Fréttablaðið - 13.06.2012, Blaðsíða 14
14 13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Alls liggja nú á fjórða hundrað umsagn-ir fyrir hjá atvinnuveganefnd Alþingis
um tillögu til þingsályktunar um vernd
og orkunýtingu landsvæða − rammaáætl-
un. Er þetta óvenjulegur fjöldi en hátt á
þriðja hundrað einstaklinga hafa sent inn
umsagnir í eigin nafni. Margar þeirra
umsagna eru afar keimlíkar og fyrirmynd
að þeim texta hefur mátt finna á vefsíðum
ýmissa náttúruverndarsamtaka. Kemur
þar ítrekað fram sú fullyrðing að mikil-
vægt sé að sem flestir sendi inn umsagnir
vegna þess að „magnið“ geti haft áhrif.
Umræddar umsagnir eru sumar í formi
tölvupósts og finna má dæmi um að í
efnis línu (subject) komi fram orðasam-
bandið „Massapóstur á Atvinnuvega-
nefnd“.
Þetta er allt gott og blessað en bætir
litlum upplýsingum við fyrir nefndina.
Þótt einn hópur kjósi að skipuleggja sig
með slíkum hætti segir það ekkert um
afstöðu alls þorra landsmanna og ekki er
mikið um viðbótarrök í mörgum þessara
umsagna.
Lýðræði og virkjanir
Ef leggja á áherslu á sjónarmið um
lýðræðislega aðkomu má minna á að
sumir virkjanakostirnir hafa t.d. þegar
farið í gegnum lýðræðislegt ferli mats
á umhverfisáhrifum, með tilheyrandi
opnum umsagnarferlum og ákvarðana-
töku lýðræðislega kjörinna fulltrúa á
sviði skipulagsmála. Jafnvel eru dæmi
um að virkjanakostir hafi verið kosninga-
mál í síðustu sveitarstjórnarkosningum
og stuðningsmenn umræddra virkjana
borið þar sigur úr býtum. Reyndar gerir
sú tillaga sem nú liggur fyrir Alþingi ráð
fyrir að sumir virkjanakostir þar sem
mati á umhverfis áhrifum er lokið og aðal-
skipulag og stuðningur sveitarstjórna
liggur fyrir fari í bið- eða verndarflokk,
þótt verkefnisstjórn hafi raðað þeim mjög
framarlega í sínu áralanga faglega ferli.
Sem kunnugt er hefur niðurstöðum þess
faglega ferlis verið varpað fyrir róða í
fyrirliggjandi tillögu, í tvöföldu óljósu
ferli á vettvangi stjórnmálanna, en það er
önnur umræða.
Samorka getur hins vegar glatt þing-
heim með því að ekki stendur til að sam-
tökin hvetji framvegis til sendinga á
„massapósti“ til þingnefnda um einstök
þingmál.
„Massapóstur“ á þingnefnd
Orkumál
Gústaf Adolf
Skúlason
aðstoðar-
framkvæmdastjóri
Samorku,
samtaka orku- og
veitufyrirtækja
Áburðardreifarar
Alvöru áhöld og tæki
í garðinn og sumarbústaðinn
. . . færðu hjá okkur
Greinakurlarar
“Bumbubanar”
Greinaklippur, toppklippur ofl.
ÞÓRHF
Krókhálsi 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 461-1070
www.thor.is
Á
standið í Sýrlandi fer stöðugt versnandi. Flestum
blöskrar framferði stjórnarhersins og bandamanna
hans, ekki sízt skipulögð fjöldamorð á almennum
borgurum. Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna sýnir
fram á kerfisbundið ofbeldi gegn börnum í landinu,
fyrst og fremst af hálfu stjórnvalda. Börn hafa verið pyntuð,
beitt kynferðisofbeldi, drepin og bundin við skriðdreka stjórnar-
hersins til að fæla uppreisnarmenn frá því að skjóta á þá.
Hinir síðastnefndu eru ekki
saklausir af voðaverkum, en
framferði sýrlenzkra stjórn-
valda ber vott um algjöra
örvæntingu; Assad forseti og
stjórn hans er greinilega að
missa tökin. Hætta er á að
ástandið í Sýrlandi þróist út í
blóðuga borgarastyrjöld, sem
jafnvel getur breiðzt út til fleiri ríkja, til dæmis Líbanons.
Borgarastyrjöld var raunar orðið sem Kofi Annan, sáttasemjari
Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins, notaði um ástandið
í landinu í gær.
