Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 8
13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR8 1. Hvaða læknir fékk Norrænu lýð- heilsuverðlaunin 2012? 2. Hvaða fyrirtæki setti upp ólögleg auglýsingaspjöld í Reykjavík? 3. Hvað sóttu tveir björgunar- sveitarmenn ofan í gjótu í Vest- manneyjum? SVÖR 1. Haraldur Briem 2. Zo-On 3. Lamb Íslenskar gullauga kartöflur Íslensk hreindýrateik úr læri 120 gr Hamborgarar • Gott verð FLOTTUR STÓR HUMAR 5.500 kr.kg ( 1 kg. í öskju ) Heitur matur frá 11.30-13.30 og 17.00-19.00 Góð Laxaflök • Fiskisteikur í úrvali Fiskur á grillið eða í ofninn Grillsagað lambakjöt 1.100 kr.kg ( 6-8 kg. í poka ) Örugglega bestu kaupin Beinlaus Lambasteik, kryddaðar rúllur beint í ofnin 1.390 kr.kg SAMFÉLAGSMÁL „Við munum klár- lega senda þá áskorun til okkar sérsambanda að við fordæmum alla slíka hegðun í ljósi þessarar umræðu,“ segir Líney Rut Hall- dórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). „Svona á ekki að eiga sér stað.“ Ómar Ragnarsson greindi frá því á bloggsíðu sinni um helgina að busanir nýliða innan íþróttahreyf- inga landsins verði oft svo ofbeldis- fullar að mennirnir sem fyrir þeim verða geti vart setið eða gengið á eftir, meðal annars eftir að hafa verið hýddir í sturtu. Líney segir fregnirnar hafa komið sér í opna skjöldu og lét sviðsstjóra innan sambandsins, Viðar Sigurjónsson, því kanna málið. Viðar hafði sam- band við sérsambönd ÍSÍ og segist ekkert hafa heyrt sem rími við frá- sögn Ómars. „Ég hef talað við forystumenn sambandanna og þeir kannast ekki við þessi mál með þeim hætti sem Ómar lýsir,“ segir hann. „En það breytir því ekki að við hjá forystu- sveit hreyfingarinnar tökum allt svona alvarlega. Við munum senda út ábendingar til okkar sambands- aðila um að skoða þessi mál innan sinna raða til að vera viss um að svona tíðkist ekki.“ Viðar segir sömu þróun hafa orðið innan íþróttahreyfinga varð- andi nýliðavígslur og hjá fram- haldsskólum. Nýliðar í landsliðum séu nú til dags látnir flytja ræður, syngja lög eða bera töskur. Ofbeldi eins og hýðingar tíðkist ekki. „Val á hugtökum í bloggi Ómars á ekkert skylt við það sem á sér stað innan hreyfingarinnar,“ segir Viðar. - sv ÍSÍ segir forsvarsmenn sérsambanda þvertaka fyrir að ofbeldisfull busun nýliða tíðkist innan íþróttafélaga: ÍSÍ fordæmir ofbeldisfullar busavígslur KOM FRAMKVÆMDASTJÓRA Á ÓVART Umfjöllun um ofbeldisfullar busavígslur innan íþróttahreyfinga kom fram- kvæmdastjóra ÍSÍ verulega á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUR Umræðu um ríkis- ábyrgð vegna fjármögnunar Vaðla- heiðarganga lauk á Alþingi í gær. Oddný G. Harðardóttir fjármála- ráðherra fer fram á heimild fyrir ríkissjóð til að undirrita lánasamn- ing við Vaðlaheiðargöng hf. vegna framkvæmda við göngin fyrir allt að 8,7 milljarða króna. Félagið sjálft, eignir þess og tekjustreymi eiga að vera fullnægj- andi tryggingar fyrir láninu. „Hér er um afar brýnt verkefni að ræða sem mun koma þjóðinni allri til góða í framtíðinni,“ sagði Oddný þegar hún mælti fyrir frum- varpinu. Hún sagði göngin vera á samgönguáætlun og ef ekki yrði farið í framkvæmdina með þessum hætti væru allar líkur á að ríkis- sjóður myndi kosta hana að fullu þegar þar að kæmi. „Með því að vinna með heima- mönnum að framgangi þessa verk- efnis í sérstöku félagi, í stað þess að ríkissjóður kosti framkvæmdina að fullu þegar að henni kemur í sam- gönguáætlun, er ríkið að ná fram miklum ávinningi.