Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 110
19. maí 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
Elín Lovísa Elíasdóttir
Aldur: 21 árs.
Starf: Vinnur hjá
Arion banka í
sumar.
Foreldrar: Elías
Ægir Jónasson,
starfsmaður
Íslandsbanka, og
Ingibjörg Margrét
Ísaksdóttir hjá
Vinnumálastofnun.
Fjölskylda:
Kærastinn heitir
Pétur Viðarsson.
Búseta: Hafnarfjörður.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Elín Lovísa Elíasdóttir, systir Klöru í The
Charlies, sendi nýlega frá sér lagið Hring
eftir hring.
Guðmundur Reynir Gunnarsson,
fótboltamaður í KR og nemandi í
hagfræði við Háskóla Íslands, fékk
hæstu einkunn frá hinum virta
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum
þar sem hann stundaði skiptinám í
vetur. Guðmundur Reynir er kom-
inn aftur heim til Íslands og lék
sinn fyrsta leik með KR á þriðju-
daginn var.
Guðmundur stundaði skiptinám
við Harvard-háskólann í vetur og
lauk önninni með hæstu einkunn í
öllum fögum. „Ég tók tvö fög í hag-
fræði og tvö fög í sálfræði og fékk
„A“ í þeim öllum. Ég er mjög sáttur
við einkunnirnar og þær koma sér
líklega vel þegar ég sæki um fram-
haldsnám eða vinnu í framtíðinni,“
segir Guðmundur, sem stundar-
BA nám í hagfræði við Háskóla
Íslands.
Skiptinámið við Harvard er nýtt
af nálinni og enn er enginn sam-
starfsamningur á milli háskólanna
tveggja og þurfti Guðmundur því
að fá sérstakt leyfi frá HÍ fyrir
skiptináminu. „Námið var öðruvísi
en ég átti að venjast, það var mikið
af verkefnaskilum yfir önnina og
mikið lagt upp úr virkni og vinnu
í tímum þannig að lokaprófin sjálf
höfðu minna vægi.“
Guðmundur eyddi lunganum úr
deginum í nám og verkefnavinnu
og spilaði fótbolta með skólalið-
inu í frítíma sínum. „Ég bjó rétt
hjá stúdentagörðunum og mætti
snemma morguns í skólann og var
þar meira og minna allan daginn.
Kvöldin fóru svo annaðhvort í að
sinna félagslífinu eða lærdómi.“
Undirbúningstímabilið hófst í
nóvember og missti Guðmundur
að miklu leyti af því vegna skipti-
námsins. Hann lék sinn fyrsta leik
á þessu tímabili á þriðjudaginn
og hyggst einbeita sér alfarið að
boltanum í sumar enda er mikið í
húfi því KR-ingar þurfa að verja
bæði Íslands- og bikarmeistara-
titilinn. Inntur eftir því hvað liðs-
félögum hans þyki um hinn góða
námsárangur segir Guðmundur
þá helst gera góðlátlegt grín að
honum. „Þeir gera nú mest grín að
þessu og reyna að finna eins marga
brandara út á þetta og þeir geta. Ég
tek því létt og hef bara gaman af
þessu.“ sara@frettabladid.is
GUÐMUNDUR REYNIR GUNNARSSON: ÉG ER MJÖG SÁTTUR
Fótboltamaður fær hæstu
einkunn í Harvard-háskóla
EFNILEGUR Guðmundur Reynir Gunnarsson, hagfræðinemi og fótboltamaður í KR, hlaut hæstu einkunn frá Harvard-háskólanum
þar sem hann stundaði skiptinám í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við erum á áætlun með hann og það er engin
breyting,“ segir Margrét Hrafnsdóttir, fram-
leiðandi kvikmyndarinnar Kill the Poet.
Hollywood-leikarinn Nick Stahl leikur aðal-
hlutverkið í myndinni en ekkert hefur spurst
til hans síðan 9. maí síðastliðinn, eða í tíu daga.
„Maður á aldrei að trúa því sem maður les í
fjölmiðlum,“ segir Margrét og segir að málið
hafi verið blásið upp vegna frægðar Stahl.
