Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 38
6. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR26 GOTT Á GRILLIÐ „Hamborgarar eru bestir á grillið. Ég borða svo sjaldan hamborgara en get ekki staðist þá grillaða og úr alvöru kjöti. Svo er grillaður kúrbítur líka í uppáhaldi, penslaður með ólífuolíu og sjávarsalti.“ Ebba Guðný Guðmundsdóttir, rithöf- undur og matarráðgjafi Heimildarmynd um tónlistar- sögu Suðurnesja er í undirbúningi. Tökur hefjast á tónlistarhátíðinni Keflavík Music Festival á fimmtu- daginn. „Þegar ég frétti að það ætti að halda þessa hátíð ákvað ég að gera þetta. Ég var nýbúinn að gera stutt- mynd sem gekk vel og mér fannst eins og það væri hægt að gera eitt- hvað „kúl“ úr þessu,“ segir leik- stjórinn Anton Ingi Sigurðsson. Stuttmyndin heitir Grafir og bein og voru Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir í aðalhlut- verkum. Að sögn Antons Inga verð- ur heimildarmyndin í fullri lengd. „Þetta er frekar stórt verkefni, enda um tónlistarsögu Suðurnesja. Það er úr hellingi að velja þar.“ Bítlabærinn Keflavík verður áber- andi í myndinni og verður þar fjallað um goðsagnir á borð við Rúnar Júlíusson og Magnús Kjart- ansson. Einnig koma við sögu hljómsveitirnar Of Monsters and Men, sem kemur að hluta til úr Garði, og Klassart úr Sandgerði. Á Keflavík Music Festival verður svo fylgt eftir flytjendum á borð við Retro Stefson, Lay Low og Sykur. Með Antoni Inga koma að myndinni framleiðendurnir Erlingur Jack Guðmundsson, Garðar Örn Arnar- son og þeir Ólafur Geir Jónsson og Pálmi Þór Erlingsson sem skipu- leggja Keflavík Music Festival. Til stendur að frumsýna myndina á Ljósanótt í Reykjanesbæ í haust og sýna hana víðar í framhaldinu. Útgáfa á mynddiski er einnig fyrir- huguð. Keflavík Music Festival verð- ur haldin í fyrsta sinn 7. til 10. júní. Hátíðin fer fram á helstu skemmtistöðum Reykjanesbæjar og hefst hún á tónleikum á Ránni með hljómsveitunum Valdimar og Klassart. Um eitt hundrað flytjend- ur koma fram á hátíðinni. freyr@frettabladid.is ANTON INGI SIGURÐSSON: ÞETTA ER FREKAR STÓRT VERKEFNI Gera heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja NÝ HEIMILDARMYND Fjallað verður um Of Monsters and Men og fleiri flytjendur í nýrri heimildarmynd sem Anton Ingi Sigurðsson leikstýrir. Rúnar Júlíusson kemur að sjálfsögðu einnig við sögu í myndinni. „Þetta er að aukast. Það er kominn fiðringur í menn fyrir helgina,“ segir Sigurður Garðarsson hjá Jóa útherja. Sala á landsliðstreyjum hefur verið að aukast að undanförnu í tengslum við EM í fótbolta sem hefst í Póllandi og Úkraínu á föstudaginn. Aðspurður segir Sigurður að alls konar búningar hafi verið að seljast í versluninni. „Þýski er alltaf vinsæll og svo eru flottir búningar eins og Holland og Frakkland. Sumir kaupa útlitið en aðrir kaupa liðið sitt.“ Hann býst einnig við því að spænska treyjan eigi eftir að taka kipp, þó svo að sú þýska hafi enn yfirhöndina. Þeir hörðustu láta merkja treyjuna sína og að sögn Sigurðar hefur Þjóðverjinn Mesut Özil sem leikur með Real Madrid verið hvað heitastur. Margir hafa einnig smellt Ronaldo á portúgölsku treyjuna sína. Íslenska landsliðið tekur ekki þátt í EM frekar en fyrri daginn en íslensku landsliðstreyjurnar seljast samt reglulega. „Hún er keypt bæði af Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Það er skemmtilegt að eiga svona þekkta knattspyrnumenn eins og Kolbein Sigþórsson og Gylfa Sigurðsson. Þeir eru að virka vel.“ -fb Þýska landsliðstreyjan vinsæl ÞJÓÐVERJAR VINSÆLIR Þýska landsliðstreyjan hefur verið vinsæl, að sögn Sigurðar Garðarssonar hjá Jóa útherja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það er heiður að leika á móti svona reyndum leikara,“ segir Melkorka Óskarsdóttir. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í leikritinu Beast í London, sem frumsýnt var á miðvikudaginn var. Melkorka útskrifaðist fyrir fjór- um árum með BA-gráðu í leiklist frá London Academy of Music and Dramatic Art og er þetta með fyrstu verkefnum hennar á þar- lendu leiksviði. „Ég hef leikið í auglýsingum og tekið að mér smærri hlutverk í bíó- myndum og þáttum. Eftir útskrift hef ég lítið leikið á Íslandi en meðal annars í stuttmynd Marteins Þóris- sonar, leikstjóra Roklands.“ Gagnrýnendur hafa farið fögr- um orðum um sýninguna og fékk hún fimm stjörnu dóm á vefsíðu The Public Reviews. Þar er Mel- korka sögð sýna mikinn þroska og dýpt í leik miðað við aldur ásamt því að vera skemmtileg áhorfs. Mótleikari hennar er Kieron Jecchinis. Hann á að baki langan feril í breskum leikhúsheimi. „Síðast fór hann með hlutverk í leikritinu Bingo á móti hinum þekkta Patrick Stewart í heims- fræga leikhúsinu Old Vic.“ Jecch- inis hefur einnig leikið í kvikmynd- um og er eflaust þekktastur fyrir leik sinn í Full Metal Jacket eftir Stanley Kubrick. Leikritið fjallar um ástarsam- band eldri listamanns við vændis- konu. Samleikur þeirra er í áður- nefndum dómi sagður vera nálægt því að endurvekja fræg ummæli Charles Spencer, gagnrýnanda Telegraph, um algjört leikhús- Viagra. „Á köflum er verkið mjög sorg- legt og við höfum grætt marga, sem er mjög gaman.“ Ungi leikhópurinn UNTitled Theatre stendur að baki uppsetn- ingunni sem verður sýnd til 17. júní. Einnig koma þau fram á hátíð tengdri Ólympíuleikunum í júlí. -hþt Samleikurinn leikhús-Viagra FIMM STJÖRNUR Melkorka fær mikið lof fyrir leik sinn á breskum leikhúsfjölum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.