“ Þeir sem tala gegn málinu hafa bent á að það sé neðarlega á sam- gönguáætlun og önnur göng séu þar í meiri forgangi. Ekki sé rétt að taka eina framkvæmd fram yfir opinbera stefnumótun. Þá hefur verið sett spurningarmerki við aðkomu ríkisins að málinu. „Hér er um aðferð að ræða sem ber nokkurn keim af því, svo vægt sé til orða tekið, að verið sé að fara fram hjá efnahag ríkisins með þetta verkefni,“ sagði Birgir Ármanns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, þegar málið var lagt fram. „Það er í þessu áhætta sem á eftir að meta miklu betur en gert hefur verið. Þrátt fyrir að verk- efnið sem slíkt sé fallegt, jákvætt og gott þá er verið að koma með það inn í þingið á forsendum sem ég er hræddur um að standist ekki.“ Meirihluti fjárlaganefndar mælir með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Ákveðin áhætta felist í því en samfélagsleg- ur ávinningur verksins sé umtals- verður. kolbeinn@frettabladid.is Umræðu lokið um göng en afdrif óljós Alþingi hefur lokið umræðu um fjármögnun Vaðlaheiðarganga og atkvæða- greiðslan ein er eftir. Óljóst er um stuðning og gengur málið þvert á alla flokka. Tekist er á um hvort taka eigi framkvæmdina fram yfir samgönguáætlun. ODDNÝ G. HARÐARDÓTTIR BIRGIR ÁRMANNSSON VAÐLAHEIÐI Fyrirhuguð göng verða 7,4 km að lengd og munu stytta þjóðveg 1 um 15,7 km, eða um rúmar 10 mínútur sé ekið á 90 km hraða. Heildarkostnaður við göngin verður um 11 milljarðar og lánar ríkið 8,7 milljarða. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN KRISTJÁNSSON GRÆNLAND Grænlenska landsstjórnin mun ásamt Evr- ópusambandinu, ESB, undirrita í Nuuk í dag yfirlýs- ingu sem á að tryggja að Kínverjar fái ekki einkarétt á sölu fjölda mikilvægra bergtegunda í landgrunni Grænlands, heldur verði þær boðnar út á frjálsum markaði. Kínversk fyrirtæki geta tekið þátt í vinnslu svo- kallaðra „sjaldgæfra bergtegunda“ á Grænlandi og sölu þeirra en grænlenska landsstjórnin skuldbindur sig nú til að tryggja að viðskipti með bergtegundirnar verði frjáls, að því er segir á vef danska ríkisútvarps- ins. Gert er ráð fyrir að Grænlendingar fái 25 milljóna evra fjárhagsstuðning á komandi árum við vinnslu bergtegundanna vegna samvinnunnar við ESB. Stjórnvöld í Danmörku reyndu fyrr á þessu ári að hafa meiri áhrif á samningana við ESB. Danska stjórnin, sem styðst við greiningu leyniþjónustu hers- ins, er þeirrar skoðunar að „sjaldgæfar bergtegund- ir“ hafi svo mikið hernaðarlegt gildi að líta verði svo á að vinnsla þeirra heyri undir utanríkis- og öryggis- mál sem heyri undir Danmörku. Kína hefur nú yfirráð yfir 95 prósentum af heims- framleiðslunni úr sjaldgæfum bergtegundum sem meðal annars eru notaðar í háþróuð vopnakerfi, far- síma, vindmyllur og ýmsar hátæknivörur. Þess vegna hafa ríkisstjórnir, leyniþjónustur og iðnfyrirtæki á Vesturlöndum lengi reynt að koma í veg fyrir að Kín- verjar fái einkarétt yfir bergtegundunum við Græn- land sem eru þær mestu utan Kína. Kínverjar hafa áður notað yfirráð sín yfir sjaldgæfum bergtegundum til dæmis til þess að þvinga Japani til að fylgja fyrir- mælum sínum. - ibs Grænlenska landsstjórnin og ESB semja um sölu bergtegunda: Komið í veg fyrir einkarétt Kína Í NUUK Þessi leikskólabörn vöktu áhuga ljósmyndara blaðsins þegar hann var í Nuuk fyrir nokkru. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHEMÓtrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS Óviss afdrif Andstaða við málið gengur þvert á alla flokka og fjölmargir stjórnarliðar hafa lýst sig and- snúna málinu. Það er því nokkur spenna í loftinu um afdrif þess við atkvæðagreiðslu. Heimildarmenn Fréttablaðsins telja þó að það verði samþykkt. Sú staðreynd að umræðu um málið hafi lokið og atkvæðagreiðsla sé fyrirhuguð bendi til þess. Alþingi greiðir atkvæði um málið klukkan þrjú í dag. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.