Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 2

Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 2
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR2 Flestir hundar eru í Grafarvogi Götur með flesta hunda: Fannafold 36 Bakkastaðir 26 Smárarimi 26 Vættaborgir 24 Esjugrund 23 Póstnúmer með flesta hunda: 112 560 110 257 101 248 108 240 109 233 DÝRAHALD Skrá yfir útgefin hunda- leyfi í Reykjavík hefur nú verið gerð opinber á netinu. Samkvæmt henni eru nú 2.277 hundar á skrá í borginni. Umhverfis- og samgöngu- svið Reykjavíkur óskaði álits Pers- ónuverndar á birtingunni áður en í hana var ráðist. Árný Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur, en það sér meðal annars um hundamál, segir að með þessu sé verið að opna stjórnsýsl- una. Enginn eigi að skammast sín fyrir að eiga skráðan hund og list- inn sé til upplýsingar vilji fólk sjá hvar þeir eru skráðir. Árný segir að viti fólk af hund- um sem ekki eru á listanum kunni umsókn um leyfi fyrir þá að vera í ferli, eða þeir séu hreinlega óskráð- ir. Hún segir mikið kvartað yfir hundum í borginni. „Já, ansi mikið. Við fáum marg- ar ábendingar, það breytist ekkert. Við skráum líklega einar 600 til 700 kvartanir á ári og svo er einhver fjöldi sem ekki er skráður.“ Árný segir önnur sveitarfélög hafa birt lista yfir útgefin leyfi, til dæmis Blönduós og Dalvík. Þegar Reykjavík stígi fram veki það hins vegar oft athygli. „Við leituðum álits Persónuvernd- ar, en það verður bara að koma í ljós hvort einhver gerir athugasemdir við málið.“ Páll Hilmarsson gagnablaðamað- ur hefur unnið upplýsingar úr list- anum og sett fram á myndrænan hátt á heimasíðunni gogn.in sem er í eigu hans. Hann segir eðlilegt að fólk geti séð hvar hundar eru staðsettir í borginni. Þeir sem hafi ofnæmi, eða séu hræddir við hunda, geti þá valið sér búsetu eftir því. 2.277 hundar eru skráðir í Reykjavík Flestir hundar í Reykjavík eru til húsa í Grafarvogi. Skrá yfir hundaleyfi er nú aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar. Alls eru 2.277 leyfi á skrá hjá borginni. Gagnablaðamaður hefur gert gögnin aðgengileg á myndrænan máta. NÁGRENNI FRÉTTABLAÐSINS Á heimasíðunni gogn.in geta lesendur séð hve margir hundar eru skráðir í nágrenni þeirra. Hér sést að í 500 m radíus frá Frétta- blaðinu eru þeir 43. Sjái lesendur ekki merki um hund sem þeir vita af er hann ekki skráður. „Önnur ástæða fyrir því að ég réðst í þetta var að ég vildi sýna fram á hvað er hægt að gera þegar hið opinbera, sem situr á ómældu magni af gögnum, lætur þau frá sér. Þá kemur einhver og gerir eitthvað við gögnin og notar þau á einhvern nýtilegan hátt sem hinu opinbera hafði ekki dottið í hug, eða hafði ekki tækifæri, tíma eða peninga til að gera eitthvað við.“ kolbeinn@frettabladid.is EVRÓPUMÁL ESB mun ekki fara fram á endurgreiðslu veittra IPA-styrkja til Íslands ef ekki verður af aðild. Þetta kemur fram í svari utan- ríkisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Ein- ars Daðasonar um hvort finna mætti skrif- lega staðfest- ingu á slíku. Ráðherra segir í svari sínu að IPA-styrkir byggi á ramma- samningi milli Íslands og ESB sem nú er til meðferðar hjá Alþingi. Í þeim samningi eru, að sögn ráðherra, engar kvaðir um mögulega endurgreiðslu, en þvert á móti sé gert ráð fyrir að öll samþykkt verkefni „verði til lykta leidd þótt rammasamn- ingnum yrði sagt upp“. - þj Svar ráðherra við fyrirspurn: IPA-styrkir eru óafturkræfir EVRÓPUMÁL Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins (ESB) náðu í gær mikilvægu samkomulagi um að brottkasti á fiski innan sam- bandsins verði hætt og þar með dregið úr ofveiði. Tímasetningar samkomulagsins eru hins vegar gagnrýndar af umhverfisverndar- samtökum sem telja að gildistaka takmarkana við brottkasti ein- stakra tegunda muni koma of seint. Þetta var niðurstaða maraþon- fundar ráðherranna í Lúxemborg þar sem tekist var á um hvort og hvenær bann við brottkasti ætti að verða að veruleika. Eins hvernig má ákvarða hver sjálfbær nýting einstakra stofna verður. Samkomulagið, sem er í raun málamiðlun, er sögulegt í þeim skilningi að í fyrsta sinn í um fjóra áratugi hefur náðst niðurstaða í því umdeilda deilumáli sem brott- kast meðafla er. Talið er að vel yfir milljón tonn af vel nýtanlegum fiski sé hent frá borði af skipum sambandsins vegna þeirra reglna sem eru samofnar fiskveiðistefnu ESB. Nú hins vegar er stefnt á að banna brottkast með öllu. Bann við brottkasti á makríl og síld er líklegt til að taka gildi árið 2014. Bann við brottkasti þorsks og ýsu tekur hins vegar mun síðar gildi, og jafnvel ekki fyrr en 2019. Þetta segja sérfræðingar og umhverfissamtök að gæti reynst of seint, enda ástand þessara stofna, svo aðeins tveir séu nefndir, alvar- legt. Umhverfissinnar ganga jafn- vel svo langt að segja að samkomu- lagið sé lítils virði og ofveiði innan ESB hafi verið framlengd um ára- tug eða meira. Samþykkt samkomulagsins kemur nú til kasta Evrópuþingsins þar sem það getur tekið breyting- um. - shá Mikilvægt en umdeilt skref tekið í áttina að banni á brottkasti innan Evrópusambandsins í gær: Málamiðlun sem sögð er ganga of skammt FUNDAÐ Maria Dananaki, sjávarútvegs- stjóri ESB, og Richard Benyan, umhverfis- og sjávarútvegsráðherra Bretlands. Þau vildu bæði ganga lengra, án árangurs. NORDICPHOTOS/AFP Hjörleifur, er þetta ljóður á ráði Kínverja? „Nei, ég vísa því frá mér.“ Ljóðaþingi Kínversk-íslenska menningar- sjóðsins í Noregi var aflýst því kínverskir þátttakendur fengu ekki leyfi til að fara. Hjörleifur Sveinbjörnsson er stjórnar- formaður sjóðsins. ALÞINGI Ekkert bendir til að saman náist um þinglok og því allar líkur á að sumarþing verði kvatt saman eftir mánaðamótin eftir stutt hlé. Formenn þing- flokkanna funduðu í gærkvöldi um framhaldið, og þá afgreiðslu einstakra mála, en fundi var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var til umræðu að leggja áherslu á önnur mál en sjávarútvegsmálin út vikuna, eða fram að þinghléi. Reiknað er með að niður- staða um hvort blásið verður til sumarþings eða ekki liggi fyrir í dag. - kóp / shá Þingflokksformenn funda: Allar líkur á sumarþingi SVÍÞJÓÐ Dósakjöt sem framleitt var á árunum 1986 til 1993 í Sví- þjóð kom á markað þar 2009. Kjötið hafði verið í geymslu sænsku landbúnaðarstofnunar- innar en árið 2000 keypti sænsk- ur heildsali 1.500 tonn af því. Heildsalinn geymdi birgðirnar í níu ár áður en hann kom því í sölu í Póllandi og í Svíþjóð. Þá var heildsalinn staðinn að því að framlengja endingartím- ann á hluta birgðanna til ársins 2013. Rannsókn í Póllandi leiddi í ljós að kjötið var þrátt. Rann- sókn ákæruvalds í Svíþjóð hefur verið hætt þar sem í nýrri rann- sókn kom í ljós kom að engar bakteríur væru í kjötinu. Þess má því neyta til 2013. - ibs Heildsali afhjúpaður: Endurmerkti þrátt dósakjöt ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON AFGANISTAN, AP Talið er að yfir áttatíu hafi látist í aurskriðu sem varð í kjölfar tveggja jarð- skjálfta í norðurhluta Afganist- ans á mánudag. Hluti fjalls í Bag- hlan-héraði féll ofan á heilt þorp og gróf það. 24 hús voru í þorpinu og skriðan gróf 23 þeirra. Ólík- legt þykir að nokkur finnist á lífi úr þessu. Tvö lík hafa fundist til þessa. Fulltrúar SÞ vinna ásamt yfir- völdum að því að ákveða hvers konar hjálpar er þörf. - þeb Hamfarir í Afganistan: Áttatíu taldir af SAMFÉLAGSMÁL Gróðurreitur til minning- ar um þá sem voru myrtir í Ósló og Útey 22. júlí 2011 verður í jaðri friðlandsins í Vatnsmýrinni; í nánd við Norræna húsið og Háskóla Íslands. Fljótlega eftir að fréttir bárust af voða- verkunum var rætt í stjórn Norræna félagsins að minnast þeirra sem voru myrtir með einhverjum hætti. Hugmynd Þorvaldar S. Þorvaldssonar, fyrrverandi skipulagsstjóra Reykjavíkur, um minn- ingarreit varð ofan á og var henni komið á framfæri við Skógræktarfélag Reykja- víkur. Fyrstu skrefin við gerð lundarins voru tekin í gær. Áætlað er að gróðursetja átta stór reynitré sem tákna Norðurlönd- in fimm ásamt Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum og 77 birkitré sem tákna hvern þann sem féll í árásinni. Í minningarlundinum verða bekkir, einn í hverja höfuðátt og minningarsteinn með skýringartexta. - shá Gróðursetja tré til minningar um 77 fórnarlömb morðingjans Anders Breivik: Lundur í minningu fórnarlamba GRÓÐURSETNING Feðginin Siri Marie Sønstelie, sem lifði árásina af, og Erik Sønstelie voru viðstödd þegar fyrstu trén voru gróðursett í gær. MYND/ERNIR EYJÓLFSSON Belgar í Skyndidalsá Tveir belgískir ferðamenn óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita en þeir höfðu fest bílaleigubíl sinn í Skyndidalsá í Lóni. Þeir skriðu út um glugga bílsins og upp á þak og hringdu þaðan eftir aðstoð. Björgunarsveitin á Höfn fór þeim til aðstoðar og gekk það fljótt og vel. Þeim var bent á að umræddur vegur er lokaður áður en þeir héldu áfram ferð sinni. ÖRYGGISMÁL SPURNING DAGSINS www.skyr.is Þú finnur fleiri boostuppskriftir á BRAGÐ AF SUMRI Peru- og ananasboost 1 lítið Peruskyr.is 1 dl ananassafi 50 g frosnir blandaðir melónubitar 0,5 dl kókosmjólk 6-8 ísmolar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.