Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 6
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR6
UTANRÍKISMÁL Ísland styður áheyrn-
araðild Kína að Norðurskauts-
ráðinu, en það mál er í nokkru
uppnámi vegna frosts í samskipt-
um Noregs og Kína. Fréttablaðið
greindi frá því í gær að kínversk-
ir þátttakendur á kínversk-íslensku
ljóðaþingi, sem halda átti í Noregi,
hefðu ekki fengið leyfi til Noregs-
farar. Þá hefur Jonas Gahr Störe,
utanríkisráðherra Noregs, lýst því
yfir að Kína fái ekki áheyrnaraðild
við núverandi aðstæður.
„Við höfum stutt aðild Kína að
Norðurskautsráðinu, en við höfum
líka reynt að beita okkur fyrir því
að bæta sambúð Kína og Noregs,“
segir Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra.
„Það var meðal annars eitt af því
sem Jóhanna Sigurðardóttir tók upp
í heimsókn Wen Jiabao, kínverska
forsætisráðherrans, hér á dögunum.
Ég hef sömuleiðis tekið þetta upp
við Kínverja og Norðmenn.“
Össur segist vonast eftir meiri
þíðu í samskiptum ríkjanna og segir
Íslendinga, ásamt öðrum þjóðum,
vinna að því. En er ekki eðlilegt að
styðja Norðmenn gegn áheyrnar-
aðild Kínverja?
„Hvað er afstaða Norðmanna
sterk til þess? Ég hef skilið Norð-
menn, fram á alla síðustu mánuði,
með þeim hætti að þeir séu því
hlynntir að ýmsar þjóðir fái áheyrn-
araðild, svo fremi sem þær uppfylli
ákveðin skilyrði sem verið er að
móta núna.“
Össur segir þetta hafa verið
afstöðu allra ríkjanna, að uppfylla
verði ákveðin skilyrði eigi áheyrn-
araðild að fást. Þau sé verið að móta.
„Það held ég að sé hin opinbera
lína Norðmanna. Ég hef auðvitað
orðið var við það að þeir hafa lyft
þessu sem vopni á síðustu mánuð-
um, en engar óskir hafa borist til
Vasabrot skáldverk: 6.6.12–12.6.12
Vasabrot skáldverk: 6.6.12–12.6.12
Vasabrot skáldverk: 6.6.12–12.6.12
Vasabrot skáldverk: 6.6.12–12.6.12
Vasabrot skáldverk: 6.6.12–12.6.12
Styður áheyrnaraðild
að Norðurskautsráði
Ísland styður áheyrnaraðild Kína að Norðurskautsráðinu. Utanríkisráðherra
Noregs lýsti sig mótfallinn henni við núverandi aðstæður. Össur Skarphéðins-
son segir Íslendinga vilja stuðla að bættum samskiptum Noregs og Kína.
„Því miður virðast Kínverjar ekki hafa komist út úr öngstrætinu. Vararáðherra
utanríkismála, Song Tao, segir að Kínastjórn vonist eftir „samvinnu við lönd
sem eiga aðild að málinu, eins og Svíþjóð og Ísland, um frið, stöðugleika og
trausta þróun á Norðurskautinu.“ Það vefst ekki fyrir okkur að nefna Ísland
og Svíþjóð sem aðila málsins, einnig hér, þar sem þau sitja líka í ráðinu.“
Úr frétt Aftenposten á þriðjudag.
Aðilar málsins
annarra þjóða, svo mér sé kunnugt
um, um að breyta þeirri afstöðu sem
þær hafa.“
Össur segir að komi slík ósk fram
verði tekin afstaða til hennar.
Hann segir viðskiptahagsmuni
gagnvart Kínverjum ekki lita
afstöðu Íslendinga. Kína sé mikil-
vægur framtíðarmarkaður, en eins
og sakir standi nú skipti utanríkis-
verslun við Kínverja ekki sköpum.
„Við erum lítil þjóð sem reynum
að eiga góða sambúð við allar þjóðir,
stórveldin og líka millistórar þjóðir
eins og Norðmenn. Þannig lifa litlar
þjóðir af, án þess þó að slá í nokkru
af sínum prinsippum.“
kolbeinn@frettabladid.is
M
YN
D
/N
O
R
D
EN
.O
R
G
NORRÆN SAMVINNA Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, hefur sagt að
ekki komi til greina að Kína fái áheyrnaraðild að Norðurskautsráði við núverandi
aðstæður. Ísland styður áheyrnaraðild Kína. Störe talar hér á fundi Norðurlanda-
ráðs árið 2010.
