Fréttablaðið - 06.06.2012, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 6. júní 2012 21
Bíó ★★★ ★★
Prometheus
Leikstjórn: Ridley Scott
Leikarar: Noomi Rapace, Michael Fassbender, Charlize Theron, Guy
Pearce, Idris Elba, Logan Marshall-Green
Frændinn loks mættur
KÆRKOMIN Prometheus er áhugaverð mynd, sérstaklega ef bág staða vísinda-
skáldsakapar nútímans er tekin með í reikninginn.
Árið 1979 sló breski leikstjórinn
Ridley Scott í gegn með Alien,
óhuggulegri kvikmynd þar sem
sýruslefandi ófreskja gekk ber-
serksgang um borð í geimskipi,
en myndin var undanfari stórrar
bylgju misgóðra framhaldsmynda
sem enn sér ekki fyrir endann á. Á
þessum rúmlega 30 árum sem liðið
hafa frá frumsýningu myndarinn-
ar hefur skepnan fjölgað sér, laum-
að erfðaefni sínu í menn, lært að
synda og barist við Predator í tví-
gang. Og nú fáum við Prometheus
– mynd sem varpar ljósi á uppruna
skrímslanna og hvernig þau kom-
ust fyrst í kynni við jarðarbúa.
Væntingarnar hafa verið gíf-
urlegar og það var löngu vitað að
myndin myndi valda vonbrigðum
ef reynt væri um of að bera hana
saman við hina upprunalegu Alien.
Sjálfur hefur Scott verið ragur við
að nota orðið „prequel“, og er það
nokkuð skiljanlegt því þrátt fyrir
að tengjast seríunni á ýmsan máta
reynir Prometheus að vera sjálf-
stæð og skapa sína eigin stemn-
ingu. Þar tekst leikstjóranum
best til og myndmálið er virkilega
sterkt. Stílhrein myndatakan dreg-
ur fram það besta bæði í íburðar-
mikilli sviðsmynd geimskipsins
Prometheus og landslagi plánet-
unnar LV-223.
En minna hefur verið lagt í
handritið og er það persónusköp-
unin sem er hlunnfarin hvað mest.
Nærri helmingur áhafnar skipsins
er óeftirminnilegt fallbyssufóður
og framan af er mjög óljóst hver
aðalpersónan er. Í Alien virkaði
það fullkomlega en hér er það til
vansa og grunar mig að það skrif-
ist á fljótfærni skríbentanna. Í
þessum öfluga leikhópi er það
aðeins Michael Fassbender sem
fær virkilega að njóta sín, en það
er kaldhæðnislegt að hugsa til þess
að safaríkasta persónan sé gervi-
maðurinn í hópnum.
Prometheus er þrátt fyrir þetta
áhugaverð og kærkomin, sérstak-
lega ef bág staða vísindaskáld-
skapar nútímans er tekin með í
reikninginn. Það er þó ekki sjálf-
gefið að ástríðufyllstu aðdáend-
ur Alien-seríunnar taki þessum
náskylda frænda opnum örmum,
þó hans hafi verið beðið í ofvæni.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Umgjörðin er glæsileg
og andrúmsloftið þrælmagnað. Þess
vegna á Prometheus skilið svo miklu
vandaðra handrit.