Þingmenn á Alþingi Íslendinga fordæmdu fjöldamorðin í Sýr-
landi við upphaf þingfundar í gær. Ragnheiður Elín Árnadóttir
þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallaði fréttir frá landinu
réttilega „ömurlegar, ógeðfelldar og ógeðslegar“. Bæði hún og
Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, hvöttu utan-
ríkisráðherra til að beita sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
eða Atlantshafsbandalagsins fyrir því að unnt yrði að stöðva
drápin í Sýrlandi.
Róbert Marshall hefur hins vegar rétt fyrir sér í því að
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er sem stendur ónýtt verkfæri
í þessu máli. Þar hafa Rússland og Kína beitt neitunarvaldi gegn
hvers konar aðgerðum sem líklegar eru til að duga til að stöðva
Assad og koma honum og stjórn hans frá völdum. Án umboðs
frá Öryggisráðinu er afar ósennilegt að NATO grípi til aðgerða
í Sýrlandi. Raunar er ástæða til að reyna allar leiðir aðrar áður
en gripið verður til þess að beita hervaldi til varnar óbreyttum
borgurum í Sýrlandi. Þessi heimshluti er þvílík púðurtunna að
hernaðaríhlutun gæti haft öfugar afleiðingar.
Stjórn Assads skákar enn í skjóli Rússlands og Kína. Þessi ríki
vilja ekki samþykkja neins konar íhlutun í „innanríkismálefni“,
jafnvel ekki vegna fjöldamorða og mannréttindabrota, enda sjálf
ekki með hreinan skjöld. Staðreyndin er sú að Assad og sveitir
hans munu halda áfram uppteknum hætti nema voldugustu ríki
heims tali einni röddu og útskýri fyrir stjórninni í Sýrlandi að
hún sé einangruð og eigi sér enga stuðningsmenn lengur.
Þeir sem vilja stöðva morðin í Sýrlandi ættu að hvetja þessi tvö
voldugu ríki, sem bæði eiga sendiráð í Reykjavík og eru í góðu
kallfæri, til að beita sér af alvöru fyrir því að stöðva blóðbaðið
og taka hagsmuni almennra borgara í Sýrlandi fram yfir eigin
valdapólitík.
Viðurstyggileg fjöldamorð í Sýrlandi:
Hvað þarf til að
stöðva Assad?
Ramminn sem hvarf
Beðið var eftir þingsályktunartillögu
um rammaáætlun um vernd og
nýtingu náttúrusvæða með nokk-
urri eftirvæntingu. Fæðingin var
enda löng og Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra sagði reglulega
að málið væri á lokametrunum.
Stjórnarliðar sögðu það vera
eitt þeirra mála sem lögð
yrði áhersla á að kláruð
yrðu á yfirstandandi þingi.
Svo hvarf ramminn. Á
málið hefur varla verið
minnst síðustu vikur og
lítið hefur farið fyrir
því að unnið sé að
framgangi þess, fyrir
opnum tjöldum að minnsta kosti.
Áherslan hefur öll verið á sjávarútveg
og, líkt og oft áður, hafa umhverfis-
málin horfið í skugga annarra mála.
Kosningavitund í lagi
Háskólanemar eiga samkvæmt skil-
greiningu að hafa gríðarlegan áhuga
á þjóðmálum. Í því ljósi er athyglis-
vert að sjá að þeir áætla árlega
útilegu sína um sömu helgi
og kosið verður til forseta.
Nemarnir ætla að liggja úti
frá föstudegi til sunnudags og
því allar líkur á að þeir flykkist
til sýslumanns til að kjósa utan
kjörfundar áður en
herlegheitin hefjast.
Erfiður starfi
„Ég hef lýst mig reiðubúna til að starfa
á hverjum einasta degi fram að kosn-
ingum, sem verða vonandi bráðlega,“
sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, á Alþingi 3. maí,
þegar rætt var um hvort funda þyrfti
fram á sumar. Nú er Vigdís komin í
sumarfrí og búin að kalla inn
varamann, þó engar hafi kosn-
ingarnar orðið. Vigdís lýsti
því reyndar yfir í ívitnaðri
ræðu að þingmenn gætu
einmitt gert það og það er
rétt. Alþingi er ekki leikskóli
sem loka þarf í mánuð
vegna sumarfría.
kolbeinn@frettabladid.is
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN