Fréttablaðið - 13.06.2012, Qupperneq 32
28 13. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR
Tónleikar
Buika
Listahátíð – Harpa Eldborg 9. júní
★★★★★
Það var ólík sýn sem beið manns
þegar maður gekk inn í Elborg-
arsal Hörpu á laugardagskvöld-
ið, heldur en á tónleikum Bryans
Ferry um daginn eða á Hljóm-
skálatónleikunum. Á sviðinu voru
bara tveir stólar, eitt lítið borð
með drykkjum á, þrír hljóðnem-
ar og nokkrir litlir sviðshátalarar.
Engar græjustæður og engin sér-
útbúin sviðsmynd. Þegar Buika
hafði komið sér fyrir á sviðinu
ásamt hljóðfæraleikurunum sínum
tveimur, kassagítarleikara og slag-
verksleikara, þá rann upp fyrir
manni að hún og röddin hennar
þyrftu að halda alveg uppi þessum
tónleikum. Það væri ekki hægt að
fela sig á bak við eitt eða neitt.
Strax á eftir fyrsta laginu
útskýrði Buika að hún hefði orðið
að fresta tónleikunum, sem áttu
upphaflega að vera 3. júní, vegna
slæmra veikinda og bætti því við
að hún væri nýhætt með kærastan-
um: „Röddin er ekki alveg hundr-
að prósent og hjartað er skaddað,
en hugurinn og þrekið hafa aldrei
verið sterkari.“
Þrátt fyrir viðkvæma rödd og
einfalt undirspil þá skilaði Buika
sínu með miklum tilþrifum á laug-
ardagskvöldið. Hún hefur mjög
sérstaka rödd og sterka sviðsnær-
veru. Hún var mjög persónuleg;
talaði mikið við tónleikagesti um
sig og sín mál, söng af mikilli til-
finningu og innlifun og hreyfingar
hennar og dansar á sviðinu voru
fullir af ástríðu.
Tónlist Buiku er sambland af
flamenco-tónlist, suður-amer-
ískri tónlist, sálartónlist og djassi,
þó að djassinn sé meira áberandi
hjá henni þegar hún spilar með
píanóleikara. Buika söng lögin sín
af innlifun á laugardagskvöldið,
en hún var líka mjög skemmti-
leg á sviðinu. Hún kallaði „Hvað,
ertu að fara?“ á eftir tónleikagesti
sem stóð upp til að yfirgefa salinn
og hætti ekki fyrr en hún hafði
fengið það staðfest frá honum að
hann kæmi aftur, hún tók nokkrar
myndir af gítarleikaranum sínum
í einu laginu og hún leyfði sér að
stoppa í miðju kafi til þess að laga
fleginn kjólinn og biðjast afsök-
unar á því að það sæist of mikið í
brjóstin á henni. Og allt gerði hún
þetta með breiðu brosi og hlýlegu
og glampandi augnaráði. Lista-
hátíð hefur fyrir reglu að bjóða
upp á allavega einn heimstónlist-
arviðburð á hverri hátíð. Það er
mjög mikilvæg og góð regla. Tón-
leikarnir með Buiku voru frábær-
ir. Þeir voru óvenju persónulegir
og ólíkir flestu öðru sem maður
hefur upplifað. Án Listahátíðar
hefðu þeir sennilega aldrei farið
fram. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Spænska söngkonan
Buika heillaði tónleikagesti í Hörpu
á laugardagskvöldið með tilfinn-
ingaríkum söng og skemmtilegri
sviðsframkomu.
Tilfinningarík og persónuleg
HEILLANDI Söngkonan Buika heillaði tónleikagesti Hörpunnar í síðustu viku.
Leikaranir Ellen Page og Alexander Skarsgård hafa ítrekað sést
saman undanfarna daga og velta því fjölmiðlar vestanhafs fyrir sér
hvort þau séu nýjasta par Hollywood. Skarsgård og Page sáust saman
á hokkíleik í síðustu viku þar sem ljósmyndarar eltu þau á röndum.
Skarsgård hefur verið í sambandi við leikkonurnar Kate Bosworth,
Evan Rachel Woods og Charlize Theron.
Hugsanlega eru nýleg stefnumót Page og Skarsgård hluti af því að
skapa umtal um myndina The East sem verður frumsýnd á næstunni
en hún skartar leikurunum í aðalhlutverki.
Nýtt par?
SKOTIN? Fjölmiðlar vestanhafs velta því fyrir sér hvort leikaranir Alexander Skars-
gård og Ellen Page séu nýja stjörnuparið. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarmaðurinn Ásgeir
Trausti hefur sent frá sér lagið
Leyndarmál. Það er eftir hann en
textann á faðir hans Einar Georg
Einarsson. Um undirspil sáu
Sigurður Guðmundsson og Kiddi
úr hljómsveitinni Hjálmum, auk
fleiri þekktra hljóðfæraleikara.
Ásgeir Trausti hefur vakið
athygli undanfarið með laginu
Sumargestur sem hefur setið í
sex vikur á vinsældarlista Rásar
2. Bæði lögin verða á fyrstu plötu
hans, Dýrð í dauðaþögn, sem
kemur út í ágúst.
Á henni verða
tíu lög, öll eftir
Ásgeir Trausta.
Pabbi samdi
textann
NÝTT LAG Ásgeir
Trausti hefur sent
frá sér lagið
Leyndar-
mál.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas
MIÐVIKUDAGUR: UNG (GOODBYE FIRST LOVE) 17:50, 20:00,
22:10 SUMARTÍÐ (SUMMER HOURS) 17:50, 20:00 COOL CUTS:
LEGENDS OF VALHALLA-THOR 18:00 COOL CUTS: JAR CITY 20:00
COOL CUTS: LAST DAYS OF THE ARCTIC 22:00 TYRANNOSAUR
18:00 IRON SKY 18:00 BLACK’S GAME 20:00, 22:00
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA.
“Létt og
ánægjuleg.”
-The Guardian
“Einstök mynd.”
-The New York Times
21. JÚNÍ: MARLEY + REGGÍHÁTÍÐ!ALLT Á SÉR SÍNA TÍÐ
SUMARTÍÐGOODBYE FIRST LOVEUNG
Myndin sem
slegið hefur í
gegn í Evrópu
og vestanhafs
á undanförnum
vikum!
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PIRANHA 3DD KL. 8 - 10 16
PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 - 10.20 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 12
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
PRIANHA 3DD ÓTEXTUÐ KL. 6 - 8 - 10 16
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 2D KL. 8 - 10.30 16
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
ÞEIR ERU MÆTTIR AFTUR!
TVÖFÖLD SPENNA, TVÖFÖLD HRÆÐSLA
OG TVÖFALT MEIRA KJÖT Í 3-DD!
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS- ROGER EBERT
PIRANHA 3DD KL. 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
MOONRISE KINGDOM KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
MIB 3 3D KL. 5.30 - 10 10
GRIMMD: SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
EMPIRE
„Scott ... tekst að skapa rafmagnaða
stemningu í Prometheus“
-V.J.V., Svarthofdi.is
- Roger Ebert
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND
MILEY CYRUS DEMI MOORE
EGILSHÖLL
12
12
12
12
10
12
10
16
16
16
16
V I P
12
12
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
12
L
L
L
AKUREYRI
16
16
12
16
16
KEFLAVÍK
L
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
MADAGASKAR 3 3D 4, 6
MADAGASKAR 3 2D 4
PROMETHEUS 3D 7, 10
SNOW WHITE 7, 10
THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 4, 10.20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%