Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 90

Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 90
19. maí 2012 LAUGARDAGUR54 54 menning@frettabladid.is JANUS BRAGI JAKOBSSON OG TINNA OTTESEN Eru potturinn og pannan í heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði. Tinna segir sérstaka stemningu ríkja á hátíðinni og aðstæður bjóða upp á nána samræðu um heimildarmyndagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIKórstjóri óskast Sönghópurinn Norðurljós, sem er blandaður áhugamannakór á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir kórstjóra. Umsóknir skulu berast fyrir 4. júní. Áhugasamir hafi samband við: Margrét, gsm 898 5068 Netfang: majasigrun@gmail.com  HAUGTUSSA  EFTIR EDVARD GRIEG HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR, SÓPRAN ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ HÁDEGISTÓNLEIKAR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR NORÐURLJÓSUM, HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 22. MAÍ KL. 12.15 WWW.OPERA.IS STÚLKAN Á HEIÐINNI AÐGANGUR ÓKEYPIS Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin í sjötta sinn á Patreksfirði um næstu helgi. Rúmlega 20 myndir verða frumsýnd- ar, þar af nokkrar erlendar verðlaunamyndir. Rúmlega tuttugu fullunnar heim- ildarmyndir og verk í vinnslu verða frumsýnd á heimildar- myndahátíðinni Skjaldborg, sem haldin verður á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 25. til 27. maí næstkomandi. Þetta er í sjötta sinn sem hátíð- in er haldin. Hún hefur smám saman fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur heim- ildarmynda hér á landi, enda hafa aldrei fleiri umsóknir borist en í ár. Tinna Ottesen og Janus Bragi Jakobsson eru potturinn og pann- an í skipulagningu Skjaldborgar. „Það sem er sérstaklega ánægju- legt er að við fáum fjölda mynda frá fólki sem er að gera sín fyrstu mynd sem og reynsluboltum sem hafa unnið í faginu árum ef ekki áratugum saman, til dæmis Páli Steingrímssyni, Árna Sveinssyni og Steingrími Birgissyni, sigur- vegaranum frá því í fyrra,“ segir Tinna. Erlent samstarf Meðal nýmæla á hátíðinni í ár er aukin áhersla á erlendar myndir en Skjaldborg er nú komin í sam- starf við dönsku heimildarmynda- hátíðina CPH:DO, einni áhrifa- mestu hátíð sinnar tegundar í Evrópu og sýnir tvær verðlauna- myndir frá henni. „Auk þess að sýna það besta sem er að gerast í innlendri heim- ildarmyndagerð viljum við líka að fólk fái nasasjón af því besta sem er að gerast erlendis,“ segir Tinna. „Við teljum að það geti ýtt undir ákveðið samtal sem stuðl- ar að þróun í íslenskri heimildar- myndagerð. Þar að auki eykur samstarf við erlendar hátíðir möguleika íslensku myndanna á að komast á flakk út um heim. Framtíðar- markmiðið er að komast í fleiri samstarfsverkefni þannig að fleiri íslenskar heimildarmyndir fái útbreiðslu fyrir tilstilli Skjald- borgar.“ Dagskráin sem slík leng- SKJALDBORGIN ÞÉTTIST MAX KESTNER HEIÐURSGESTUR Danski leikstjórinn Max Kestner verður heiðursgestur Skjaldborgar í ár. Kestner útskrifaðist úr Danska kvikmyndaskólanum 1997 og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir myndir sínar. Á hátíðinni sýnir hann tvær mynda sinna: Rejsen på ophavet eða Ferðin að upphafinu og Drømme i København eða Drauma í Kaupmannahöfn, en íslenski tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhanns- son gerði meðal annars tónlistina við síðarnefndu myndina. „Við erum dálítið að bregða út af venjunni,“ segir Tinna. „Hingað til höfum við yfirleitt notað tækifærið og heiðrað leikstjóra fyrir framlag þeirra til heimildamyndargerðar, en í þetta sinn erum við með heiðursgest sem er í farabroddi í því sem er að gerast í heimi heimildarmyndagerðar. Kestner tilheyrir mjög áhugaverðum skóla, sem leggur áherslu á að heimildarmyndir séu listform sem snúist um tjáningu listamannsins en ekki skrásetningu raunveruleikans. Hann beinlínis hafnar því að heimildarmynd gefi endurspegli raunveruleikann.