SAMFÉLAGSMÁL Dómarar munu geta
dæmt foreldrum sem skilja sam-
eiginlega forsjá, en Alþingi sam-
þykkti frumvarp um breytingar að
barnalögum þess efnis á þriðjudag.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra lagði fram frumvarpið
upphaflega, en þá var ekki ákvæði
um dómaraheimild um sameigin-
lega forsjá, þrátt fyrir að í skýrslu
nefndar sem fór yfir lögin hafi það
verið lagt til. Ögmundur sagðist
hafa talið ástæðu til að stíga var-
lega til jarðar í þessum málum.
Í meðförum velferðarnefndar
var frumvarpinu hins vegar breytt
til baka og heimildin sett inn. Í rök-
stuðningi nefndarinnar kom meðal
annars fram að Ísland væri eina
ríkið á Norðurlöndunum sem ekki
gefur dómurum þessa heimild.
„Sú reynsla er almennt jákvæð og
hefur foreldrum í flestum tilvik-
um tekist að vinna saman í kjöl-
far dóms um sameiginlega forsjá,
þó svo vissulega séu dæmi þess að
samstarf foreldra eftir dóm hafi
ekki gengið nægilega vel,“ stendur
í greinargerð nefndarinnar.
Samkvæmt nýju lögunum er
foreldrum skylt að leita sátta
áður en höfðað er forræðismál
eða úrskurðar krafist. Sérstakur
sáttamaður boðar þá á sáttafundi
og börn sem eru nægilega gömul
fá að tjá sig við sáttameðferðina.
Frumvarpið var samþykkt með
44 samhljóða atkvæðum.
- þeb
Alþingi breytti frumvarpi ráðherra og setti ákvæði aftur inn í lögin:
Geta dæmt sameiginlega forsjá
DANMÖRK Konum sem voru dæmd-
ar fyrir ofbeldi í Danmörku fjölg-
aði til muna á árabilinu 1990 til
2010.
Árið 1990 voru 329 konur sak-
felldar fyrir ofbeldisverk, en 2010
voru þær fjórfalt fleiri, eða 1.364.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
dönsku hagstofunnar.
Fjölgunin er áberandi meðal
unglingsstúlkna en í þeim hópi
fjölgaði stúlkum áttfalt á tíma-
bilinu. Einnig kemur fram að karl-
ar standa fyrir 90 prósentum allra
ofbeldisbrota í landinu. - þj
Dönsk skýrsla um ofbeldi:
Brotum kvenna
fjölgar áttfalt
VIÐSKIPTI Til stendur að hefja sölu á hlut ríkisins að
því er Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
sagði í viðtali við fréttastofuna Reuters. Salan er
ekki að öllu í samræmi við framtíðarstefnu Banka-
sýslu ríkisins frá í mars síðastliðnum, þar sem
segir að stofnunin geri ekki ráð fyrir því að leggja
til að sala eignarhluta í Arion banka og Lands-
bankanum geti hafist fyrr en á næsta ári.
Bankasýslan heyrir undir Oddnýju Harðardótt-
ur fjármálaráðherra. Gunnar Tryggvason, aðstoð-
armaður Oddnýjar, sagði í samtali við Fréttablað-
ið að ráðherra hafi „þá yfirlýstu stefnu að fylgja
ráðum bankasýslunnar í þessu máli“.
Ríkið á sem stendur 81,3 prósenta hlut í Lands-
bankanum, en í viðtalinu við Reuters segir
Jóhanna að til standi að selja hluta af eign ríkisins
í bankanum, en stefnt sé að því að halda eftir um
66 prósenta hlut. Jóhanna segir jafnframt að stefnt
sé að því að selja hluti ríkisins í hinum bönkunum
ef rétt verð fáist fyrir þá.
Ríkið á 13 prósenta hlut í Arion banka og 5 pró-
sent í Íslandsbanka auk misstórra hluta í fimm
sparisjóðum víða um land. - þj
Forsætisráðherra í viðtali við fréttastofu Reuters:
Boðar sölu á Landsbankahlut í ár
BANKASALA Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lét þau
orð falla við Reuters að til stæði að hefja sölu á hluta ríkisins í
Landsbankanum í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kaupir þú notuð föt?
JÁ 24,2%
NEI 75,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Skiptir þú við eitt olíufélag um-
fram annað?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN
… hefur foreldrum
í flestum tilvikum
tekist að vinna saman í kjölfar
dóms um sameiginlega forsjá
…
ÚR GREINARGERÐ