Fréttablaðið - 06.06.2012, Side 16

Fréttablaðið - 06.06.2012, Side 16
Fróðleiksmolinn | 2 6. júní 2012 | miðvikudagur Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ ➜ Fasteignamarkaðurinn í mánuðinum eftir landshlutum ➜ Gistinætur og gestakomur ➜ Lífeyrissjóðir - hagtölur SÍ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ ➜ Talning úr Þjóðskrá Íslands ➜ Bein fjárfesting – hagtölur SÍ ➜ Efnahagur Seðlabanka Íslands – hagtölur SÍ ➜ Morgunfundur um olíu á drekasvæðinu FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ ➜ Vísitala launa á fyrsta ársfjórðungi 2012 ➜ Landsframleiðsla á fyrsta ársfjórðungi 2012 ➜ Erlend staða Seðlabankans – hagtölur SÍ ➜ Aðalfundur Haga ➜ Útboð ríkisbréfa MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ ➜ Fjármál hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2012 ➜ Markaðsupplýsingar Lánamála Ríkisins ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ ➜ Fjöldi þinglýstra leigusamninga ➜ Atvinnuleysi í maí 2012 ➜ Greiðslumiðlun MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ ➜ Vaxtaákvörðunardagur SÍ ➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir – hagtölur SÍ ➜ Útboð ríkisvíxla FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ ➜ Vísitala launakostnaðar ➜ Fiskafli í maí 2012 ➜ Smásöluvísitala RSV ➜ Tryggingafélög – hagtölur SÍ Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Við erum alltaf á tíma… …á þínum tíma! Akureyrarflugvelli | 600 Akureyri | 414 6960 | www.norlandair.is | norlandair@norlandair.isHraðfleyg 7 breið og þægileg sæti Leiguflug innanlands og milli landa Saga Capital hf., sem lengi vel var fjárfestingabanki, hefur verið tekið til slitameðferðar og félaginu skipuð slitastjórn. Þetta gerist í kjölfar þess að Héraðs- dómur Norðurlands eystra úr- skurðaði að krafa Fjármálaeftir- litsins (FME) um að félagið yrði tekið til slitameðferðar væri rétt- mæt. Kröfulýsingarfrestur er til 24. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í innköllun sem birt- ist í Lögbirtingarblaðinu á mánu- dag. Í slitastjórn voru skipaðir Ástráður Haraldsson, Arnar Sig- fússon og Sigrún Guðmundsdóttir. FME afturkallaði starfsleyfi Sögu sem fjárfestingabanka í október 2011 þar sem hann fullnægði ekki ákvæðum laga um fjármálafyrir- tæki um eigið fé. Í kjölfarið var nafni hans breytt aftur í Sögu Capital og félaginu bannað að kalla sig banka. Forsvarsmenn Sögu reyndu að fá ákvörðunina ógilta en Héraðs- dómur Reykjavíkur staðfesti hana í mars síðastliðnum. Í kjölfarið höfðaði FME mál og gerði kröfu um að Sögu yrði slitið. Saga Capi- tal tapaði samtals 8,3 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Seðla- banki Íslands átti óbeinan tíu pró- senta hlut í félaginu sem nú er tap- aður. Forsaga þess að bankinn eignaðist þann hlut er sú að rík- issjóður veitti Sögu 19,6 milljarða króna lán í mars 2009 á tveggja prósenta vöxtum, sem var langt undir þáverandi ávöxtunarkröfu sem var um tólf prósent. Saga nú- virti lánið og bjó þar með til nægi- lega mikla eign í bókhaldi sínu til að sýna jákvætt eigið fé. Þetta lán er tapað að langmestu leyti. -þsj Seðlabankinn á tíu prósenta hlut í Sögu sem mun tapast: Saga Capital í slitameðferð LÍFEYRISSJÓÐIR Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR, hefur selt allan eignarhlut sinn í Bakkavör Group. Barst LSR tilboð í eignarhlutinn eftir að hugmyndir um hlutafjáraukningu Bakkavarar voru kynntar en LSR lagðist gegn samþykkt á hluthafasamkomulagi sem byggði á hugmyndunum og var samþykkt á hluthafafundi 23. maí. LSR hafði þó þegar selt hlutinn þegar fundurinn fór fram. „Við fengum tilboð í gegnum ótengdan aðila en samkvæmt efni þess samnings sem gerður var um söluna í kjölfarið ríkir trúnaður um efni hans fyrst um sinn. Ég get þó staðfest að við höfum selt allan okkar eignarhlut og eigum því ekk- ert lengur