Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 6. júní 2012 21 Bíó ★★★ ★★ Prometheus Leikstjórn: Ridley Scott Leikarar: Noomi Rapace, Michael Fassbender, Charlize Theron, Guy Pearce, Idris Elba, Logan Marshall-Green Frændinn loks mættur KÆRKOMIN Prometheus er áhugaverð mynd, sérstaklega ef bág staða vísinda- skáldsakapar nútímans er tekin með í reikninginn. Árið 1979 sló breski leikstjórinn Ridley Scott í gegn með Alien, óhuggulegri kvikmynd þar sem sýruslefandi ófreskja gekk ber- serksgang um borð í geimskipi, en myndin var undanfari stórrar bylgju misgóðra framhaldsmynda sem enn sér ekki fyrir endann á. Á þessum rúmlega 30 árum sem liðið hafa frá frumsýningu myndarinn- ar hefur skepnan fjölgað sér, laum- að erfðaefni sínu í menn, lært að synda og barist við Predator í tví- gang. Og nú fáum við Prometheus – mynd sem varpar ljósi á uppruna skrímslanna og hvernig þau kom- ust fyrst í kynni við jarðarbúa. Væntingarnar hafa verið gíf- urlegar og það var löngu vitað að myndin myndi valda vonbrigðum ef reynt væri um of að bera hana saman við hina upprunalegu Alien. Sjálfur hefur Scott verið ragur við að nota orðið „prequel“, og er það nokkuð skiljanlegt því þrátt fyrir að tengjast seríunni á ýmsan máta reynir Prometheus að vera sjálf- stæð og skapa sína eigin stemn- ingu. Þar tekst leikstjóranum best til og myndmálið er virkilega sterkt. Stílhrein myndatakan dreg- ur fram það besta bæði í íburðar- mikilli sviðsmynd geimskipsins Prometheus og landslagi plánet- unnar LV-223. En minna hefur verið lagt í handritið og er það persónusköp- unin sem er hlunnfarin hvað mest. Nærri helmingur áhafnar skipsins er óeftirminnilegt fallbyssufóður og framan af er mjög óljóst hver aðalpersónan er. Í Alien virkaði það fullkomlega en hér er það til vansa og grunar mig að það skrif- ist á fljótfærni skríbentanna. Í þessum öfluga leikhópi er það aðeins Michael Fassbender sem fær virkilega að njóta sín, en það er kaldhæðnislegt að hugsa til þess að safaríkasta persónan sé gervi- maðurinn í hópnum. Prometheus er þrátt fyrir þetta áhugaverð og kærkomin, sérstak- lega ef bág staða vísindaskáld- skapar nútímans er tekin með í reikninginn. Það er þó ekki sjálf- gefið að ástríðufyllstu aðdáend- ur Alien-seríunnar taki þessum náskylda frænda opnum örmum, þó hans hafi verið beðið í ofvæni. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Umgjörðin er glæsileg og andrúmsloftið þrælmagnað. Þess vegna á Prometheus skilið svo miklu vandaðra handrit.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.