldur er 14,6 ár. Góður starfsandi
er í fyrirtækinu, öflugt félagslíf og
klúbbastarf á meðal starfsfólks.
Gildi Strætó bs. eru stundvísi,
áreiðanleiki, fagmennska og gæði.
Ef þig langar að starfa eftir þessum gildum og taka þátt í því góða starfi sem á sér stað innan Strætó bs. hvetjum við þig til að sækja um.
Ísetning, utanumhald og almennt
viðhald á tæknibúnaði um borð
í strætisvögnum (s.s. fjarskiptabúnaði,
staðsetningarbúnaði, upplýsingaskjám,
o.s.frv.)
Önnur tilfallandi verkefni sem
tengjast tæknibúnaði strætisvagna
og/eða mjög haldbær reynsla á því sviði
vinna undir álagi
og þjónustulund
sviðsstjóri rekstrarsviðs.
Sími 540-2700,
netfang: joi@straeto.is
joi@straeto.is
27. maí 2012.
Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Auðarskóli
Deildarstjóri á leikskóla
Við leikskóladeild Auðarskóla er laus staða deildarstjóra
frá og með 1. ágúst næstkomandi. Um er að ræða
tveggja deilda leikskóla í nýlegu húsnæði.
Umsóknarfrestur er til 31. maí
Tónlistarkennari
Við tólistardeild Auðarskóla er laus staða tónlistarkenn-
ara frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tónlistar- og
grunnskóla-deildir vinna náið saman.
Umsóknarfrestur er til 4. júní
Grunnskólakennari
Við grunnskóladeild Auðarskóla í Búðardal eru lausar
stöður grunnskólakennara frá og með næsta skólaári.
Meðal kennslugreina eru smíði, enska og almenn
bekkjarkennsla. Umsóknarfrestur er til 26. maí.
Leikskólakennari
Við leikskóladeild Auðarskóla eru lausar stöður leik-
skóla-kennara frá og með 1. ágúst næstkomandi. Um er
að ræða tveggja deilda leikskóla í nýlegu húsnæði.
Umsóknarfrestur er til 26. maí.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir Eyjólfur
Sturlaugsson skólastjóri í síma 434-1133 eða á netfanginu
eyjolfur@audarskoli.is. Viðamiklar upplýsingar um allar deildir
skólans er að finna á www.audarskoli.is
Hjúkrunarheimilið Silfurtún
Hjúkrunarforstjóri
Starf hjúkrunarforstjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Silfurtúns í Búðardal er laust til umsóknar. Umsækjend-
ur skulu hafa háskólapróf í hjúkrunarfræði, nám og/eða
reynsla í stjórnun er kostur. Ráðið verður í starfið frá 1.
september 2012.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið sveitarstjori@
dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðar-
dal. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma
430 4700
sími: 511 1144
Vífilfell er framsækið markaðs- og þjónustufyrirtæki sem starfar fyrst og fremst á sviði drykkjar-
vöru. Vörumerkjaflóra Vífilfells samanstendur af mörgum af þekktustu vörumerkjum veraldar
og eru vörumerki frá The Coca-Cola Company þar fremst í flokki.
Við bjóðum upp á krefjandi starfsumhverfi þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna
gegnir lykilhlutverki. Við leggjum áherslu á markvisst fræðslustarf og gott upplýsingaflæði
ásamt tækifærum til starfsþróunar.
Vilt þú ganga til liðs við okkur?
Forstöðumaður árangursmælinga
Forstöðumaður árangursmælinga annast og hefur umsjón með árangursmælingum,
arðsemisútreikningum og skýrslugerð ásamt því að hafa umsjón með Microsoft BI kerfi
félagsins. Viðkomandi kemur að áætlanagerð og virðisgreiningum félagsins ásamt umsjón
verkefna sem tilheyra sviðinu. Starfið felur í sér erlend samskipti og krefst ríkrar hæfni í
mannlegum samskiptum. Viðkomandi heyrir undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
eða viðskipta
í ræðu og riti
til að vinna í hópi
Hæfniskröfur
Nánari upplýsingar veita
elisabet@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí nk.