í Bakkavör,“ segir Hauk- ur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR. Haukur segir að LSR hafi ekki verið sáttur við þær hugmyndir sem kynntar voru á hluthafafundi Bak- kavarar Group um hlutafjáraukn- ingu félagsins. „Það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að forsendur þess nauðasamnings sem kröfuhaf- ar gerðu við félagið á sínum tíma hafa ekki gengið eftir. Reksturinn hefur einfaldlega verið erfiðari en miðað var við í forsendum samn- ingsins. Það kallaði því á breytingar sem hafa verið kynntar, meðal ann- ars um aukið hlutafé,“ segir Hauk- ur og heldur áfram: „Við settum okkur hins vegar upp á móti þeim hugmyndum og þegar tilboðið barst ákváðum við því fremur að taka því en að vinna eftir samkomulaginu.“ Í samkomulaginu fólst að íslensk- ir kröfuhafar Bakkavarar Group myndu eignast félagið að mestu. Á sama tíma myndi falla úr gildi hluthafasamkomulag sem tryggði þeim Ágústi og Lýði Guðmundssyni meirihluta í stjórn félagsins og þá skyldu bræðurnir skila eignarhlut í Bakkavör Group til Klakka, áður Exista, sem færður var út úr fé- laginu árið 2009. Á móti var samþykkt að bræðurn- ir gætu keypt allt að 25 prósenta hlut í félaginu og myndi hlutur annarra hluthafa þynnast út. Fyrir hlutinn myndu þeir greiða um fjóra millj- arða króna sem er talsvert undir markaðsvirði félagsins en hlutafé þess er talið 20 til 40 milljarða króna virði. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að hópur hluthafa í Bakkavör Group var á móti þeim hugmynd- um sem kynntar voru á hluthafa- fundi félagsins 23. maí síðastliðinn um skilyrta hlutafjáraukningu. Einn af þeim aðilum sem settu sig upp á móti samkomulaginu var Landsbankinn sem sat hjá við at- kvæðagreiðslu um samkomulagið. Var meðal annars haft eftir Krist- jáni Kristjánssyni, upplýsingafull- trúa Landsbankans, í Fréttablaðinu síðasta föstudag að bankinn hefði verið mjög óánægður með það verð sem bræðrunum bauðst í hlutafjár- aukningunni og marglýst yfir and- stöðu við samkomulagið. Vinna við gerð samkomulagsins var leidd af Arion banka sem var stærsti einstaki kröfuhafi Bakkav- arar Group. Aðrir stórir kröfuhaf- ar voru skilanefnd Glitnis, LSR, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður. LSR selur í Bakka- vör vegna óánægju LSR hefur selt allan eignarhlut sinn í Bakkavör Group. Barst sjóðnum tilboð í hlut- inn eftir að hugmyndir um hlutafjáraukningu félagsins voru kynntar en LSR lagðist gegn hluthafasamkomulagi sem samþykkt var á hluthafafundi 23. maí síðastliðinn. HAUKUR HAFSTEINSSON Haukur segir LSR ekki hafa verið sáttan við það samkomulag um hlutafjáraukningu í Bakkavör sem samþykkt var á hluthafafundi 23. maí síðastliðinn. Fleiri hluthafar, þar á meðal Landsbankinn, voru á móti samkomulaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Heildarfjöldi stang- og netaveiddra laxa Stangveiði skráð Fjöldi sleppt Heimild: Veiðimálastofnun Skráð: 5. júní 2012 100 k 90 k 80 k 70 k 60 k 50 k 40 k 30 k 20 k 10 k 0 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 Laxveiðitímabilið 2012 hófst í gær- morgun með veiði í Norðurá. Sam- kvæmt heildum frá Veiðimálastofnum var sumarið 2011 það fjórða besta frá upphafi. Alls veiddust þá 55.639 laxar á stöng en af þeim var 16.876 löxum sleppt í árnar aftur sem er um 30% af stangveiddum laxi. Hlutfall “veiða og sleppa“ hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 1996, úr 2% í 30% af öllum stangveiddum laxi. Af veiddum löxum sumarið 2011 var 81% smálaxar (eins árs fiskur) og 19% stórlaxar. Heildarþyngd allar landaðra laxa í stangveiði var 101.720 kg. Almennt er búist við að laxveiði verði yfir meðallagi í sumar þó ekki sé gert ráð fyrir met ári. Árið 2008 var met ár en þá veiddust 84.124 laxar á stöng og 23% af laxinum var sleppt í árnar aftur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.