Tökur á Kill the Poet eiga að hefjast hér á
landi seint í haust. Margrét er sallaróleg og
segir hún aðspurð að engin leit sé hafin að
nýjum leikara í hlutverkið.
Hinn 32 ára Stahl, sem lék í Terminator 3,
hefur átt við vandamál að stríða í einkalífinu
en hann skildi við eiginkonu sína í janúar.
Spurð út í Stahl segir Margrét að hann sé
ákaflega hæfileikaríkur. „Ef við skoðum hans
feril þá er hann búinn að vinna með Mickey
Rourke, Mel Gibson, Marisu Tomei og Char-
lize Theron. Allir segja það sama um hann, að
hann sé frábært „talent“. Það er okkar lukka
að hann hefur mjög gaman af því að taka að
sér að leika í indí-myndum. Þetta er Óskars-
verðug rulla og þess vegna voru menn spenntir
fyrir henni. Það er ástæðan fyrir því að Heath
Ledger las handritið rétt áður en hann lést.“
Nick Stahl á að leika skáldið Stein Stein-
arr í myndinni og Anita Briem leikur Louisu
Matthíasdóttur. Nína Dögg Filippusdóttir
leikur Nínu Tryggvadóttur og Björn Hlynur
Haraldsson fer með hlutverk Ragnars í
Smára, auk þess sem Gísli Örn Garðsson
verður í leikarahópnum. Tökur á mynd-
inni fara einnig fram í Kanada. Leik-
stjóri verður Jón Óttar Ragnarsson. - fb
Hvarf Stahl setur ekki strik í reikninginn
MARGRÉT HRAFNSDÓTTIR
Tökur á Kill the Poet hefjast
hér á landi seint í haust.
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
www.celsus.is
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur !
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
Sunnudaga á Stöð 2
Golden Globe - Besti dramaþáttur ársins
Kate McCulley er bandarískur
ferðabloggari sem starfar við það
að ferðast um heiminn og skrifa um
ævintýri sín. McCulley er nú stödd
hér á landi og segir Ísland standa
undir öllum þeim væntingum sem
hún hafði til landsins.
Í október árið 2010 ákvað McCul-
ley að segja upp starfi sínu og íbúð,
pakka föggum sínum og halda á vit
ævintýranna. Á meðan á ferðalag-
inu stóð hélt hún úti bloggsíðunni
Adventurouskate.com, sem nú er
orðin hennar lifibrauð.
„Ég hafði lengi átt mér þann
draum að ferðast um allan heim-
inn og hafði ætlað mér að taka
ársfrí eftir útskriftina úr háskóla
til að ferðast. Ári eftir útskrift var
ég í vinnu sem ég þoldi ekki og var
orðin dauðþreytt á Boston. Ég átti
ekki næga peninga til að ferðast um
allan heiminn en ég átti nóg til að
fara til Asíu í hálft ár og það gerði
ég,“ segir McCulley. Í dag býr hún
í fimm vikur í senn hjá kærasta
sínum í Bretlandi en þess á milli
sinnir hún starfi sínu. McCulley
ferðast að mestu ein síns liðs og á
bloggsíðu hennar kemur fram að
hún vilji sýna að konur geti ferðast
einar um á öruggan hátt. „Mér
finnst best að ferðast ein því þá hef
ég frelsi til að gera allt það sem mig
langar til. Ég hef einu sinni verið
rænd og það gerðist beint fyrir
framan íbúðina mína í Boston.“
Á ferðum sínum hefur McCul-
ley meðal annars lent í skipbroti
í Indónesíu og hreppt aukahlut-
verk í lélegri, þýskri kvikmynd.
Hér hyggst hún ganga á jökul, fara
í útreiðartúr og í miðnæturköfun.
Þegar hún er að lokum spurð hvað
henni þyki um land og þjóð kveðst
McCulley hrifin. „Ég hafði miklar
væntingar til landsins áður en ég
kom og það stendur fyllilega undir
þeim öllum.“ -sm
Draumurinn varð lifibrauðið
DRAUMASTARFIÐ Kate McCulley starfar
við það að ferðast um heiminn. Hún er
nú stödd hér á landi og kveðst hrifin af
landi og þjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI