Fréttablaðið - 14.06.2012, Síða 4
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 13.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
224,0051
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,91 129,53
200,68 201,66
161,63 162,53
21,745 21,873
21,462 21,588
18,264 18,372
1,6172 1,6266
195,22 196,38
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
4 Litir
DÓMSMÁL Pólverjarnir Grzegorz
Nowak og Pawel Podburaczynski,
sem eru ákærðir fyrir aðild að
úraráninu í verslun Michelsen í
vetur, neita báðir að hafa átt hlut í
því að skipuleggja eða fjármagna
ránið. Þeir játa þó báðir aðild sína
að málinu.
Framburði mannanna tveggja
bar algjörlega saman við aðal-
meðferð málsins fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Þeir
sögðu að maðurinn á bak við áætl-
unina hefði verið Marcin Tomasz
Lech, sem afplánar nú fimm ára
fangelsisdóm á Litla-Hrauni fyrir
að hafa skipulagt ránið. Þeir töl-
uðu pólsku en túlkur þýddi fram-
burð þeirra jafnóðum.
Marcin var kallaður fram sem
vitni og neitaði hann því alfarið
að hafa skipulagt aðgerðina. Hann
sagðist hafa þegið boð um að
fremja ránið frá manni sem hann
þekkti frá heimabæ sínum í Pól-
landi. Marcin bað sakborningana
tvo afsökunar á fyrri vitnisburði
sínum, þar sem hann reyndi að
skella skuldinni á þá.
„Þeir komu ekki nálægt skipu-
laginu,“ sagði Marcin. „Ég vil
biðja þá fyrirgefningar hér á
staðnum.“
Aðspurður vildi Marcin ekki
greina frá nafni höfuðpaursins
sem skipulagði ránið af ótta við
að honum eða fjölskyldu sinni yrði
unnið mein. Hann kvað mann-
inn vera þekktan glæpamann í
heimabæ sínum, sem er svipaður
að stærð og Reykjavík. Saksókn-
ari spurði hann þá hvort maður-
inn væri tengdur glæpasamtökum
og játti Marcin því.
„Hann er þekkt fígúra í okkar
bæ. Það má segja að hann hafi
tengsl við glæpasamtök sem er
þekktur hópur í bænum,“ sagði
hann. „Þeir keyra um á glæsikerr-
um, eru ekki í venjulegri vinnu og
stunda næturlífið.“ Er hann var
spurður hvað þessi glæpasamtök
hétu, svaraði hann: „Hópar heita
engum nöfnum í Póllandi eins og
ég hef heyrt í fangelsinu að þeir
heiti hér. Það eru þá helst fjöl-
miðlar sem finna nöfn á þá, en
þeir kalla sig ekki neitt.“
Marcin sagðist viss um að þurfa
að greiða skuld sína til baka þegar
hann sneri aftur til Póllands eftir
fangelsisdóminn, því ránið hafði
ekki tekist og einhver þyrfti að
greiða upphæðina til baka sem fór
í flugmiða, hótel og annan tengd-
an kostnað.
„Ég er bara peð í þessu og
skipulagði ekkert,“ sagði hann,
en sagðist þó skilja vel að það hafi
litið þannig út í augum sakborn-
inganna.
Pawel og Grzegorz sögðust
báðir hafa ákveðið að taka þátt
ráninu vegna fjárhagsörðugleika
heima fyrir. Þá sagðist Pawel eiga
nýfætt, veikt barn sem þarfnaðist
lyfja sem hann hefði ekki efni á.
Mennirnir tveir voru hand-
teknir við landamæraeftirlit lög-
reglu í Sviss í mars síðastliðnum.
Þeir sögðust báðir fyrir dómi hafa
ætlað að gefa sig fram til lög-
reglu af fúsum og frjálsum vilja,
en verið beðnir af bróður Marc-
ins um að bíða með það þar til
dómur væri fallinn í máli hans.
Þeir sögðust hafa verið í Sviss í
atvinnuleit. sunna@frettabladid.is
Höfuðpaurinn er félagi í
pólskum glæpasamtökum
Tveir pólskir karlmenn játa aðild sína að úraráninu. Sá sem dæmdur var fyrir að skipuleggja ránið segir
heilann á bak við aðgerðina vera þekktan glæpamann í Póllandi. Aðalmeðferð málsins fór fram í gær.
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra vill draga
þá sem bera ábyrgð á voðaverkum
í Sýrlandi fyrir alþjóðlega dóm-
stóla. Íslendingar styðja tillögu
í mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna þess efnis.
„Ég hef fyrir hönd Íslands
hvatt til þess að Öryggisráðið taki
ákvörðun um að vísa stórfelldum
brotum sýrlensku ríkisstjórnar-
innar á mannréttindum og mann-
úðarlögum til Alþjóðadómstóls-
ins.“
Össur segir núverandi skipulag
Öryggisráðsins, þar sem einstak-
ar þjóðir hafi
neitunarvald
að fornri venju,
óásættanlegt.
Rússar og Kín-
verjar standi
gegn straumi
alþjóðasam-
félagsins gagn-
vart Sýrlands-
stjórn. „Þetta
s ý n i r h v a ð
Öryggisráðið er
gersamlega ónýtt tæki.“
Utanríkisráðherra segir ljóst
að friðarleið Kofis Annan hafi
ekki skilað árangri. Ekki sé hægt
að koma hjálpargögnum til nauð-
staddra og mikil neyð hafi skap-
ast. Hann segir hernaðaraðgerðir
mögulegan kost.
„Já, mér finnst það koma til
greina ef alþjóðasamfélagið verð-
ur því sammála,“ segir hann. „Á
hinn bóginn er það þannig að menn
vilja skakka leikinn með einhverj-
um hætti, en geta það ekki þar sem
sú regla er almennt viðurkennd
að menn fara ekki með einhvers
konar valdi inn í lönd nema örygg-
isráðið telji það nauðsynlegt og þar
er málið stopp.“ - kóp
Utanríkisráðherra vill vísa brotum Sýrlandsstjórnar til Alþjóðadómstólsins:
Segir Öryggisráðið ónýtt tæki
JÁTA AÐILD AÐ MÁLINU Mennirnir tveir játuðu aðild sína að ráninu og sögðust
hafa ætlað að gefa sig fram við yfirvöld í Sviss þar sem þeir voru handteknir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
„Þetta skapaði óöryggi, vantraust og vanlíðan. Ég fæ martraðir og á bágt
með svefn. Ég verð var um mig þegar fólk kemur inn í búðina sem er
eitthvað öðruvísi, hvort sem það er frá Austur-Evrópu, með tattú, hettu,
sólgleraugu … maður hefur varann á,“ sagði Magnús Michelsen fyrir dómi
í gær. Magnús er sonur Franks Michelsen, eiganda búðarinnar, og var að
vinna ásamt föður sínum þegar ránið var framið. Frank bar líka vitni fyrir
dómi og hafði sömu sögu að segja. „Ég vantreysti fólki eftir þetta,“ sagði
hann. „Fólk með hettu á höfðinu, fólk sem talar hátt, hlær eða ég heyri
tungumál frá Austur-Evrópu. Ég vantreysti því núna.“ Feðgarnir fengu báðir
viðtöl hjá geðhjúkrunarfræðingi eftir atvikið.
Hræddur við fólk sem er öðruvísi
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
23°
19°
14°
21°
22°
14°
14°
24°
16°
28°
24°
32°
16°
21°
22°
18°Á MORGUN
Hæg breytileg átt
eða hafgola.
LAUGARDAGUR
2-6 m/s,
skúrir síðdegis.
13
10
9
11
10
7
10
9
10
10
7
5
5
4
7
5
7
4
6
2
4
3
12
10 10
9
13 12
9 10
8
9
TÍÐINDALÍTIÐ
Litlar breytingar
verða í veðrinu
næstu daga. Áfram
verður vindur
fremur hægur og
þá gætir hafgolu
víða og horfur eru
á skúrum síðdegis,
einkum sunnan-
og austantil. Heldur
svalt er NA- og
A-lands þessa
dagana en hlýjast
í innsveitum S- og
V-til.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
SLYS Kona á fimmtugsaldri velti bíl
sínum út af veginum við Böðvars-
nes í Fnjóskadal aðfaranótt mið-
vikudags. Bíllinn endaði á hvolfi
ofan í Fnjóská.
Konan, sem var í bílbelti, náði
að koma sér út úr bílnum og í land.
Hún gekk að bænum Böðvarsnesi
og fékk þar aðstoð. Hún var flutt
á Sjúkrahúsið á Akureyri. Konan
slapp með minniháttar meiðsl en
bíllinn, Land Rover jeppi, er talinn
ónýtur. Slysið átti sér stað á malar-
vegi sem er erfiður yfirferðar. - sv
Kona slapp með skrekkinn:
Velti bíl sínum
ofan í Fnjóská
ALÞINGI Frumvarpi um fjármögn-
un Vaðlaheiðarganga var vísað
til fjárlaganefndar eftir aðra
umræðu í gær. Málið var sam-
þykkt með 31 atkvæði gegn átján,
en sex þingmenn sátu hjá.
Mörður Árnason greiddi
atkvæði gegn málinu, einn stjórn-
arliða, en sjö stjórnarandstæð-
ingar greiddu atkvæði með því.
Fjórir stjórnarliðar greiddu ekki
atkvæði, þar á meðal Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur sagði í ræðu sinni
á þingi að um væri að ræða fjár-
mögnun ríkisins og sem slík hefðu
göngin átt að fara eins og aðrar
ríkisframkvæmdir á samgöngu-
áætlun. - þj
Vaðlaheiðargöng á þingi:
Einn stjórnar-
liði sagði nei
SVISS, AP Svisslendingar ætla að
halda þjóðaratkvæðagreiðslu um
það hvort fjölga eigi þjóðarat-
kvæðagreiðslum í landinu.
Þjóðernissinnar vilja að þjóðar-
atkvæðagreiðslur fari fram í hvert
skipti sem ríkisstjórnin skrif-
ar undir mikilvæga milliríkja-
sáttmála eða samninga. Flestir
stærstu flokkarnir í Sviss eru mót-
fallnir hugmyndinni og segja hana
munu stífla lýðræðið. Nú eru um
sex þjóðaratkvæðagreiðslur á ári í
landinu, og fleiri minni íbúakosn-
ingar í héruðum. - þeb
Þjóðaratkvæði í Sviss:
Munu kjósa um
fleiri kosningar
Brotlenti í Hafrafelli
Svifdrekamaður brotlenti í Hafrafelli
í gær. Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbjörgu virtist maðurinn vera
fótbrotinn. Hafrafellið er bratt og
því þurfti að setja manninn í börur
til að láta hann síga niður þar sem
sjúkrabíll beið hans.
SLYS