“ ist ekki við þessa breytingu en verður þéttari að sögn Tinnu. Hundruð gesta leggja að jafn- aði leið sína á Skjaldborgarhá- tíðina, margir fara á hverju ári. Tinna segir það hafa ýmsa kosti að að halda kvikmyndahátíð í þorpi í tæplega 400 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni. „Höfuðkosturinn er auðvitað þessi nálægð sem myndast á milli þátttakenda og gesta. Á hátíðum í Reykjavík fer fólk yfirleitt í bíó og svo heim að hugsa um hvað það eigi að hafa í matinn. Þarna skapast ákveðin stemning þar sem fólk á í náinni og „konsent- reraðri“ samræðu um heimildar- myndir, sem getur leitt ýmislegt af sér.“ Á hátíðinni í fyrra voru margar áberandi góðar myndir. Var það einfaldlega óvenjugott ár eða til marks um að íslenskar heimild- armyndir séu almennt að verða betri og betri? „Ég skal ekki segja, kannski sambland af hvoru tveggja,“ segir Tinna. „Það hefur loðað við heimildarmyndir í gegnum tíðina að þær séu fyrst og fremst myndskreyttar ritgerðir. En ég held að það viðhorf sé sem betur fer á undanhaldi og að almennt sé farið að líta á heimildarmynd- ir sem alvöru kvikmyndagerð og sjálfstætt listform.“ Dagskrá og viðburði á Skjald- borg má nálgast á skjaldborg. com. bergsteinn@frettabladid.is Rúmlega tuttugu heimildarmyndir, bæði fullunnar og í vinnslu, verða sýndar í Skjaldborgarbíói á Patreks- firði 25. til 27. maí. Þar á meðal eru: Draumurinn um veginn – Gengið til orða Þriðji hluti af fimm í kvikmyndabálki sem fjallar um pílagrímsgöngu rit- höfundarins Thors Vilhjálmssonar til heilags Jakobs á Norður-Spáni. Leik- stjóri er Erlendur Sveinsson. Hrikalegir Steve Gym er gamalgróin lyft- ingastöð íslenskra kraftlyftinga, þar sem þjálfarinn Steve (Stefán Hallgrímsson) hefur í fjóra áratugi þjálfað sterkustu menn landsins, auk öryrkja og kynlegra kvista miðbæjar Reykjavíkur. Leikstjóri er Haukur Valdimar Pálsson. Óskin Bubbi Morthens fór í stúdíó í janúar á þessu ári til að leggja drög að nýrri plötu. Þetta átti að vera nokkurs konar endurkoma sagnaskáldsins og trúbadorsins Bubba, sem var hans helsta einkenni í upphafi ferilsins. Leikstjórinn Árni Sveinsson fékk að fylgjast með og útkoman er portrett af manni sem flestir hafa skoðun á en fæstir þekkja. Spóinn var að vella Spóinn er einn þeirra fugla sem er samgróinn íslenskri þjóðarvitund. Hann kemur á hverju vori og hverfur aftur suður á bóginn að hausti. Stutt er síðan menn komust að því hvert hann fer þá, en hann eyðir vetrar- dögum í Vestur-Afríku. Leikstjóri er Páll Steingrímsson. Hvernig er þín týpa? Myndin fjallar um leturhönnun og mikilvægi hennar. Í myndinni verður kafað inn í heim leturnörda, erlendra og íslenskra. Leikstjórar eru Bára Ösp Kristgeirsdóttir og Ingibjörg Ásmundsdóttir. Ljóðræn heimildarmynd Í myndinni verður farið yfir heilt ár í lífi hljómsveitarinnar Sudden Weather Change. Leikstjóri er Loji. Fjallkonan hrópar á vægð Mynd um áhrif lausagöngu búfjár og áhrif hennar á gróður- og jarðvegs- eyðingu hér á landi. Leikstjórar eru Jón Karl Helgason og Herdís Þor- valdsdóttir, sem hefur látið þennan málaflokk sig varða árum saman. Crulic: The Path to Beyond Hreyfi-heimildarmynd í fullri lengd um Claudio Crulic, 33 ára Rúmena sem deyr í hungurverkfalli í pólsku fangelsi. Hlaut Amnesty Award 2012 á CPH:DOX. Two Years at Sea Fylgst er með Jake, sem hefur slitið sig frá umheiminum og komið sér fyrir í hjólhýsi í skoskum skógi. Hlaut aðalverðlaun CPH:DOX 2012. KÓNGUR, LÓAN OG KRAFTAJÖTNAR LIST ÁN LANDAMÆRA LÝKUR Síðasti viðburður hátíðarinnar Listar án landamæra verður í dag klukkan 15.00 í Smámunasafninu í Eyjafirði en þá verður formleg afhjúpun á Sámi smámunaverði sem hópurinn Geðlist gerði. Sami hópur á heiðurinn að Safnverðinum sem gætir Safnasafnsins á Svalbarðsströnd og Skógar- verðinum sem gætir Kjarnaskógar. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, afhjúpar verkið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.